Tíminn - 26.10.1966, Síða 5

Tíminn - 26.10.1966, Síða 5
HTðVlKUDAGUR 26. október 1966 5 Útgefandi: FRAMSÓKNAR'FLOKKURINN Framkvæmdastjóri: Kristján Benediktsson. Ritstjórar: Pórarinn Þórarinsson (áb), Andrés Kristjánsson, Jón Helgason og Indriði G. Þorsteinsson. Fulltrúi ritstjórnar: Tómas Karlsson Atig- lýsingastj.: Steingrímur Gíslason. Ritstj.skrifstofui i Eddu- húsinu, símar 18300—18305. Skrifstofur: Bankastræti 7. Af- greiðslusími 12323. Auglýsingasími 19523. Aðrar skrifstofur, simi 18300 Áskriftargjald kr. 105.00 á mán innanlands. — í lausasölu kr. 7.00 eint. — Prentsmiðjan EDDA b. f. Uppgjöf eða átak í vegamálum Ástandið í vegamálum landsins er nú orðið þannig, að við eigum aðeins um tvennt að velja — annað hvort að streitast við að halda við ónýtum þjóðvegum, sem þola ekki hina sívaxandi umferð, eyða í það óhóflega miklu fé, en hljóta þó að þokast aftur á bak, eða að efna nú þegar til stórátaks í því skyni að koma varanlegu slitlagi á fjölförnustu vegina. Hér er um uppgjöf eða átak að velja. Sú ófremdarsaga hefur gerzt síðan 1958, að ríkið hefur tekið í skatta af umferð og farartækjum á þriðja milljarð króna, umfram það, sem lagt hefur verið til vega á sama tíma. F -'rð Keflavíkurvegar hófst varanleg vegagerð og til þe æypt til landsins stórvirk vegagerðartæki. En í stað þess að halda áfram, þegar honum lauk, voru hin stórvirku tæki stöðvuð og standa enn, en ríkisstjórnin hefur boðað þriggja ára stöðvun í varanlegri vegagerð í landinu en mokar æ hærri fjárhæðum sem skattgjöldum af umferðinni í almenna eyðslu ríkissjóðs. '• •• - * n I ? * Framsóknarmenn hafa hvað eftir annað gagnrýnt þesa geigvænlegu þróun harðlega og flutt þing eftir þing tillögur um framlög til varanlegra vegagerða og mót mælt harðlega, þegar ríkisstjórnin tók síðasta vegaféð út af fjárlögunum í fyrra. Nú hefur Helgi Bergs flutt í efri deild ásamt fleiri þingmönnum Framsóknarflokksins í deildinni. frumvarp um það, að leyfisgjaldi af innfluttum bifreiðum, sem áætlað er 170 millj. kr. á næsta ári, verði ráðstafað ó- skertu til nýbygginga vega úr varanlegu efni. í fram- söguræðu sinni fyrir frumvarpinu lýsti Helgi því með glöggum tölum og rökum, hvernig ástandið er orðið. Hann sagði, að á vegakerfi landsins væru nú 30—40 þús bifreiðar og væri verðmæti þeirra 6—7 milljarðar króna, og svonefndar hraðbrautir, eða vegir, sem 1—10 þús. bílar fara um á dag, eru nú taldar 350 km. Þessir vegir eru um 4% af lengd vegakerfisins, en um helmingur alir ar umferðarinnar fer um þessa vegakafla. Sparnað af því, að þessi helmingur umferðarinnar væri um vegi með varanlegu slitlagi, 1 stað hinna holóttu og ónýtu malarvega, er varlega áætlaður um 400 millj. á ári á farartækjunum einum á ári, en við bætist mikill sparnaður í viðhaldi þessara vega. Gert er ráð fyrir að umferðin um þjóðvegina tvöfaldist á úæstu tíu árum, og því er talið, að þjóðin — einstaklingar og ríki — gæti sparað sér 5—6 þús. milljóna kostnað á næsta áratug, ef hún gæti nú þegar lagt þessa 350 km varanlegra vega- Sést hér, hvað í húfi er, og hve geigvænlegur sá boðskapur er að stöðva varanlega vegagerð næstu þrjú ár Helgi benti á það, hve mikil fjarstæða væri að segja, að fjárhagsgr.undvöll skorti til þess að halda áfram var- anlegri vegagerð, þar sem ríkið hefði