Vísir - 08.10.1975, Page 14
14
VÍSIR. Miðvikudagur 8. október 1975.
Þegar við fljúgum til
útlanda eða hérna
innanlands eru alltaf
ein eða fleiri flug-
freyjur með i ferðinni,
til þess að stjana við
okkur og auka velliðan
farþeganna.
En i hverju felst starf flug-
freyjunnar að öðru leyti og
hvernig eyðir hún tima si'num'i
erlendum höfnum?
Við töluðum við nokkrar flug-
freyjur, sem lýsa hér fyrir
okkur einum ósköp venjulegum
degi i lifi flugfreyjunnar.
Ferðinni er að þessu sinni
heitið til Kaupmannahafnar
með Flugleiðum.
Snyrtingin tekur
klukkutima
Yfirleitt vöknum við þrem
klukkutimum fyrir brottför,
þegar við förum til Kaup-
mannahafnar, þvi við þurfum
að mæta tæpum tveim timum
fyrir brottför Ut á flugvelli.
Oftastförum viði'baðog fáum
okkur góðan morgunverð, áður
en við tökum til viö að snyrta
okkur. En snyrtingin tekur um
klukkutima. Snyrtingin felst
einkum i þvi að liða hárið,
þannig að það liti þokkalega út.
Þær sem eru með sitt hár verða
aö setja hárið upp, þvi það er
ekki leyfilegt að hafa slegið hár
við vinnu um borð i vélinni.
Siöan snyrtum við vel á okkur
andlitið og neglurnar,
Fylla út
tollskýrslur
Frá Reyk javikurflugvelli
förum við með áhafnarbilnum
til Keflavikur, og tekur ferðin
um 30-40 minútur. Þegar til
Keflavikur er komið, þá byrjum
við á þvi að spyrja hve margir
farþegar eru um borð. Einnig
athugum við ýmsa pappira, eins
og erlendar tollskýrslur, en við
fyllum út mismunandi skýrslur
eftir þvi til hvaða landa við
erum að fljúga.
Við fáum upplýsingar um
hvort einhverjir krakkar eða
gamalmenni verði með i vélinni
eða aðrir, sem þurfi sérstakrar
aðstoðar með.
Trúlofuðu sig
i háloftunum
Oft kemur ýmislegt skemti-
legt fyrir um borð I vélunum. Til
dæmis, þá trúlofaði par sig um
borð, þegar við vorum á leiðinni
frá Spáni.
Trúlofunin átti sér stað, þegar
vélin var yfir borginni Coniac i
Frakklandi.
Þegar „turtildúfurnar” voru
búnar að setja upp hringana,
skáluðu allir farþegarnir I
coniaci fyrir þessu unga pari.
Um borð
Þegar við komum um borð I
vélina, þá byrjum við á þvi að
athuga hvort allt sé ekki hreint
og þokkalegt. Allur matur
ásamt dagblöðum á að vera
kominn um borð.
Eftir að búið er að kalla
farþegana um borð, þá hjálpum
við þeim að koma sér þægilega
fyrir.
Þegar fyrsta freyjan hefur
boöiö farþegana velkomna, þá
eru björgunarvesti og súrefnis-
grimursýndar og athugað hvort
allir hafi spennt sætisbeltin.
Eftir að vélin er komin i loftið,
þá byrjum við að hita ‘kaffi, og
kveikja undir inatnum, siðan
fylgjumst við með þvi hvenær
maturinn er orðinn nögu heitur.
Við Utbýtum dagblöðunvbæöi
Islenskum og erlendum, til far-
þeganna til að stytta þeim
stundirnar.
Fljótlega eftir flugtak er
borinn fram morgunmatur.
Tekur það siðan mest allan
timann meðan á ferðinni
stendur að bera fram matinn og
skenkja kaffi og te, eða láta far-
þegunum i té ýmsa aðra hluti,
sem þá vantar.
En við erum hættar að selja
sælgæti og vin i pelum um borð i
vélunum.
Þegar við nálgumst Kaup-
mannahöfn, þá er bökkunum
sem morgunverðurinn er fram-
reiddur á safnað saman.
Siðan athugum við hvort bélt-
in seu spennt, öllum blöðum er
safnaö saman. Allt vin ásamt
leifunum af matnum er læst
niöur, svo ekkert geti dottið
niður I lendingu.
Loks eru svo farþegar
kvaddir.
