Vísir - 01.10.1975, Side 24
Miövikudagur 1. október 1975
Kúadauðinn í
Biskupstungum:
Orsðk
ókunn
Ekki er vitaö hvað olli
dauöa kúnna fjögurra í
Biskupstungum. Vísir
birti frétt um málið á
mánudag.
Við rannsókn hjá Fóðureftir-
liti rikisins og hjá tilraunastöð-
inni á Keldum, hefur ekkert
fundist, sem sanni að skepnu-
dauðinn hafi verið fóðri að
kenna.
Mál þetta kom upp i mai
siðastliðnum. Bændurna I
Biskupstungum grunaöi að
orsökin gæti verið fóðrið sem
fengið var frá Fóöurblöndunni.
En þrátt fyrir margendurteknar
rannsóknir i sumar á sýnum úr
fóðrinu sem þeir fengu, bendir
ekkert enn til að það hafi valdið
dauða kúnna.
Rannsóknin á kúnum hefur
sýnt vefjabreytingar i maga,
sem gætu stafað af eitrun, en
orsök hennar liggur ekki fyrir.
Bændurnir tveir i Biskups-
tungum fengu báðir fóður sem
framleitt var sama dag. Hvor
um sig fékk á milli tvö og þrjú
tonn. Dagsframleiðslan þennan
dag hjá Fóöurblöndunni var 40
til 50 tonn. Engar kvartanir hafa
boristfrá öðrum bændum vegna
framleiðslu þess dags.
Báðir bændurnir hafa haldið
viðskiptum sinum áfram við
Fóðurblönduna.
— ÓH
Sjötíu og
sex óra
hljóp fyrir bíl
Sjötiu og sex ára gömul kona
hlaut áverka á höfði þegar hún
lenti fyrir bifreið á Vesturgötu i
gær.
Slysið skeði þannig að konan
var að hlaupa milli húsa á
Vesturgötunni og hljóp hún þá
út á götuna. Lenti hún á vinstra
framhorni bifreiðar sem ekið
var þar um og skall siðan i göt-
una.
Meiðsli konunnar voru ekki
talin alvarleg, en hún var flutt á
Slysadeild til rannsóknar. — HV
Ekkert að gera
hjú lögreglunni?
Undanfarnir sólarhringar
hafa verið' ákaflega rólegir hjá
lögreglunni viöast hvar á land-
inu. Sumstaðar jafnvel svo að
einsdæmi telst.
t miðborgarstööinni i Reykja-
vik hafa rólegheitin gengiö svo
langt að undanfarinn einn og
hálfan sólarhring hafa verið
bókaðar þar alls þrjár kærur.
Eru tvær þeirra vegna ölvunar
og ein vegna trassaháttar við að
færa bifreið til skoðunar.
Mun það nánast einsdæmi að
lögreglan i Reykjavik hafi svo
litiö að gera. — HV
Brotist inn í
Hafnarkaffi
Brotist var inn i Hafnarkaffi
viö Vesturgiitu I Hafnarfirði I
nótt.
Brutu þjófarnir glugga og
sprengdu upp hurð á bakhiið
hússins og fóru þar inn.
Einhverju var stolið af vör-
um, en ekki var ljóst i morgun
hve miklu. — HV.
íslandsmet í auglýsing-
um, eða endurtekningum?
Þeir hjá Dagblaðinu eru að
vonum hreyknir af smá-
auglýsingunum sinum Þær eru
svo miklar að það kemur jafn-
vel niður á iþróttafréttunum
sem yfirleitt hafa forgang fram-
yfirflest annað. Þannig var á
iþróttasiðunni á mánudag
kvartað yfir að nú þyrftu þeir að
fara hratt yfir sögu i ensku
knattspyrnunni vegna þrengsla,
cnda voru fjölmargar siður full-
ar af smáauglýsingum.
NU er Hallur Simonarson frá-
bær iþróttafréttamaður og það
þvi dapurlegt ef hann fær ekki
nóg pláss, en það er til ráð við
þvf. Bara að hætta að birta
sömu auglýsinguna mörgum
sinnum. Það virðist nefnilega
hafður sá háttur að sömu
auglýsingunni er dreift vitt og
breitt um blaðið, undir mismun
andi hausum. Fyrst er' hún
kannski undir „Verzlun” svo
undir „Húsgögn” og loks undir
„Til sölu.”
Orðalaginu er þá kannski
breytt dálitið, og er ef verið er
að selja tvennt á sama stað er
það jafnvel auglýst fyrst saman
og svo sitt i hvoru lagi.
Eitt dæmi er maðurinn sem
þurfti að seíja springdýnur og
gamalt sófasett. Þaö var endur-
tekið fjórum sinnum, undir
tveim hausum, eins og sjá má:
2 nýjar springdýnur og einnig
72076 sófasett' UPP‘' 1 sima
TIL SÖLU
Igamalt sófasett. Uppl. t sima
72076.
,Til sölu
: nýjar springdýnur og einnig
imalt sófasett. Uppl. I sima 72076.
Til sölu
2 nýjar springdýnur og einnig
gamalt sófasett. Uppl. i sima
72076.
Sömu sögu er að segja um
auglýsingu frá Rauðhettu, hún
var sett á tvo staði, undir
„Fatnaður” og svo aftur undir
„Verzlun”. Fleiri auglýsingar
eru meðhöndlaðar á þennan
hátt.
