Vísir - 13.10.1975, Page 3
Vlsir. Mánudagur 13. október 1975.
3
Landhelgismál og efnahags-
vandi helstu mál þingsins
Setning Alþingis teist á ári
hverju með stærri og eftirtekt-
arverðari viðburðum þjóðlifs-
ins. Sumir telja setningu Al-
þingis lika merkan atburð þar
scni Alþingi sé lifæð þjóðfélags-
ins. Aðrir hrista hausinn og
kveða upp þann dóm að löggjaf-
arsamkunda þjóðarinnar sé
aðeins viðurværi máigiaðra
inanna sem iðki þrætubókarlist
i erg og grið ölluin tii ama og
engum til gagns.
Hið síðarnefnda var alls ekki
það sem blasti við blaðamanni
Visis er hann leit við i Alþingis-
húsinu við setningu þingsins.
Kampakátir þingmenn heilsuð-
ust glaðir i bragði og gömul
misklið virtist gleymd og graf-
in.
Áður en önnum kafnir þing-
menn fóru til starfa i þingflokk-
unum tókst okkur að ná tali af
nokkrum þeirra og spyrja þá
hver þeir teldu verða helstu mál
þingsins.
Mörg inál biða
úrlausnar þingsins
„Það eru mörg mál sem biða
úrlausnar þingsins” sagði
Sigurlaug Bjarnadóttir, þing-
maður Sjálfstæðisflokksins.
„Fyrst er að nefna landhelgis-
málið. Það er von min að við ná-
um sem bestum samningum við
þá sem stundað hafa veiðar við
tslandsstrendur. Þrátt fyrir sið-
ustu viðbrögð viðsemjenda okk-
ar tel ég ekki ástæðu til svart-
sýni og þaðan af siður að við
megum láta þau verða til þess
að draga úr okkur kjarkinn.
Okkar styrkleiki er einkum
fólginn i friðunarsjónarmiðum
og hve fiskveiðar eru stór hluti i
þjóðarauðnum. Vegna þessara
sterku raka hljótum við að vera
bjartsýn.”
Varðandi efnahagsmálin taldi
Sigurlaug útlitið vera svart og
þingmanna biðu ekki skemmti-
ieg verkefni.
„Þó er ekki ástæða til svart-
sýni. öll él birtir upp um siðir.
Ef við snúum bökum saman og
tökum á vandanum af raunsæi
er ekki ástæða til svartsýni.
Enda þótt efnahags- og land-
helgismál verði timafrekust og
Alþingi hvað þyngst i skauti,
vona ég að önnur þörf og góð
mál kafni ekki i umræðum og
þvargi,” sagði Sigurlaug
Bjarnadóttir að lokum.
Landhelgis og efna-
hagsmál helstu mál
þingsins
„Landhelgis- og efnahagsmál
verða helstu mál þingsins ”
sagði Jón Skaftason þingmaður
Framsóknarflokksins.
„Enn er ekki hægt að skýra
frá afstöðunni til samninga i
landhelgisdeilunni þar sem
málið er nú til umræðu i stjórn-
arflokkunum.”
I sambandi við efnahagsmál-
in sagði Jón að fjárlögin myndu
ekki hækka minna nú, frá þvi
sem var i fyrra en sem næmi
dýrtiðaraukningunni.
Að lokum sagði Jón Skafta-
son: „Efnahagserfiðleikar þeir
sem nú er við að eiga eru óvenju-
miklir og engin teikn um að út-
flutningsverðlag fari hækkandi
á næstunni. Það er þvi ljóst að
Alþingis biður erfitt verkefni.”
Sigurlaug Bjarnadóttir
Skattamálin verður
„Vegna hins slæma efnahags-
ástands verður setning fjárlaga
mjög vandasöm nú. Vaninn er
að fjárlagafrumvarpið sé lagt
fram i byrjun þings og það siðan
rætt. Þvi má búast við miklum
umræðum fljótlega i byrjun
þings.” Þetta voru orð Magnús-
ar Torfa Ólafssonar þingmanns
Samtakanna, er hann var
spurður um hver hann teldi að
yrðu helstu mál þingsins.
Þvi næst sagði Magnús: „Á
þessu þingi verður að taka
skattamálin til sérstakrar at-
hugunar i stað þess að tjasla við
þau eins og áður hefur verið
gert. Þau mótmæli sem heyrst
hafa viðs vegar af að landinu
eru að minum dómi uppreisn
skattborgaranna gegn gloppum
i skattkerfinu.
