Vísir - 11.10.1975, Síða 17
VÍSIR. Laugardagur 11. október 1975.
17
í DAG | D KVÖLD | rzj □AG | Q KVÖLD n □AG |
Liv Ullman ásamt dóttur sinni, sem hún eignaðist með þeim fræga Ingmar Bergman.
LITIÐ INN HJÁ UV ULLMAN
— norskur blaðamaður rœðir við þessa ágœtu leikkonu
Norska leikkonan,Liv Ullman,
er okkur að góðu kunn. Það
nægir að nefna myndaflokkinn
Vesturfarana, sem sýndur var
hér i sjónvarpinu við miklar
vinsældir. Þar lék Liv aðalhlut-
verkið ásamt Max Von Sydow.
Sjónvarpið sýnir annað kvöld
mynd um þessa ágætu leikkonu.
„Litið inn hjá Liv Ullman” kall-
ast þátturinn. Norskur blaða-
maður ræðir við Liv að lokinni
frumsýningu á Broadway á
BrUðuheimili Ibsens. Þar
spreytti Liv sig á hlutverki
Noru.
Við höfum séð Liv i fleiri
myndum i Islenska sjónvarpinu,
t.d. f „Þáttum úr hjónabandi”.
Liv hefur mikið komið við sögu i
Sviþjóð. Margir hafa haldið að
hún væri þar fædd en svo er
ekki, þvi hún er fædd og uppalin
i Noregi.
Liv á eina dóttur. Hana eign-
aðisthún með þeim fræga Ing-
mar Bergman, sem tæpast þarf
að kynna nánar. Samband
þeirra Liv og Ingmars för út um
þúfur, en hún hefur leikið i
myndum hans.
—EA
ÚTVARP •
Laugardagur
11.október
7.00 Morgunútvarp Veður-
fregnir kl. 7.00, 8.15og 10.10.
Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og for-
ustugr. dagbl), 9.00 og 10.00.
Morgunb.æn kl. 7.55.
Morgunstund barnanna kl.
8.45: Björg Árnadóttir les
söguna „Bessi” eftir Doro-
thy Canfield i þýðingu Silju
Aðalsteinsdóttur (6). Til-
kynningar kl. 9.30. Létt lög
milli atriða. óskalög sjúk-
linga kl. 10.15: Kristin
Sveinbjörnsdóttir kynnir.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar. Tónleikar.
14.00 A slóðum Stephans G.
Annar þáttur Agnars
Guðnasonar með frásögn-
um og viðtölum við Vestur-
íslendinga.
15.00 Miðdcgistónleikar Artur
Rubinstein og hljómsveit
undir stjórn Alfred Wallen-
steins leika Konsert fyrir
pianó og hljómsveit nr. 20 i
d-moll eftir Mozart. Fil-
harmoniusveitin i Vin leikur
Sinfóniu nr. 8 i F-dúr op. 93
eftir Beethoven, Hans
Schmidt-Isserstedt stjórn-
ar.
16.00 Fréttir.
16.15 Veðurfregnir. Tónleikar.
16.30 Þingsjá Kári Jónasson
sér um þáttinn.
17.00 Popp á laugardegi
17.50 Siðdegissöngvar. Til-
kynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
19.00 Fréttir. Fréttaauki.
19.35 „Lifið sigur ber” Ljóða-
stund með Daniel Á.
Danielssyni. Arnar Jónsson
leikari sér um þáttinn.
20.00 Hljómplöturabb Þor-
steinn Hannesson bregður
plötum á fóninn.
20.45 Utúrdúrar úr Landrétt-
um Þáttur i umsjá Stein-
unnar Sigurðardóttur.
21.15 Promenadehljómsveitin
i Berlin leikur lög eftir
Suppé, Waldteufel, Millök-
er, Eilenberg og Strauss.
21.45 Úr ljóðum Jakobinu
Johnson Halla Guðmunds-
dóttir les.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Danslög.
23.55 Fréttir i stuttu máli.
SUNNUDAGUR
12.október.
8.00 Morgunandakt. Herra
Sigurbjörn Einarsson
biskup flytur ritningarorð
og bæn.
8.10 Fréttir og veðurfregnir.
8.15 Létt morgunlög.
9.00Fréttir. Útdráttur úr for-
ustugreinum dagblaðanna.
9.15 Morguntónleikar.. (10.10
Veðurfregnir). „Missa sole-
mnis” i D-dúr op. 123 eftir
Ludwig van Beethoven.
Flytjendur: Elisabeth
Söderström, Marga Höff-
gen, Waldemar Kmentt,
Martti Talvela, kór og
hljómsveitin Nýja-
Philharmonia, Otto
Klemperer stjórnar.
11.00 Messa i Dómkirkjunni
Prestur: Séra óskar J.
Þorláksson. Organleikari:
Ragnar Björnsson.
12.15 Dagskráin. Tónleikar.
12.25 Fréttir og veðurfrégnir.
Tilkynningar. Tónleikar.
13.20 í fylgd með fullorðnum
Rósberg G. Snædal rit-
höfundur spjallar við
hlustendur.