Það var raunar byrjað að
auglýsa springdýnurnar i
slðustu viku f föstudags og
laugardagsblaði. En þrátt fyrir
þessa umfangsmiklu
söluherferð, voru þær enn óseld-
ar I morgun. Vonandi rætist nú
úr þvi fyrst auglýsingarnar eru
komnar i Visi.
NU, nú, það er auðvitað hægt
að setja auglýsingamet með
þessu móti, og Utaf fyrir sig er
það nokkuð eftirsóknarvert. En
Iþróttaunnendum þykir
áreiðanlega of langt gengið,
þegar hann Hallur fær ekki nóg
pláss undir iþróttafréttirnar,
vegna allra þessara endur-
tekninga. -ÓT.
Hitaveitan
25% af olíu-
kyndingarverði
— ef olíuverð hœkkar um 25%,
eins og líkur benda til
Ef rikisstjórnin samþykkir þær
hækkanir, sem Hitaveita Reykja-
vikur og borgarráð hafa farið
fram á, hækkar hvert tonn af
vatni til húsahitunar úr 39 krón-
um 36 aurum I 52 krónur og 5
aura, eða um 12 krónur 68 aura
hvert tonn.
Gunnar Kristinsson, settur
hitaveitustjóri i fjarveru Jó-
hannesar Zöega, sem nU starfar i
Tyrklandi, sagöi, að Hitaveitan
hefði sótt um 33% hækkun fyrir
mánuði.
„Ef við fáum 15% hækkun þeg-
ar i stað og 15% fyrsta janúar,
jafngildir það 32% heildarhækk-
un”, sagði Gunnar.
„Þrátt fyrir þetta er heita vatn-
iö ódýrara en það var fyrir
nokkrum árum”, sagði hann. „Ef
miðað er við byggingavisitölu er
vatnið ódýrara en það var fyrir 2
til 3 árum”.
Gunnar sagði, að kyndingar-
kostnaður með hitaveituvatni
væri nú 34% af kyndingarkostnaði
með oliu. Þá er miðað við oliu-
verð eins og það er I dag. Ef hins
vegar olia hækkar um 25%, eins
og likur benda til, verður hús-
hitunarkostnaður með hitaveitu-
vatni aðeins 25% til 26% af oliu-
kyndingarkostnaði.
Gunnar sagði, að Hitaveitan
hefði óskað eftir þessari hækkun
vegna mikilla hækkana á efni og
vinnu. Þar hefði hækkun numið
40% siðustu 11 mánuði. Þá er það
einnig kostnaðarauki hjá Hita-
veitunni að færa nágrannabyggð-
unum heitt vatn. Þessar hita-
veituframkvæmdir spara hins
vegar hundruð milljóna króna á
ári vegna minni oliukaupa.
— AG
Liðsauki lögregl-
unnar í Hafnarfirði
11 STÚLKURí
BÆNDASKÓLA
Lögreglunni i Hafnarfirði hef-
ur nú borist liðsauki við um-
feröarstjórn og umferöareftir-
lit. Eru það tvær konur, sem
ráðnar hafa veriö til að gegna
stöðu gangbrautarvarða I
Garðahrcppi.
Er ekki að efa, að þessi liðs-
auki reynist hinn þarfasti, þvi
að störf kvennanna hefur lög-
reglan þurft að inna af hendi
hingað til og hefur það bundið
einn og tvo menn mikinn hluta
úr degi.
Konurnar munu stjórna um-
feröinni um gangbrautina frá
hálf átta til fimm á daginn og
myndina tók Loftur einmitt i
morgun, þegar önnur þeirra var
að mæta i fyrsta sinn.
— HV
Bændaskólinn á Hvanneyri
verður settur 5. október. Nem-
endur I ár verða um áttatiu. Þar
af verða 11 stúlkur. Er það
óvenjulega mikill fjöidi og bendir
til þess að stúlkur muni I æ rikara
mæli vinna störf bænda i framtfð-
inni.
Nú eru 71 nemandi skráður I
bændadeild og 8 i búvisindadeild.
1 samtali við skólastjórann,
Magnús Jónsson, kom m.a. fram
að I vetur muni starfa sérstök
deild fyrir þá sem lokið hafa stú-
dentsprófi — og starfar hún að-
eins seinni önnina. Er þetta fyrir-
komulag haft á vegna þess að
aldrei fyrr hafa jafn-margir stú-
dentar sótt um skólavist viö
Bændaskólann á Hvanneyri.
Rafmagnsveitur og Reykjavikurborg fó olíupeninga
milljarða lón
1 Morgunblaðinu i dag er birt
auglýsing þar sem sagt er frá
lántökum Rafm agnsveitna
rikisins að upphæö 5 milljónir
dollara (um 800 m. islenskra
króna) og Reykjavikurborgar
að fjárhæð 6.5 milljónir dollara
(um 1 milljarður isl. króna).
Fyrirtækið Smith, Barnley &
Co. sá um iántökuna i samráði
við Citicorp International Bank
og Landsbanka tslands.
t samtali við VIsi sagði Birgir
Isleifur Gunnarsson borgar-
stjóri að þetta væri I annað sinn
sem Smith, Barniey & Co. sæju
um lántöku fyrir Reykjavikur-
borg og hefði þeim tekist i bæði
skiptin að útvega hagstæð lán.
Lán þetta kvaö Birgir Isleifur
eingöngu vera framkvæmdalán
ÍUSA
sem væri tekið vegna
framkvæmda hitaveitunnar.
Skuldabréfin voru seld ýms-
um fjárfestingar aðilum I
Bandarikjunum, og auk þess
munu ýmsir aðilar i oliurikinu
Abu Dabi hafa keypt bréf.