Vísir - 29.10.1975, Blaðsíða 3

Vísir - 29.10.1975, Blaðsíða 3
VtSIR. Miðvikudagur 29. október 1975. 3 urinn á flugdrægninni er ekki svo mikill. AÐ KASTA NIÐUR BJÖRGUNARBÚNAÐI Ýmsir gæslu-menn hafa bent á að ekki verði hægt að kasta niður björgunarbátum og ýms- um öðrum björgunarbúnaði úr Beechcraftvélum. Það er ekki óliklegt að þetta sé rétt. Að það yrði ekki hægt nema að undan- gengnum breytingum á vélun- um. En þeir gleyma þvi að TF- SÝR er enn á lofti og gæti það tvisvantilþrisvarsinnum meira en hún er nú. Hún gæti þvi ann- að slikum verkefnum. Annað er, að hjá varnarliðinu i Keflavik eru jafnan til reiðu fullkomnustu björgunarvélar sem til eru i heiminum. Það hlýtur eitthvert tillit að verða að taka til þess hvað er þegar fyrir hendi. Bandarikjamennirnir hafa aldrei legið á liði sinu við björgunarstörf. SJÖSTJARNAN OG BEECIICRAFTVÉLARNAR Málgagn dómsmálaráðherra hefur fálmað eftir hverju hálm- strái i þessu máli. Þannig hefur Timinn oftar en einusinni vitnað til ummæla sem höfð voru eftir Guðmundi Kjærnested i Þjóð- viljanum, þess efnis að við leit- ina að Sjöstjörnunni hafi Fokk- erinn staðið sig vel, en Beech- craftvélarnar verið einskis nýt- ar. Ég var á þessum fundi. Þar var vissulega verið að tala um Beechcraft versus Fokker, en ég held ekki að Guðmundur hafi beinlinis nefnt Beechcraft i þessu sérstaka tilfelli. Hann veit það vel að þar voru engar Beechkraft King Air vélar á ferðinni. Það voru aðeins minni vélar, sem eru hvergi nærri eins getumiklar. ÞREYTA OG ÖRYGGI Stuðningsmenn Fokker kaup- anna háfa_ hamrað mjög á þreytu og öryggi áhafna i lang- flugum. Bæði atriðin eru geysi- lega mikilvæg. Það er þó erfitt að imynda sér að flugliðar Landhelgisgæslunnar séu svo illa farnir likamlega að þeir geti ekki haldiðút 5-6 tima gæsluflug i tiu sæta lúxusvél sem smiðuð var undir rassinn á ameriskum auðjöfrum. Hvað öryggi snertir hafa sér- fræðingar lýst þvi yfir að erfitt sé að velja á milli King Air og Fokker Friendship. Og áður en ÞESSIR sérfræðingar eru af- skrifaðir er best að bæta þvi við að þeir eru allir flugmenn. SÝR ER ILLA BÚIN Með tilliti til þess hversu mjög menn hafa hamrað á þessum at- riðum, varð ég furðu lostinn þegar ég frétti að það væri eng- inn sjálfstýri útbúnaður —auto- pilot) i TF-SÝR. Og að til skamms tima amk. hafi ekki verið i henni radió-hæðarmælir. Ég efast stórlega um aðþað sé nokkursstaðar i heiminum til Fokker Friendship sem er likt ástatt fyrir. Mig skal ekki furða þótt mennirnir séu þreyttir (þ.e. flugmennirnir) eftir að hafa handflogið vélinni klukkutimum saman.sifelltbreytandi um hæð og stefnu. Ef milljónir verða sparaðar til annarra hluta með Beechcraft kaupum, vona ég að fyrstu afgangs milljónunum verði varið til að búa TF-SÝR góðum tækjum. ARASIR A STARFSMENN? Menn hafa verið mjög gjarnir á að slá á tilfinninga strengi i þessu máli. Þeir hafa látið að þvi liggja að með þvi að gang- rýna eitt eða annað i sambandi við Landhelgisgæsluna, sé