Úrfærsla landhelginnar mun
og koma á dagskrá þingsins og
verður þá væntanlega rætt um
hvort og hvenær semja eigi við
útlendinga.
En annai s munu þessi mál öll
skýrast eftir stefnuræðu forsæt-
isráðherra og þær umræður sem
fylgja i kjölfarið.”
Jón Skaftason
Kikíssl jórnin
.»ili slærstum hluta
. erúholgunnar
„Dýrtiðaraukningin nam
rúmum 50% á ári. Og stærsti
hlutinn er verk núverandi riki-
stjórnar ” sagði Lúðvik Jóseps-
son þingmaður Alþýðubanda-
lags.
„Ráðstafanir rikisstjórnar-
innar, eins og gengisfelling,
hækkun söluskatts og álagt
vörugjald eru orsök u.þ.b. 40%
verðbólgunnar, en 10-12% geta
talist utanaðkomandi áhrif.
Þannig má segja að stefna
stjórnarinnar hafi verið verð--
bólguhvetjandi! Siðan sagði
Lúðvik Jósepsson:
„Nú er það spurning hvort rik
isstjórnin muni taka upp nýja
stefnu eða verður farin önnur
kollsteypa.”
Um landhelgismálið sagði
Lúðvik: „Það hefur komið skýrt
fram að innan rikisstjórnarinn-
ar eru rik sjónarmið fyrir hendi
að vilja semja um ný friðindi út-
lendingum til handa, jafnvel
innan 50 milnanna.
Þetta er alveg fráleitt þar
sem við höfum miklu betri að-
stöðu en áður og það á alls ekki
art athuga vel.
— segja
þingmenn
úr öllum
flokkum
að ljá máls á undanþágu til
handa þeim sem brjóta lög okk-
ar.
Það er hlutverk og skylda
Alþingis að mót skýra og
einarða stefnu i þessum mál-
um.”
. .1' ‘lagsmáliii veröa
.H'.irlega á haugi”:
„Að minum dómi verða fé-
lagsmálin ofarlega á baugi i
þinginu i vetur. A félagsmála-
löggjöfinni er nauðsynlegt að
gera verulegar breytingar til
þess að koma til móts við bar-
áttu hinna ýmsu starfsgreina og
öðlast þannig frið á vinnumark-
aðnum.”
Þannig mæltist Eggert G.
Þorsteinssyni alþingismanni er
Visir hafði tal af honum i gær.
„Efnahags- og landhelgis-
málin verða i fyrirrúmi eins og
eðiilegt er. Við höfum enn ekki
mótað afstöðu okkar til samn-
inga en fulltrúi Alþýðuflokksins
i landhelgisnefnd og utanrikis-
nefnd hefur lýst tregðu okkar til
samninga við útlendinga.
Það er von min að þjóðarein-
ing haldist i landhelgismálinu,”
sagði Eggert G. Þorsteinsson að
lokum. EKG
I.úðvik Jósepsson
Allmiklar breytingar
í poppheiminum
hérlendis
Tvœr nýjar
popphljóm-
sveitir og
ein rœki-
lega upp-
stokkuð
Tvær nýjar popphljómsveitir
og sú þriðja,rækiiega uppstokk-
uð,eru senn tiibúnar i siaginn á
Stór-Reykjavikursvæðinu.
Ari Jónsson, fyrrum Borgis og
Roof Tops trymbill snýr nú aft-
ur úr stuttu frii sinu frá hljóð-
færaleik ásamt þremur öðrum
tónlistarmönnum sem að
undanförnu hafa einnig gert hlé
á hljóðfæraleik sinum. Eru það
Kristján Blöndal —áður Birta
og Borgis) sem leikur á gitar,
Clyde Barrow —áður JUdas)
Vildarkjör nokkurra embœttismanna ríkisins:
GREIÐA ALLT NIÐUR í
ÞÚSUNDKALL í HÚSA-
LEIGU Á MÁNUÐI
einniggitarleikari, og Jón Pétur
(áður Roof Tops) sem mun leika
á bassa.
Þeir eru nýlega farnir að æfa
af kappi en hljómsveitin var
nafnlaus er siðast fréttist. Þeir
munu að öllum likindum leggja
megináherslu á rokk annars
vegar og diskótónlist hinsvegar.
