Tíminn - 27.10.1966, Page 5

Tíminn - 27.10.1966, Page 5
FIMMTUDAGUR 27. október 1966 Útgefandi: FRAMSÓKNARIFLOKKURINN Framkvæinidastjóri: Kristján Benediktsson. Ritstjórar: Pórarinn Þórarinsson (áb), Andrés Kristjánsson, Jón Helgason og Indriði G. Þorsteinsson. Fulltrúi ritstjórnar: Tómas Karlsson. Aug- lýsingastj.: Steingrimur Gíslason. Ritstj.skrifstofur I Eddu- húsmu, símar -18300—18305. Skrifstofur: Bankastræti 7 Af. greiðslusími 12323. Auglýsingasími 19523. Aðrar skrifstofur, sími 18300 Áskriftargjald kr 105.00 á mán. innanlands. — í lausasölu kr. 7.00 eint. — Prentsmiðjan EDDA h. f. Vantrú ríkisstjómar- innar á iðnaðinum í umræðum þeim, sem urðu um stefnuyfirlýsingu ríkis- stjórnarinnar á Alþingi, játaði forsætisráðherra, að óhjá- kvæmilegt yrði að gera einhverjar ráðstafanir til að rétta við hlut frystihúsanna, togaranna og minni vélbátanna. Hinsvegar minnist ráðherra ekki á afkömu iðnaðarins, sem á mörgum sviðum er ekkert betri en áðurnefndra þriggja atvinnugreina. Erfiðleikar iðnaðarins virðist ráð- herra ekki sjá og þá vitanlega því síður, að nokkuð þurfi að gera fyrir hann. Þetta er í samræmi við fyrri afstöðu ríkisstjórnarinnar. Stjórniri hefur látið iðnaðinn vera olnbogabarnið síðan hún kom til valda. Hún hefur opnað landið fyrir erlend- um iðnvarningi á þeim tíma, sem gengisskráningin er mjög óhagstæð innlendri framleiðslu, án þess að gera no'kkuð teljandi til að gera iðnaðinn færan um að mæta þessari samkeppni, t.d. með hagstæðari lánskjörum. Þótt valdhafarnir geri öðru hvoru í orði gælur við iðn- aðinn, geta þeir ekki leynt vantrú sinni á honum. For- sætisráðherrann fullyrti það t- d. í ræðu á nýloknum fundi flokksráðs Sjálfstæðisflokksins, að tilvera íslenzks iðnaðar hljdi að hækka verðlagið í'landinu. Forsætisráð- herrann telur það m. ö. o. útilokað, að íslendingar geti rekið samkeppnisfæran iðnað. Fjölmörg dæmi hafa þó saimað hið gagnstæða. Það er áreiðanlegt, að slíkum dæmum myndi fjölga, ef íslenzkur iðnaður fengi sæmi- lega aðstöðu til að njóta sín. Stjórnarvöldin neita honum um þessa aðstöðu í dag. Nú á tímum getur engin þjóð lifað góðu lífi, án blóm- legs iðnaðar- Engin þjóð, sem er nær eingöngu hráefna- framleiðandi, býr við þolanleg og örugg lífskjör Með þeirri staðhæfingu, að ekki sé hægt að reka saihkeppnis- færan iðnað á íslandi er verið að halda því fram, að hér geti ekki verið jafngóð lífskjör og annars staðar. Það er skiljanlegt, að ríkisstjórn, sem hefur þetta mat á iðnaðinum, vilji lítið gera fyrir hann og láti sig erfið- leika hans litlu skipta. En þjóðin má ekki sætta sig við þetta, því að í því felst vanmat á henni sjálfri og mögu- leikum hennar til að geta búið sér sæmileg lífskjör. Reynslan er líka margoft búin að afsanna þessa van- trú ríkisstjórnarinnar. En meðan hún fer með völd, verð ur þessu viðhorfi stjórnarvaldanna til iðnaðarins ekki breytt- Hér þarf nýja stefnu og nýja forustu, ef þjóðin á að tryggja sér þá undirstöðu, sem ein getur tryggt batn- andi lífskjör — þ.e., að íslenzka þjóðin verði í sívaxandi inæli samkeppnisfær iðnaðarþjóð. Sumarheimili Einar Ágústsson, Sigurvin Einarsson og Ingvar Gísla son hafa lagt fram þingsályktunartillögu um athugun á því, að komið verði upp í sveitum sumarheimilum fyr- ir kaupstaðabörn. Nú er sá tími liðinn, að sveitaheimili geti tekið á móti öllum þeim kaupstaðarbörnum, sem for eldrar vilja koma í sveit. Þetta skapar þegar orðið mikið vandamál. Fjöldi barna verður alveg af þeim uppeldis áhrifum, sem sveitalífið veitir, og oft veldur það