Vísir - 13.10.1975, Side 9
Vísir. Mánudagur 13. október 1975.
9
Stói gjöf frá
ausfur-þjóðverjum
Dagana 13.-17. september
dvöldust hér tveir menn frá
FDGB, Alþýðusambandi
Austur-Þýskalands i boði Alþýðu-
sambands Islands.
Meðan þeir dvöldust hér ræddu
þeir við forystumenn ASÍ, fóru til
Vestmannaeyja, ferðuðust um
Suðurland og ræddu við fólk á
vinnustöðum. Þá afhentu þeir
formlega 4 verksmiðjubyggð hús
sem FDGB hefur gefið islenskum
alþýðusamtökum með tilliti til
Vestmannaeyjagossins.
A grundvelli sameiginlegrar
yfirlýsingar ASl og FDGB sem
staðfest var af miðstjórnum sam-
takanna 1973, munu bæði samtök-
in leita eftir virkri samvinnu á
öllum þeim sviðum þar sem sam-
tökin telja sig hafa hagsmuna að
gæta. Bæði samtökin telja sig
eiga að sjá svo um að andi sam-
þykkta Helsinkiráðstefnunnar
komi fram i orði og verki.
v'iMintía- otí tíisíi-
111s it*ii’"(*iitlnr þinga
Aðalfundur Sambands veitinga-
og gistihúsaeigenda var haldinn á
Akureyri dagana 6. og 7. október
sl. Fundinn sóttu 27 fulltrúar viðs-
vegar að af landinu.
Fundurinn átaldi sinnuleysi
stjórnvalda i málefnum Hótel- og
veitingaskólans og hvatti
menntamálaráðherra til þess að
beita sér fyrir þvi að hraðað yrði
iramtiðaruppbyggingu skólans.
í íundarlok fór fram kjör
stjórnar og var formaður ein-
róma kjörinn til tveggja ára, Þor-
valdur Guðmundsson, forstjóri.
I’vrirlestur
sr. Valdimars J.
Kvlaiuls
Séra Valdimar J. Eylands mun
halda fimm fyrirlestra i boði Guð-
fræðideildar Háskóla islands.
Fjalla fyrirlestrarnir um sögu
kirkjufélagsins i Vesturheimi.
Fyrirlestrarnir verða haldnir i V.
kennslustofu Háskólans næstu
þriðju- og föstudaga kl. 10.15 f.h.
og hefst sá fyrsti þriðjudaginn 14.
október.
öllum er heimill aðgangur.
(Frétt frá Háskóla Islands)
Aðstaða til
kvikmyndunar
Vilhjálmur Knudsen kvik-
myndagerðarmaður opnar i vetur
fyrir almenning vinnustofu til
kvikmyndagerðar að Brautar-
holti 18 i Reykjavik.
Á vinnustofunni eru helstu tæki
til 16 mm kvikmyndagerðar:
Klippiborð, yfirfærslu- og tón-
setningartæki, sýningarvélar,
ljósabúnaður, bækur og timarit.
Þessi aðstaða verður fyrst um
sinn opin á hverjum mánudegi kl.
20—23. Siðasti dagur fyrir jól sem
vinnustofan verður opin er mánu-
daginn 19. janúar.
Aðgangur að vinnustofunni er
ókeypis.
Vilja niðurfellingu tolla
og aðflutningsgjalda af
slökkvi- og björgunar-
búnaði.
Landssamband slökkviliðs-
manna hélt þing sitt fyrir nokkr-
um dögum. A þinginu var fjallað
um launamál, en mikill timi fór i
umræður um heilbrigðis- og ör-
yggismál. Óskað var eftir þvi, að
yfirvöld brunamála i bæjar- og
sveitarfélögum lagfæri þau nú
þegar. Samþykkt var áskorun til
rikisst jórnarinnar um að hún felli
nú þegar niður tolla og aðflutn-
ingsgjöld af slökkvi- og björg-
unarbúnaði.
Færðar voru þakkir þeim stofn-
unum, sem mest hafa stuðlað aö
þjálfun og búnaði slökkviliða, en
það eru Innkaupastofnun rikisins,
Brunamálastofnun rikisins og
Samband islenskra sveitarfélaga.
Fráfarandi formaður, Guð-
mundur Haraldsson, gaf ekki kost
á sér til endurkjörs, og var Ar-
mann Pétursson kjörinn i hans
stað.
VEIZTU EITT?
Þegar þú hringir eöa kemur til okkar, þá ertu i beinu sam-
bandi við springdýnuframleiðanda. 1
Springdýnur er
aðeins notað 1. flokks efni, sem þar af leiðandi tryggir
margra ára endingu i upprunalegum stlfleika, sem þú
hefur valið þér.
Næst þegar þú kaupir springdýnur athugaðu hvort þær
eru merktar
J&'Mt Springdýnur
Við höfum einnig mjög gott úrval af hjóna- og einstakl-
ingsrúmum,i svo að ef þig vantar rúm eða springdýnur,
þá gleymdu ekki að hafa samband við okkur. Viö erum
alltaf reiöubúin til að aöstoða þig að velja réttan stifleika á
springdýnum.
W&Mt Springdýnur
Helluhrauni 20, Sími 53044.
Hafnarfirði
Esperonto
BYRJENDAFLOKKUR hefst fimmtud.
16. okt. kl. 19,30 i stofu 32 i Laugalækjar-
skóla.
FRAMHALDSFLOKKUR hefst sama dag
kl. 21,05 i sömu stofu.
Verktakar —
Vinnuvélaeigendur
Liguin fyriríiggjandi Ingersoll Rand
íh*igliainra og skothoiubora i ýmsum
.ueiöum og geröum. (Einnig hljóðlausa
skotholubora). Verð mjóg hagstælt.
Lágu haustfargjöldin
okkar
lengja sumaríð
hjá þér
30% lækkun á fargjöldum býður upp ásumarauka fyrir
okkartil Evrópu á tímabilinu þig í stórborgum Evrópu.
Ið.september til 31.október,
FUUGFÉLAG LOFTLEIOIR
ISLANDS
Félög með eigin skrifetofur í 30 stórborgum erlendis