Alfa Beta heitir hljómsveit
sem nú mun fullmótuð og til i
allt. 1 henni eru Atli Viðar Jóns-
son (áður Birta og Borgis, broð-
ir Ara) og þenur hann bassann,
Guðmundur Haukur —áður
Roof Tops) sér um sönginn og
trommurnar lemur Haraldur
nokkur og er ekki full kunnugt
um hvaða hljómsveit hann var i
siðast.
Þá mun Brimklóin gamla
vera að hrista af sér slenið með
Bjarka norðlending Tryggvason
i broddi fylkingar. Hann mun
sjá um bassann auk þess sem
hann verður söngvari hljóm-
sveitarinnar. Bjarki hefur áður
leikiðm.a.með Pólo og Ingimar
Eydal. Guðmundur Benedikts-
son leikur á orgel, en hann var
áður I Mánum frá Selfossi. Arn-
ar Sigurbjörnsson og Ragnar
Sigurðsson eru þeir einu sem
eftir eru að gömlu Brimkló og
leikur Arnar á gitar en Ragnar
„Gösli” Sigurðsson á trommur.
Ragnar var eitt sinn trymbill i
Mánum, áður en hann gekk i
Brimkló.
Það er athyglisvert, að allir
hljóðfæraleikarar Borgis hafa
nú hafið hljóðfæraleik með öðr-
um hljómsveitum. Orgelleikari
Borgis, Pétur Hjaltested leikur
nú með Paradis. —GSL
Nokkrir embættisinenn rikis-
ins búa cnn við þau vildarkjör
að grciða ekki ncma þúsund
krónur, eða jafnvel minna, i
húsaleigu á mánuði. Þetta eru
þcir mcnn sem fluttu inn I emb-
ættisbústaði rikisins áður en ný
reglugerð um þá tók gildi 1970.
Þessum embættismönnum fer
þó óðum fækkandi. Þegar þeir
láta af störfum, verður eftir-
maðurinn sem notar embættis-
bústaöinn að greiða drjúga
leigu, i hlutfalli við brunabóta-
mat.
Þeir embættismenn sem
fluttu inn i bústaði rikisins fyrir
1970, gerðu sérsamninga hver
fyrirsig við rikiö um húsaleigu.
Það var fastákveðin húsaleiga I
krónutölu. Sú tala hefur siðan
ekkert breyst. Þess vegna er
leigan svo lág sums staðar.
tbúöarhúsnæði I eigu rikisins
á Stór-Reykjavikursvæðinu og á
Akureyri, fer óðum fækkandi.
Enda er það i samræmi við þá
stefnu, að þar sem eðlilegur
markaður hefur skapast fyrir
ibúðarhúsnæði til kaups eða
leigu, skuli selja rikisibúðir við
fyrsta tækifæri.
I Reykjavik eru fimm emb-
ættisbústaðirenn i eigu rikisins.
Einn þeirra, við Engihlið 9,
verður seldur innan skamms.
Hinum fjórum hafa prestar af-
not af. Þeir eru: Ragnar Fjalar
Lárusson, Jón Þorvarðarson,
Garðar Svavarsson og Arelius
Nielsson.
t Hafnarfirði er enn til einn
embættisbústaður, sem Einar
Ingimundarson bæjarfógeti
hefur. Á Akureyri á rikið enn
prestsetur og læknabústað.
1 öðrum byggðarlögum á rikið
fjölmarga embættisbústaöi.
Þeir,sem þar búa, greiða húsa-
leigu eftir þvi hversu afskekkt
byggðin er talin, Þvi afskekkt-
ari, þvi iægri leiga. Lægst er
ieigan hjá vitavörðum, aöeins
tiu prósent af leigunni i Reykja-
vfk. Á flestum stöðum utan Suð-
urlandsundirlendisins er leigan
40 til 50 prósent af leigunni i
Reykjavlk.
íbúðarhúsnæði I eigu rikisins
er aðallega fyrir kennara,
lækna, sýslumenn, vitaverði,
simstöðvastjóra og fieiri.
Samkvæmt reglugerð eiga
þeir sem búa I rikisibúð aö
greiða hita og rafmagn. Sums
staðar háttar þó þannig, að
embættisbústaður er samfastur
starfshúsnæði viðkomandi emb-
ættismanna. Er þá oft sam-
eiginlegt rafmagn og hiti.
Greiða embættismennirnir þá
liklega hluta þess kostnaðar.
—ÓII