13.40 Harmonikulög. Veikko
Ahvenainen leikur.
14.00 Staldrað viðá Vopnafirði
— annar þáttur Jónas
Jónasson litast um og
spjallar við fólk.
15.00 Miðdegistónleikar: Frá
tónlistarhátfðinni i SaIz-
burg. Flytjendur:
Mozarteum-hljómsveitin,
Krisztina Laki sópran og
Paul Badura-Skoda pianó-
leikari. Stjórnandi:Leopolds
Hager. Flutt er tónlist eftir
Wolfgang Amadeus Mozart.
a. Sinfónia i D-dúr (K97). b.
Pianókonsert i F-dúr
(K459). c. Tvær konsertarí-
ur (K272 og K538) fyrir
sópran og hljómsveit. d.
Sinfónia i Es-dúr (K132).
16.15 Veðurfregnir. Fréttir.
16.25 Alltaf á sunnudögum
Svavar Gests kynnir lög af
hljómplötum.
17.15 Þættir um Jóhannes
Kjarval.Birgir Kjaran hag-
fræðingur flytur.
18.00 Stundarkorn með gitar-
ieikaranum Juiian Bream.
Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.25 Til umræðu: Herinn —
þýðing hans og staða i vit-
und þjóðarinnar Baldur
Kristjánsson sér um þátt-
inn.
20.00 íslensk' tónlist Jórunn
Viðar leikur „Svipmyndir
fyrir pianó” eftir Pál tsólfs-
son.
20.30 Skáld við ritstjöm .Þætt-
ir um blaðamennsku
Einars Hjörleifssonar,
Gests Pálssonar og Jóns
Ólafssonar i Winnipeg. —
Fjórði þáttur. Sveinn Skorri
Höskuldsson tók saman.
' Lesarar með honum: Óskar
Halldórsson og Þorleifur
Hauksson.
21.15 Kvöldtónlcikar. Gérard
Souzay syngur lög eftir
Franz Schubert, Hugo Wolf
og Robert Schumann,
Dalton Baldwin leikur á
pianó.
21.45 „Júli”, smásaga eftir
Gunnar Finnsson Sigurður
Karlsson leikari les.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Danslög.
Hulda Björnsdóttir dans-
kennari velur lögin.
23.25 Fréttir i stuttu máli.
Dagskrárlok.
Sjónvarp sunnudag kl. 21.25:
HVAR ER
SHIRLEY?
— nœst síðasti þátturinn í mynda-
flokknum „Allra veðra von"
Nú er komið að næst siðasta
þættinum i myndaflokknum
Allra veðra von. Þátturinn heit-
ir Hvar er Shirley?
Við segjum ekkert um það
hvort. Shirley finnst eða ekki.
Það eina sem við segjum er að
leitað verður að henni....
Við fylgjumst einnig með
Andreu sem liggur á sjúkrahús-
inu. Kosningabaráttan kemur
lika við sögu.
Gamli kærastinn hennar
Andreu kemur i heimsókn, en
það verður ekkert meira á milli
þeirra. En móðir hennar kemur
einnig. Hún hefur i' ógáti opnað
bréf til Andreu, þar sem þær
hafa sömu upphafsstafi. Bréfið
reynist vera frá Philip.
Móður hennar finnst þetta
mikið frumhlaup, og Andrea
næstum rekur hana á dyr.
Við fylgjumst svo með ýmsu i
sambandi við kosningabarátt-
una. Og nú fara linurnar brátt
að skýrast.
—EA
Sjónvarp kl. 20.30:
Fjörugt hjá
lœknum í kvöld
Það verðúr fjörugt hjá lækn-
unum i kvöld. Þeir fást allir við
kennslu á spitalanum. i hópi
nemendanna er einn sem gerir
hverja skyssuna á fætur ann-
arri. Hann virðist ekkert geta
gert eins og til er ætlast.
Eitt sinn þegar kennsla stend-
ur sem hæst yfir, kemur rektor
Háskólans i heimsókn á spital-
ann. Erindið er að ræða við
Loftus og þá um leið um vænt-
anlega riddaranafnbót hans.
Loftus vill gera allt til þess að
vekja aðdáun rektors og flýta
fyrir nafnbótinni. Hann býður
honum þvi á stofugang -ásamt
kennurum og stúdentum.
Og þá fer að ganga á ýmsu....
‘ —EA
Útvarp kl. 19.35 og 21.45:
Viltu hlusta
— kveiktu þá á útvarpinu í kvöld
Sá sem hefur gaman af að
hlusta á ljóðalestur ætti að
kveikja á útvarpinu i kvöld.
„Lifið sigur ber” heitir fyrri
þátturinn sem við visum á. Þar
er á ferðinni ljóðastund með
Daniel Á. Danielssyni. Arnar
Jónsson, leikari, sér um þáttinn.
Ljóðin eru ekki þar með búin.
Klukkan 21.45 i kvöld hefst svo
þáttur þar sem Halla
Guðmundsdóttir les úr ljóðum
Jakobinu Johnson. Þáttur Am-
ars Jónssonarhefst nokkru fyrr.
eða klukkan 19.35..
—EA