Vísir - 23.10.1975, Blaðsíða 17
VtSIR. Fimmtudagur 23. október 1975.
17
í DAG | I KVÖLD | í DAB |
Æfing á ballettinum sem sýndur verður f kvöld.
Sjónvarp kl. 21,10 föstudag
„HVÍTI HREINNINN"
- BALLETÞÁTTUR -
„Hviti hreinninn”
heitir ballettþáttur,
sem er á dagskrá sjón-
varpsins annað kvöld.
Þar segir frá Samastúlkunni
Aili sem er ástfangin af Nilasi.
Seiðkarl nokkur býðst til þess að
hjáípa henni við að vinna ástir
Nilasar. Aili breytist i hvitan
hrein, en hún veit ekki að með
hennar hjálp ætlar seiðkarlinn
að fremja alls kyns ódæðisverk.
Birgit Cullberg samdi dans-
ana, en tónlistin er eftir
Kundaage Riisager. A undan
ballettinum er stutt viðtal við
höfundinn.
Meðfylgjandi myndir sýna at-
riði úr ballettinum.
— EA.
Leonie Leahy I hlutverki Aili I
„Hviti hreinninn”.
Úfvarp í kvöld, kl. 20,00:
Útvarpað verður
frá Alþingi til
dagskrárloka
Frá þvi kiukkan átta i kvöld og
til dagskrárloka útvarpsins verð-
ur útvarpað frá Alþingi.
Stefnuræða forsætisráðherra
verður flutt og á eftir verða
umræður um hana. í fyrri umferð
talar forsætisráðherra, Geir
Hallgrimsson, i allt að hálfa
klukkustund.
Þvi næst tala fulltrúar annarra
þingflokka i 20 minútur hver. I
siðari umferð hefur hver flokkur
10 minútur til umráða.
— EA.
Sjónvarp kl.
20,40 föstudag:
Kvennofrí,
logmeti, út-
flutningur
é heitu
vcstni o.fl.
— í Kastljósi
Markaðsmál lagmetis, út-
flutningur á heitu vatni, vél-
hjólamenning og kvennafriið,
verða á dagskrá Kastljóss I
sjónvarpinu annað kvöld.
Umsjónarmaður er Ólafur
Ragnarsson. Auk hans sér um
þáttinn Markús örn Antons-
son og liklega mun einhver
annar sjá um kvennafriið I
þættinum. Það var þó ekki
fyllilega ákveðið.
Ólafur mun taka fyrir
markaðsmál fyrir lagmeti.
Fjallað verður um vandamál i
sambandi við sölu lagmetisins
og ýmislegt fleira tekið fyrir I
þvi sambandi.
Markús örn tekur fyrir út-
flutning á heitu vatni, sem
rætt hefur verið um i blöðum.
Markús fjallar meðal annars
um það hvaða ráðstafanir
þyrfti að gera til þess að koma
slikum útflutningi i kring.
Þá verður kvennafriið sem
stendur einmitt þennan dag,
tekið fyrir, og loks fjallar
Ólafur um vélhjólamenning-
una eða „vélhjólaómenning-
una” eins og sumir myndu
kannski segja.
„Þetta er þáttur sem vill
gleymast i umferðarmálun-
um”, sagði Ólafur og við fáum
að vita hvaða reglur gilda um
vélhjólanotkun, hvað menn
þurfa að vera gamlir til þess
að fá að nota slik hjól og loks
ætti okkur að gefast á að sjá
góðar mundir af nokkrum
köppum á reiðskjótum sinum.
Ef eitthvað merkilegt á sér
stað getur það breytt þeim
áætlunum sem gerðar hafa
verið um þáttinn. Viðkomandi
málefni fengi þá inni i þættin-
um I stað einhvers af fyrr-
nefndum.
Það má svo gera ráð fyrir
þvi að þetta verði merkilegur
dagur I sjónvarpinu, þ.e.
kvennafriið. Menn verða að
öllum likindum að sminka sig
sjálfir, og svo má búast við
fullu húsi af börnum! Og
skyldu svo fréttirnar verða
sendar út? — EA.
Sjónvarp kl. 22,00 föstudag:
Lokoþótturinn um
Skólkana
Lokaþátturinn um Skálkana
er á dagskrá annað kvöld I sjón-
varpinu.
Hann fjallar um Billy, þann
sem var skipuleggjandi ránsins
frá upphafi til enda. Við skildum
við Billy I villu i Portúgal.
Hann óttast að hann muni
þekkjast og ákveður að fara til
Englands. Leið hans liggur
beint til bróður hans og mág-
konu sem búa i ltilum bæ i Eng-
landi.
Mágkona hans, Janis, er ein
heima með dóttur sína, þegar
Billy ber að. Henni verður bilt
við og vill fá hann til þess að
fara. Han'n vill það ekki fyrr en
hann hefur náð tali af bróður
sinum, Eric.
Dóttirin, Caroline, er hrædd,
en móðir hennar reynir að róa
hana með þvi að segja henni að
Billy sé „Billy frændi frá
'Kanada”.