tekið og tæki ár- lega allt að 400 millj. af umferðinni umfram vegafé. og þótt þessar 170 millj. væru þegar teknar til varanleerar vegagerðar á næsta ári, héldi ríkið samt a. m.k. 200 milljónum eftir af bílatekjunum á ári. Helgi sagði, að þetta átak væri að vísu ekki nóg t.il lausnar hinum mikla vanda í vegamálunum, en þó mikið byrjunarspor. Auk þess yrði að afla verulegs lánsfjár, en eðlilegt væri, að um það mál væri fjallað í sambandi við endurskoðun vegaáætlunarinnar síðar á þessu þingi. Tímmu ERLENT YFIRLIT Hvað yrði gert við Fulbright í Kína eða í Austur-Evrópu? Málfrelsið er meginkostur hins vestræna lýðræðis ÞAÐ HEFUR ekki farið framhjá þeim, sem fylgzt hafa með fréttum blaða og útvarps að undanförnu, að styrjaldai rekstur Bandaríkjanna í Viet nam hefur sætt harðri gagn- rýni margra áhrifamanna í Bandaríkjunum. Þekktust er gagnrýni Fulbrights öldunga- deildarþingmanns, sem er foi maður í utanríkisnefnd öld- ungadeildarinnar. Hann hefur gagnrýnt stefnu Johnsons for- seta leynt og ljóst og varað eindregið við öllum aðgerðum, sem gætu orðið til þess að færa styrjöldina út. Mansfield h öldungadeildarþingmaður, sem er formaður þingflokks demó krata í öldungadeildinni, hefur raunar gert hið sama. Gagn- rýni hans hefur verið flutt af meiri hófsemi og því vakið minni athygli erlendis, en heima fyrir hefur hún senni- lega ekki reynzt áhrifaminni, einkum þó á svokölluðum hærri stöðum. Þar er mikið til- ' ht tekið til Mansfields, vegna mikilla áhrifa hans í öldunga deildinni. Þá hafa sum af stórblöðun um í Bandaríkjunum tekið ein- dregið undir þessa gagnrýni, og þó alveg sérstaklega „The New York Times“. Hin blöðin eru þó miklu fleiri, sem hafa varið stefnu stjórnarinnar. Robert Kennedy öldunga- deildarþingmaður hefur einnig gagnrýnt ýms atriði í stefnu ríkisstjórnarinnar og hefur það átt sinn þátt í að efla vinsældir hans meðal frjáls- lyndra manna. Gagnrýni Ful- brights hefur ekki styrkt að- stöðu hans á sama hátt sök- um þess að hann er þingmaður frá einu af Suðurríkjunum og fylgir því íhaldssamri stefnu í kynþáttamálunum. Það er áreiðanlegt, að gagn rýni þessara manna og blaða hefur ekki aðeins haft mikjl á hrif á almenningsálitið í Banda ríkjunum, heldur einnig á að- gerðir og stefnu ríkisstjórnar linnar. Margir hershöfðingjar og svokalilaðir sérfræðingar stjórnarinnar hafa lagt til að styrjaldaraðgerðir væru aukn ar, en stjórnin hefur hafnað tillögum þeirra og farið vægi- legar í sakirnar, m. a. vegna gagnrýni og áhrifa manna eins og Fulbrjghts, Mansfields og Kennedys. BANDARÍKIN hafa víða um heim hlotið þunga dóma frjáls lyndra manna fyrir styrjaldar reksturinn í Vietnam, einkum þó fyrir loftárásirnar á Norð uir-Vietnam. Bersýnilegt er, að margir valdamenn Banda- ríkjanna álíta sig vera að heyja einskonar krossferð gegn kommúnismanum með því að berjast gegn Viet Cong og með því að viðhalda völdum spilltr ar auðstéttar og ofstæðisfullra lukkuriddara eins og Ky 'markskálks. Þessir forustu- menn Bandaríkjanna virðast ekki gera sér ljóst, að þeir standa hér : ekki ólíkum spor MANSFIELD um og stjórnendur gömlu ný- lenduveldanna gerðu fyrir fá- um áratugum. Fyrir þá, sem líta til Bandaríkjanna sem eins forusturíkis vestrænna þjóða, er þessi misskilningur forustumanna þeirra næsta sorglegur. En