Vísir - 10.10.1975, Síða 3

Vísir - 10.10.1975, Síða 3
VÍSIR. Föstudagur 10. október 1975. 3 Er öryggi barnanna aukaatriði? Tillitsleysi sýnt kvœmdir umhverfis við fram- Fellaskóla Stórvirkar vinnuvélar hamast í kringum Fella- skóla. Við innkeyrshma-á bilastæðin vestan við skólann og rétt við gang- brautarþrengslin nýju, sem fleiri hundruð barna ganga yfir daglega er veriðað vinna með gröfu/ þarna á að koma snúningsplan fyrir strætisvagnana. „Ég tel mjög ósækilegt aö hafa snúningsplanið þarna vegna þeirrar hættu er börnun- um stafar af þvi, en ég var ekki spurður álits,” ságði Finnbogi Jóhannsson, skólastjóri Fella- skóla, er Visir ræddi við hann um þessar framkvæmdir. „Hér i skólanum eru um 1530 börn og meira en helmingur þeirra þarf að fara yfir götuna á leið i og úr skóla, auk annarra sem þarna eiga leið um. Strætisvagnastöðin er handan götunnar, þaðan kemur vagninn þvert yfir hana, rétt við gang- brautina sem börnunum er ætl- uð, inn á snúningsplanið og fer siðan niður i bæ. Ef ising er eða hálka, þarf ekki annað en að einhverjum skriki fótur eða vagninn renni til, þá er voðinn vis. Ég hef sótt um að fá gagnbrautarvörð þarna vegna skólabarnanna og geri mér vonir um að hann fá- ist,” sagði skólastjórinn. Skólavöllurinn opinn út á götu Ef gengið er suður fyrir skólann blasir við ógirtur leikvöllur skólabarnanna, sem liggur fast að Norðurfellinu, annarri af tveimur aðalum- ferðargötum Breiðholtsins. „Bráðabirgðagirðinguna, sem Hér á snúningsplaniðað koma, fast vift gangbrautina og innkeyrsluna á bflastæftið. Ljósm.Jim. var umhverfis skólavöllinn ,er búið að fjarlægja að mestu. Byrjað var að vinna að uppsetn- ingu nýrrar girðingar, en hlaup- ið frá þvi verki hálfkláruðu, þannig að völlurinn er opinn út á götu. Þótt kennarar hafi gæslu á vellinum i friminútum er erfitt að koma i veg fyrir að börn i leik hlaupi út á götuna.” Milljónahúsnæði stendur ónotað Vestan og norðan við iþrótta- húsið nýja er jarðýta að bylta til moldinni, verið er að undirbúa malbikun á lóðinni. „Iþróttahúsið var tilbúið til notkunar af hálfu byggingar- verktaka 1. september,” sagði Finnbogi. „En sá verktaki sem tók að sér smiði og uppsetningu áhalda i húsið, hefur að öllum likindum ekki staðið við gerða samninga, þvi enn vantar hluta af kennslutækjum. Engin iþróttakennsla er hafin i skólanum og eru pó tæpar fimm vikur siðan 'iann byrjaði i haust. Það er þó raunarekki einungis tækjaskorturinn sem kemur i veg fyrir það. Meðan malbikun á skólalóðinni er ekki lokið er ekki hægt að taka húsið i notkun. Það yrði stórskemmt eftir fyrsta daginn, þar sem vaðið er i sandi og moldarleðju alveg upp að dyrum.” Tiliitsleysi Allar þessar framkvæmdir umhverfis skólann hófust ekki fyrr en um sama leyti eða eftir að skólinn tók til starfa en þeim hefði vissulega átt að vera lokið fyrir fyrsta september. Það skal tekið fram að vinna við strætisvagnaplanið, girð- inguna umhverfis völlinn og malbikunina á lóðinni, er öll unnin á vegum borgarinnar. „Ég kveð ekki fastar að orði en það, að mér finnst þeir sem standa að þessum framkvæmd- um sýna tillitsleysi,” sagði Finnbogi Jóhannsson, skóla- stjóri Fellaskóla, að lokum. — EB — Aftan vift þennan unga hjólreiftamann sjást naktir staurar nýju girðingarinnar en þar á bak vift stubbur Moldarleftjan, sundursporuft af jarftýtubeltum, liggur upp aft dyr- af þeirri gömlu sem búift er aft fjarlægja aft xnestu. Ljósm. Jim. um nýja iþróttahússins. Ljósm. Jim. Lífeyrissjóðirnir eru að verða gagnslausir Þing Landssambands fslenskra verslunarmanna var haidift aft Höfn í Hornafirfti dagana 3.-5. október s.l. Helstu mái þingsins voru launa- og kjaramál og voru samþykktar fjölmargar ályktanir i hinum ýmsu málum. M.a. var gerð itarleg samþykkt i þremur liðum um lifeyrismál. Telur þingið að taka eigi ellilif- eyristryggingarkerfið til at- hugunar, þar sem núverandi skipan þess sé bæði ófullnægjandi og ranglát. Var það hugmynd þingfulltrúa að i framtfðinni yrðu almennu tryggingarnar grunn- eining og við bættust siðan lif- eyrissjóðirnir þaðan sem sjóðs- félagar fengju greitt i réttu hlut- falli við ellilifeyrisréttindin að af- lokinni starfsævi. Þing LIV taldi og að leggja yrði áherslu á að sjóðirnir gætu staðið við hlutverk sitt, en við núverandi verðbólgu og að óbreyttu skipu- lagi sjóöanna eru þeir að verða lifeyrisþegum gagnslausir vegna verðrýrnunar peninganna. Þing LIV mótmælir harðlega þeim fullyrðingum að kjara- samningarnir i febrúar þar sem samið var um 31-45 þúsund króna mánaðarlaun hafi valdið þeirri verðbólgu sem þjóðin hefur átt viö að striða. Þingið hvetur til þess að hafin sé barátta fyrir þvi að launataxt- ar sem um er samið i dagvinnu séu þannig að meðalfjölskylda geti lifað af dagvinnutekjunum einum á sómasamlegan hátt. I lok ályktunarinnar um kjara- mál voru settar fram ýmsar sér- kröfur LIV sem leggja beri áherslu á i væntanlegum samningum. Má nefna kröfu um jafnrétti karla og kvenna, öll yfirvinna greiðist með einu álagi, orlof verði 24 dagar og laugardagar ekki taldir með orlofi og aö verslunar-og skrifstofufólk fái sjúkrasjóð likt og aðrar stéttir. Loks voru samþykktar ályktan- ir um landhelgismál og um Félagsmálaskóla alþýðu. EKG

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.