Þau Janis og Billy taka siðan
tal saman og rifja upp liðna tið.
Það kemur i ljós að þau áttu
vingott saman, áður en Jánis
giftist Eric, og það er jafnvel
vafamál hvort Eric er réttur
faðir Caroline.
Svo fer, að Janis biður Billy
að fara inn i stofu til þess að
spjalla við Caroline, þvi hún ætli
að ná i te. Um leið notar hún
tækifærið og hringir i Eric og
segirhonum að Billy sé kominn.
Billy hefur haft allan varann á
og kemur að henni I simanum.
einmitt þegar hún segir að hann
sé kominn. Og nú er- bara að
biða og vita hvað Eric gerir.
Hringir hann á lögregluna?
— EA.
SJONVARP
Föstudagur
24. október
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Dagskrá og auglýsingar
20.40 Kastljós Þáttur um
innlend málefni.
Umsjónarmaður Ólafur
Ragnarsson.
21.10 Hviti hreinninn Ballett-
þáttur. Birgit Gullberg
samdi dansana, en tónlistin
er eftir Knudaage Riisager.
Samastúlkan Aili er ást-
fangin af Nilasi. Seiðkarl
einn býðst til að hjálpa
henni að vinna ástir
Nilasar. A tungllýstum
nóttum breytist hún I hvitan
hrein. En hún veit ekki, að
með hennar hjálp ætlar seið
karlinn að fremja alls kyns
ódæðisverk. A undan
ballettinum er stutt viðtal
við höfundinn. (Nordvision
— Norska sjónvarpið)
22.00 Skálkarnir Breskur
sakamálamyndaflokkur.
Lokaþáttur Billy Þýðandi
Kristmann Eiðason.
UTVARP
FIMMTUDAGUR
23. október
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar.
Á frivaktinni. Margrét
Guðmundsdóttir kynnir
óskalög sjómanna.
14.30 Miðdegissagan: „Á
fullri verð” eftir Oscar
Clausen. Þorsteinn
Matthiasson les (8).
15.00 Miðdegistónleokar.
Ilana Vered leikur á piano
verk eftir Chopin. Janos
Starker og György Sebök
leika Sónötu fyrir selló og
pianó eftir Mendelssohn.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir). Tón-
leikar.
16.40 Barnatimi: Eirikur
Stefánsson stjórnar. Flestir
girnast gullið. — Aðalefni
timans er sagan af Midasi
kóngi.
17.30 Mannlif I mótun. Sæ-
mundur G. Jóhannesson rit-
stjóri á Akureyri rekur
minningar sinar frá upp-
vaxtarárum i Miðfirði (10).
FÖSTUDAGUR
24.október
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25. Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar.
13.00 Við vinnuna: Tónleikar.
14.30 Miðdegissagan: „A
fullri ferð” eftir Oscar Clau-
sen. Þorsteinn Matthiasson
les (9).
15.00 Miðdegistónleikar. Fritz
Wunderlich syngur lög eftir
Schubert, Hubert Giesen
leikur á píanó. Aaron
Rosand og Sinfóniuhljóm-
sveit útvarpsins i Luxem-
burg leika Fiðlukonsert nr.
3 I g-moll op. 99 eftir Jenö
Hubay, Louis de Froment
stjórnar.
15.45 Lesin dagskrá næstu
viku.
16.00 Fréttir. Tilkynningar
(16.15 Veðurfregnir).
16.25 Popphorn
17.10 Tónleikar
17.30 Mannlíf I mótun. Sæ-
mundur G. Jóhannesson rit-
stjóri á Akureyri lýkur við
að segja frá uppvaxtarárum
sinum I Miðfirði.
18.00 Tónleikar. Tilkynning-
ar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir'. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Daglegt mál. Helgi J.
Halldórsson flytur þáttinn.
19.40 Þingsjá. Kári Jónasson
sér um þáttinn.
20.00 Jórunn Viðar leikur á
pianó verk eftir Debussy,
Chopin og Schumann.
20.30 Lygn streymir Laxá.
Jónas Jónasson ræðir við
Gunnlaug Gunnarsson
bónda i Kasthvammi.
21.20 Kórsöngur. Stúlknakór
Gagnfræðaskólans á Sel-
fossi syngur, Jón Ingi Sigur-
mundsson stjórnar.
21.30 Útvarpssagan: „Fóst-
bræður” eftir Gunnar
Gunnarsson. Þorsteinn ö.
Stephensen leikari les (6).
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Hvað
gerðist I dag? Fréttamenn-
irnir Friðrik Páll Jónsson,
Kári Jónasson o.fl. gera upp
reikninginn að kvöldi
kvennafridags. (Skákfréttir
kl. 22.35)! Tónleikar.
23.30 Fréttir i stuttu máli.
Dagskrárlok.
- Væri ekki einfaldara að við flyttum okkur aðeins ofar?
— Reynið nú að segja eitthvað uppörvandi við yfirlækninn.
Hann hefur svo miklar áhyggjur út af yður.