foreldr um miklum erfiðleikum að finna börnunum annað verk- efni, sem er við hæfi. Heppilegust láusri þessa máls er vafalítið sú, að komið verði upp sumarheimilum i sveit fyrir kaupstaðarbörn. Hér er vissulega um mikil vægt uppeldismál að ræða. TÍMINN Henning Nystad, fréttamaður „Politiken". V Ungverjaland er á leiðinni tii frjálslegri stjórnarhátta Bæði stjórnarvöld og almenningur hafa lært af reynslunni Mörg erlend stórblöð hafa sérstaka fréttaritara í Ung- verjalandi um þessar mund- ir í tilefni af því, að 10 ár eru liðin síðan byltingin var gerð þar. Flestum þeirra kemur saman um, að kjör almennings hafi batnað verulega á þessum tíma, en baráttuhugurinn sé Iíka minni. Menn trcysti á hæfi- fara þróun í stað skyndi- byltingar. Meðal þeirra er- lendra blaðamanna, sem dvalið hafa í Ungverjalandi undanfarið, er danski blaða- maðurinn Hennning Nystad, sem vinnur við „Politiken“. Síðastliðinn sunnudag birti „Politiken" eftirfarandi grein eftir hann: KOMIð er fram í o'ktober hér í Ungverjalandi og lítil bál eru kynnt til og frá á gang stéttunum. Trén hafa senn lokið sinni árlegu afklæðningu Rauð og gul blöð brenna og stiga til lofts í bláum reyk. Augun fijóta i vatni og hin næmustu eyru fá greint glam- ur í brynvörnum grápóddunn- ar. Endurómurinn frá bylting- unni 1956 er ekki meiri cn þetta. Á krókóttum götunum meðal klettanna í Buda ríkir haustkyrrð þar til ómur tekur að nálgast og ein stuttpilsan birtist með transistorinn í hend inni og frá honum flæðir „The Yollow Submarine.“ Stúlkurn- ar elska Bítlana og taka á sprett upp brekkurnar í Buda þegar ungverska útvarpið hleypir „poppinu“ á. Pest er þarna langt niður frá, hinum megin við Dóná, og þaðan berst ekki annað en ómurinn frá nið umferðannn- ar. íbúar þessarar tvískiptu borgar eru orðnir tvær mi’ljón ir að tölu, en þjóðin öll tíu milljónir. Vaxtaverkur er slæmur kvilli. Húsnæðisvand,- ræði, umferðaröngþveiti og andarteppa sýnir svart á hvitu að stórborg á ekki að tvöfalda íbúatölu sína á tuttugu arum. Yfirborgarstjórinn í Buda- pest er svo önnum kafinn við að greiða fram úr flækjunum, að hann mátti ebki vera að því að ræða við þann, sem þetta ritar. Hér er byggt og byggt, en aldrei hefst undan þörfinni. Sumir innflytjend- anna láta s^r nægja rúmstæði í herbergi, þar sem þrjú rúm eru fyrir. Húsrýmið eitt kost ar 250 forintur á mánuði oa verkamannslaunin eru 1700- 1800 forintur (um 3700 ísl krónur). VERKSMIÐJUR og þeir, sem byggja fyrir ríkið. keppa um vinnuaflið. sem of lítið er af. Sjálfvirkni er skammt á veg komin i iðnaðinum Sftir- spurn eftir almennum verka- mönnum er því mjög lítil, en sérfræðingar tala um hulið a' vinnuleysi og benda á litla framleiðm Sósíalistíska þjóð félagið ,er engu öflugra en auð valdsþjóðfélagið. Ýmsir árekstrar verða. Hitinn er 7 mældm hér sem annars stað Kadar foringi kommúnista í Ungverja landi. Ilann hlaut þung ámæli þegar hann tók við stjórn í Ungverjalandi, eftir að Rússar höfðu bælt byltiiiguna 1956 nið ur ineð hervaldf- Kadar fær mun betri dómSTHiuj því að hann er talinn hafa haft for- ustu um, að stjórnarha;ttirnir færðust í frjálslynöara horf. Bæði hann og Rússar ’r.afa dreg ið þær ályktanir af byltingunai að ekki yrði hægt að halda áfram óbreyttum stjórnarhátt um. Að því leyti hefur bylting in borið árangur, þótt hún yrði forustumönnum hennar dýr. ar og ungverskir hagfræðingar segja hiklaust, að bilanir séu eðlilega óhjákvæmilegar i margbreyttri vél, en með þvi eiga þeir við, að engin fræði- leg stóryrði breyti ómildum lögmálum almennra