verið að ráðast ómaklega á menn sem geti lent i lifshættu við'störf sin. Þetta er hrein fjarstæða. Ég vil ekki gera litið úr þeim hætt- um sem varðskipsmenn hafa lent i. En ég held að reynslan sýni að það er mun hættulegra að vera á togara en varðskipi á Eftir Óla Tynes íslandsmiðum. Og enginn vælir um ómaklegar árásir á áhafnir togara, þótt útgerðirnar séu gagnrýndar. FALSANIR BLAÐAMANNA? Blaðamenn hafa að sjálfsögðu verið sakaðir um falsanir i þessu eins og öðrum hitamál- um. Þessar ásakanir koma meðal annars frá Landhelgis- gæslunni. Ef einhverjar falsanir er að finna i þessu máli þá eru þær komnar frá henni sjálfri. Sjálfur vil ég ekki ganga svo langt að halda þvi fram að Gæslan hafi falsað eitthvað. En frá henni hafi komið mjög vill- andiupplýsingar,hvortsem það hefurverið viljandi eða óviljandi. —ÓT „Ég fór með nokkrar litstækk- anir, 70 sinnum 100, til prufu og þcgar þeir voru búnir aö fletta nokkrum myndum var incr boöið að koma og sýna,” sagði Gunnar Hannesson, Ijós- myndari, i viötali við Visi. Gunnar er ný- kominn heim frá New York, en Is- lendingafélagið þar bauð honum út til að sýna islend- ingum litmyndir og litskyggnur mest af hálendi Islands og Vatnajökuls- leiðangrum. „Hrefna Hann- esdóttir, islensk stúlka sem er gift úti, á mestan heið- urinn af þessu. Þaö var hún sem kom mér á framfæri I Nikonhouse, sem má segja að sé eitt fremsta ljós- myndagalleri i heimi. Myndirnar sem ég var með voru nokkuð einhliða og ég vil gjarn- an bæta við nokkrum af landi og þjóð, þannig að sýningin verði dá- litið sérstæð fyrir Island og islendinga. Það tekur mikinn tima að undirbúa svona sýningu, svo hún verður sennilega ekki fyrr en eft- ir jól. Það er mikill vandi að velja myndirnar þvi þetta getur orðið mikil landkynning, og stuðningur við islendinga, t.d. gagnvart feröamannahópum. Móttökurnar hjá íslendingafélaginu i New York voru stórkost- legar, það var farið með okkur hjónin rétt eins og við værum kóng- ur og drottning.” Gunnar Hannesson fræddi okkur um það að siðustu að nú væri á leiðinni til landsins Vatnajökulsbók hans og Sigurðar Þórarinsson- ar. sem prerftuð var i Hollandi bæði á islensku og ensku. ENN UM FLUGVELA- KAUP GÆSLUNNAR í þessu liggur munurinn Flugvélakaup Landhelgis- gæslunnar eru sem betur fer enn á dagskrá i almennum um- ræðum. Sem betur fer, vegna þess aö það væri illa farið ef ör- fáir menn gætu með villandi upplýsingum og offorsi, barið niöur allar mótmælaraddir. Það eru starfsmenn Landhelgis- gæslunnar sem hafa gefið vill- andi upplýsingar. Pólitíkusarn- ir liafa lagt til offorsiö. ÆSKILEGT OG/EÐA HAG- KVÆMT Enginn efast um að það væri stórfint fyrir Landhelgisgæsl- una að eiga stóra fjögurra hreyfla Orion skrúfuþotu. Eng- inn efast um að það væri stórfint fyrir Landhelgisgæsluna að eiga tvær Fokker Friendshipvélar. En það efast heldur enginn um að þessi þjóð er á hvinandi hausnum. Þegar svoleiðis stendur á, verður stundum að hætta að hugsa um hvað