þeim mun ánægjulegra er þá líka að heyra gagnrýni og aðvaranir manna eins og Fulbrights, Mansfields og Kennedys. Fram koma þeirra sýnir og sannar, að Bandaríkin eru ríki, þar sem málfrelsi er í heiðri haft, og menn geta opinskátt og ein- dregið barizt fyrir skoðunum sínum hvort sem stjórnendum líkar það betur eða verr. Með an slíkir- stjórnarhættir ríkja í Bandaríkjunum — og ekkert bendir til. að breyting verði á því — eru Bandaríkin traust ur fulltrúi vestræns lýðræðis, enda þótt fyrir komi, að stjórn endum þeirra missjáist eins og öðrum dauðlegum mönnum- Málfrelsið er mikilvæg trvgj ing þess, að mistökin verði færri og minni en ella. Deilur þær ,sem hafa risið í Bandaríkjunum i samoand' við Vietnamstyrjöldina syna ótvírætt, að málfrelsið bygg ist á sterkum grunni í Bandaríkjunum — vafalaust sterkari en í Vestur-Evrópu, þegar Bretland og Norðurlönd eru undanskilinn. Þessi grund völlur er ótraustari í Þýzka landi, Ítalíu og Frakklandi. í því sambandi er skemmst að minnast stjórná þeirra Hitlers og Mussolinis. í SAMBANDI við þá gagn- rýni, sem rætt er um hér að framan, er ekki úr vegi að spyrja, hvernig myndi mönn- um eins og Fulbright Mans- field oig Robert Kennedy farn- ast, ef þeir væru í Kína eða Austur-Evrópu og reyndu að gagnrýna stjórnarstefnuna þar. Þessu er auðsvarað. í fyrsta lagi er þar engin vettvangur til fyrir slíka gagnrýni. Þar eru engin þjóðþing, sem geta verið vettvangur slíkrar gagn- rýni. Þjóðþingin þar eru enn lítið annað en hallelúja-sam- komur, þar sem þingmenn geta borið fram þá gagnrýni eina, sem er valdhöfunum þóknan- leg. Þar eru ekki heldur til nein blöð, sem eru vettvangur slíkrar gagnrýni. Öll blöðin eru háð valdhöfunum, öll gefin út til að túlka stefnu þeirra og réttlæta gerðir þeirra. Þá sjaldan þegar það kemur fyrir, að þessi blöð flytja gagnrýni stafar það af því, að valdhaf arnir vilja koma fram einhverj um breytingum eða vilja kenna einhverjum öðrum um en sjálfum sér, ef eitthvað hef ur mistekizt. Ef þeir Fulbright, Mans- field og Kennedy væru í kemm únistariki, hefðu þeir þannig í fyrsta lagi engan sæmileg- an vettvang til að koma gagn- rýni sinni á framfæri. Færu þeir samt að reyna að hreyfa henni, t. d. með því að fara að prédika hana á götum eða gatnamótum, myndu þeir fljót lega verða gripnir af lögregl unni og ákærðir fyrir að ó- frægja hið sósíaliska ríki. Þeirra myndi svo bíða fangels isvist í lengri eða skemmri tíma. ■ Það skal játað, að þetta hef- ur heldur breyzt til hins betra í sumum löndum Austur-Evr- ópu hin síðari ár. Þar þorðu menn ekki fyirr fáum ámm að láta neina gagnrýni í ljós 1 hópi nánustu kunningja, hvað þá heldur á rýmri vettvangi. Nú gera menn það orðið meira og minna í einkaviðræðum. En á opinberum vettvangi er enn sami einstefnuaksturinn og áður. í Kína stefnir þetta svo í alveg öfuga átt. Þar hefur þetta versnað með tilkomu ‘rauðu varðliðanna. Sú hætta, sem getur stafað ■atf kommúnistaríkjunum, staf ar ekki sízt af því, að þar þurfa valdhafarnir ekki að óttast neina opinbera gagn- rýni. Þeir þurfa ekki að taka hana með í reikninginn. f bessu felist hin mikla hætta, ef drottnunargjarnir og ofsa- fengnir menn komast til valda, sem ekki getur síður hent þar en annarsstaðar. Þ.Þ.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.