þrifa. Einlægnin er talin fyrirheit um betri framtíð til handa þeim tíu milljónum manna, sem þrá velgengni og keppa að henni, og hafa þegar öðlast sum þeirra hnossa, sem fólk á Vesturlöndum telur sjálf- sagða hluti. Þetta sézt á göt- unum og heyrist á heimilun- um. Verzlanirnar eru fullar af matar- og drykkjarvörum og „hitaeiningasafnarar“ eru áber andi margir meðai almennings Efnið í klæðnaði fólks er hvergi nærri vandað að gerð, en snið fatnaðarin, er eins og það á að vera o gverðið viðráð anlegt. Sjónvarpstæki er á þriðja hverju heimili og út- deilir menningu. Margir kvarta undan að stjórnmála- áróður sé fyrirferðarmikill i dagskránni, en þar ber einnig mikið á knattspyrnu og skemmtiefm eins og fram kem ur á þrengdum fjárhag íþrótta- og skemmtistarfseminnar. VÆRl einhverjum varpað í faHhlíf niður í þessum nluta Evrópu kæmist hann að raun um. að hetjudýrkunin er að mestu hjá liðin. Útvarps- stöðin Frjáls Evrópa þarf ekki að gera sér vonir um að geta æst fólkið til nýrra uppreisn- arævintýra. Ungverjar hrinda frá sér hinum sáru minningum frá árinu 1956, en þeir muna þó, að Vesturlandabúar léku þar illt hlutverk, þar sem þeir gáfu ginnandi loforð en sviku svo, þegar til athafnanna kom. Alþýðumaðurinn setur traust sitt á þróunina. Hann rækir þefgreind og segist fylgjandi samtilveru í friði í umheimin- um, stórum sem litlum. Ef til vill kaupir hann í sunnudags- matinn síld frá Glyngeyri við Limafjörð og leggur hana í pólskt vodka. Ef til viU er hann í senn kaþólskur og kommúnisti. Hann getur einn ig verið bæði kalvfnisti og erki íhaldsmaður og samt tekið þátt í hinum sósíalistísKa dansi. Hann getur horft á Soffíu Loren í kvikmyndahús- inu handan við götuhomið. Hann veit, að Rússarnir eru enn í landinu og ef til vill hefur hann heyrt sagt, að allt keyrði um þverbak hjá hin- um léttari iðnaði, ef hann ætti fyrirvaralaust að hverfa frá COMECON-markaðinum, þar sem vandfýsnin er ekki mikil, og hasla sér völl í kröfuhörk- unni á markaðstorgum Vestur landa. HVERS þarfnast svo þessi maður mest? Hann þarfnast friðar, nærfærinna leiðtoga, vel farnaðar og skilnings af okkar hálfu. Ég skal gjaman bæta við, að hann þarfnist aukins frelsis, en krossfarar frá Vest- ur-Evrópu og Bandarikjunum skulu þó alvariega varaðir við krossferðum til Ungverja- lands. Þróun fulls lýðræðis verður að hlíta ungverskum skilyrðum og röksemdum og skynsemin að fara með sigur- orð af hólmi. í ársbyrjun 1968 tekur alþýðulýðveldið UPP nýtt efnahagskerfi, þar sem rekstrareiningarnar fá aukið frjálsræði, duglegt fólk aukn- ar tekjur, verðmyndun verð- ur hreyfanlegri en áður ug margbreytni og syeigjanleiki í utanrikisverzlun eykst til mik- illa muna. Þá opnast' nýjar leiðir til aukins frjálsræðis i stjórnmálum og menningu. Marxistíski " heimspekingur ínn Gyorgy Lucacs hefur sem viðurkenndur mannvinur krai- ist aukins mál- og ritfrelsis fyrir mörgum árum. Janos ,Kad ar flokksleiðtogi kemur efa- iaust auga á, að rökræður fyr- ir opnum tjöldum er bezta tryggingin' fyrir efnahagsleg- um framförum, hvort sem sam félagið gengur undir merki sósíalisma eða. auðvalds. „Vel má vera, að flokkur- inn nenni ekki af hlusta á heimspekingana,“ sagði napur tæknimaður- „En leiðtogarnir virða veruleikann og 1 vita, að það hefnir sín að mata raf- magnsheila á röngum upplýs- ingum Hvers vegna skyldi þeir pretta mannlega skynsemi, sem byggir einungis á sönn- um forsendum? Frelsi er ekki fræðileg nauðsyn, hpldur hag nýt nauðsyn." 4 I

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.