sé stórfint og hugsa i staðinn um hvað er hag- kvæmast og/eða heppilegast. FOKKER PLÚS BEECH- CRAFT Þaðvarskipuð nefnd manna sem eru sérfróðir á ýmsum sviðum. Þeir áttu meðal annars að gera tillögur um hver skuli vera flugfloti Landhelgisgæsl- unnar. Nefndin komst að þeirri niðurstöðu að Landhelgisgæsl- unni yrði nokkuð sæmilega borgið ef keypt yrði skrúfuþota af gerðinni Beechcraft King Air E90 til viðbótar við Fokker vél- ina sem Gæslan á fyrir. TIL VIÐBÓTAR. Ekki i staðinn. Þessi niðurstaða var meðal annars byggð á þvi að það er vel hægt að tvöfalda eða jafnvel þrefalda nýtinguna á TF-SÝR. Með þvi væri Landhelgisgæslan búin að fá hátt upp i nýjan Fokker, þótt ein vél geti ekki komið alveg i staðinn fyrir við- bótarvél, með aukinni nýtingu einni saman. En þar kæmi Beechcraft vélin til. Með auk- inni nýtingu á TF-SÝR og vel búinni Beechcraftvél að auki, taldi nefndin að Gæslan yrði vel sett, miðað við aðstæður. Þess má geta að Fokker vélar Flug- félags íslands fljúga þrisvar sinnum meira á ári en TF-SÝR. MILLJÓNA SPARNAÐUR Enginn er á móti þvl að Gæsl- an fái 600 milljónir til tækja- kaupa og að rekstrarfé verði aukið um tugi milljóna á árs- grundvelli. En ef á að gera það, mætti kaupa tvær Beechcraft- vélar. Þá yrðu samt eftir hundr- uð milljóna af kaupfjárveitingu og tugir milljóna af rekstrar- fjárveitingu, til annarra verk- efna. Og Gæslan gæti áreiðan- lega notað það fé. EKKI JAFN „DUGLEG” OG FRIENDSHIP Beechcraft King Air getur ekki borið eins mikið og ekki flogið eins langt og ný, sérhönn- uð Landhelgisgæslu Fokker flugvél. En með aukinni nýtingu á TF-SÝR fengist mun meira út úr: 2xBeechcraft + SÝR. Mun- LUUU Mun ntcira af þétliefni — þrælsterku Terostat, sem ekki þarf að verja sérstaklega. Terostat hefur, skv. prófunum, mestu viðloðun og togkraft, sem þekkist. Álramminn er efnismeiri og gerð hans hindrar að ryk úr rakavamarefnum falli inn á milli glerja. Álrummarnir em fylltir rakavamarefnum allan hringinn — bæði fljótvirkandi rakavamarefni fyrir samsetningu og langvarandi, sem dregur í sig raka, scm getur myndast við hitabreytingar. Yfirlcitt mun minna af þéttiefni, vegna rúm- frekari ramma úr þynnra áli. Aðeins 2 hliðar rammans fylltar með einni gerð rakavamar- efnis. Minni viðloðun þéttiefnis, sem þarf að verja sérstaklega gegn utanaðkomundi efna- fneðilcguin áhrifum. Við trúum því, að verðmæti húseignar aukist með tvöföldu Cudogleri. Hvort sem þú byggir fyrir sjálfan þig, aðra eða byggir til að selja, þá hækkar verðgildi byggingarinnar við ísetningu glers frá framleiðanda, sem aðeins notar Terostat þéttiefni, sparar hvergi til við samsetningu glersins, og gefur 10 ára ábyrgð á framleiðslunni. Þess vegna borgarðu heldur meira fyrir Cudogler — þú ert að fjárfesta til frambúöar. "VIÐERUM REYNSLUNNIRÍKARI ” Skúlagöfu 26 Sími 26866 ICUDO-II 'GLERHF/I Kokkér Friendslup (TK-SÝR) Neðri myndin Beeclicralt King Air E90

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.