Farþegarnir eru við
þig eins og þú ert við þá
Yfirleitt eru farþegarnir
ákaflega vingjarnlegir. I stuttu
máli má segja, að þeir séu við
þig eins og þú ert við þá.
Stundum getur það þó komið
fyrir að farþegar eru meö
einhver ónot. Þá er það einkum,
þegar farþegar eru orðnir
drukknir eða hafa orðið fyrir
seinkunum, og ef til vill misst
af vél hjá einhverju öðru flug-
félagi þess vegna.
„Ef það enf„ stopp” i
Kaupmannahöfn förum
við út að skemmta
okkur eða heimsækjum
vini og kunningja.”
Þegar við erum lent i Kaup-
mannahöfn þurfum við að fylla
Vetrarbúningurinn eru buxur og frakki, hvoru tveggja i bláum lit.
Rullukragapeysa sem er rauð, slæða i fánalitunum, rauö húfa, blá
taska og rauðir skór. Hér er Soffia i vetrarbúuingí.
út pöntunarseðil fyrir mat,
drykk og glösum eða öðru sem
okkur vantar.
Ef við stoppum nótt i Kaup-
mannahöfn, þá byrjum við á
þvi, að spyrja hve margir far-
þegar verði næsta dag. Við
höfum pöntunarseðilinn tilbúinn
og fyllum út tollskýrslur.
Að þvi loknu förum við upp á
hótel, sem búið er að panta fyrir
okkur áður. Þar fær maður sér
eitthvað að borða eða fólk fer út
að skemmta sér i Tivoli eða á
diskotek. En auðvitað verðum
við að gæta þess að vera komin i
svefn á skikkanlegum tima, til
þess að við séum hressar og vel
starfshæfar daginn eftir.
Kaupum mat á
Kastrupvelli.
Stundum höfum við tima til
að versla daginn eftir, en það
kemur þó sjaldan fyrir. Þá
kaupum við inn einkum fyrir
heimilið eða þá fatnað. En fatn-
aður er i rauninni litið ódýrari I
Kaupmannahöfn en i Reykja-
vik. Það er bara meira vöru-
úrval.
Við kaupum yfirleitt mat á
Kastrupflugvelli, til þess aðhafa
með okkur heim, en þar er
ágætis matvörubúð. Þar
kaupum við einkum nýtt
grænmeti, góða osta og bacon.
1 hverri ferð, sem við förum
til útlanda megum við taka
heim með okkur 12 flöskur af
bjór og einn pela af sterku vini. í
staðinn fyrir einn pela af sterku
vfni megum við kaupa 1 flösku
af léttu vini. Siðan megum við
taka með okkur 5 pakka af
sigarettum.
1 frihöfninni hérna heima og
erlendis getum við keypt okkur
sælgæti og ilmvötn, en annað
getum við tæplega keypt þar,
þvi við megum ekki koma inn i
landiö með varning, sem kostar
meira en þrjú þúsund krónur,
samtals.
-- -nry;y-y- "
Hér er bæði sumar-og vetrarbúningur. Frakkann má auövitað nota
við dragtina lika. Ljósm.: LÁ.
„Við reynum aldrei að
smygla inn varningi”
Þó við höfum tækifæri til að
kaupa marga skemmtilega hluti
á erlendri grund, þá reynum við
aldrei að smygla inn varningi.
Bæði er það niðurlægjandi að
vera staðinn að verki og éinnig
eigum við á hættu að okkur
verði sagt upp störfum af þeim
sökum.
Mikið að gera
Flugfreyjustarfið er fjöl-
breytilegt og skemmtilegt, en
það er mikið að gera um borð á
meðan á flugferðinni stendur.
Það má segja að við séum á
ferðinni allan timann án nokk-
urra hvilda.
Þegar heim er komið fáum
við svo oft fri i einn eða tvo
daga eða fleiri, en siðan
„byrjar ballið” aftur.
Flugfreyjurnar hafa fengið nýjar svuntur þegar þær þjóna far-
þegunum um borð (mynd til vinstri) Svuntan er biá og þarna hefur
Valdis sett eina á sig. Á hinni myndinni er hún í dragtinni sem er
rauð. Blússan er hvit með rauðum doppum og skórnir eru bláir.
Dagur í lífi flugfreyju
rœtt við nokkrar
flugfreyjur
um starfíð