Vísir - 29.10.1975, Síða 10

Vísir - 29.10.1975, Síða 10
Samantekt um sjóðakerfi sjóvarútvegsins VtSIR. Miövikudagur 29. október 1975. Þetta eru • r x* • sjoðirmr, sem deilt hefur verið um! Sjóðakerfi sjávarútvegsins hefur verið mjög til umræðu þessa siðustu daga. Þvi er fundið flest til foráttu og flestir virðast sammála um lesti þess. t umræðum þessum hefur þó ekki komið skýrt fram hvað þetta sjóða- kerfi eiginlega er. Hverjir eru sjóð- irnir, hlutverk þeirra og hvernig er fjár aflað til þeirra? Hvað gerir t.d. maður sem ætlar að kaupa bát en skortir lánsfé? Til er sjóður er nefnist Fiski- málasjóður. Hans hlutverk er að veita styrki til rannsókna, markaðsleitar og nýjunga i sjávarútvegi. Enn fremur má stjóðurinn veita viðbótarlán gegn siðari veðrétti til stofnunar alls konar fyrirtækja er horfa til eflingar sjávarútvegs. Svipull er sjávaraflinn Það þarf ekki að fjölyrða um kviða þann er gripur menn er aflaleysi dynur yfir. Atvinnu- leysi og örbirgð blasa við. Til þess að bæta aflahluti áhafna og tryggja þeim ákveðin lágmarkslaun er aflabrestur verður var siofnaður aflatrygg- ingasjóður. Sjóðurinn skiptist i þrjár deildir: bátadeild, togara- deild og jöfnunardeild. Fulltrúar ýmissa hagsmuna- samtaka skipa stjórn sjóðsins. Fjár til sjóðsins er aflað þannig að 1,25% af útflutnings- verðmætum sjávarafurða svarar einum fjórða hluta gjalds þessa. Fyrirkomulag greiðslna úr sjóðnum byggist á aflamagni skips miðað við meðalveiðimagn. H v a ð e r útflutningsgjald? Fjármagns til sjóðakerfis sjávarútvegsins er að mestu aflað ijieð útflutningsgjöldum. Þau voru tekin upp með lögum frá 1966 og eru ýmist reiknuð af verði eða mafni. Lög þessi hafa 'verið breytileg og við hverja gengisbreytingu hafa þau tekið stakkaskiptum. Nú er útflutningsgjöldum ráð- stafað á eftirfarandi hátt: Tryggingasjóður fiskiskipa, 21,5% Fiskveiðasjóður Islands, 7,9% Fiskimálasjóður, 0,5% Hafrannsóknarskip, 0,3% Bygging sjávarrannsóknarstöðva, 0,12% Samtök sjómanna, 0,12% Landssamtök isl, útvegs- manna, 0,12%. Aflatryggingasjóður, 7,60% Áhafnadeild aflatryggingasjóðs, 9,15%. Ferskfiskmatsgjald, 0,88% Oliusjóður fiskiskipa, 51,81%. Endurskoðun sjóðakerfis Eins og sagt hefur verið frá i fréttum fer nú fram endurskoð- un á sjóðakerfi sjávarútvegsins. Nefnd sem i eiga sæti sex fulltrúar sjómanna og þrir fulltrúar útgerðarmanna undir forsæti Jóns Sigurðssonar vinnur nú að endurskoðun þess- ari sem á að verða lokið um mánaðamótin nóv.-des. Helstu gallar núverandi sjóðakerfis eru taldir þeir að menn sem fiska mikið og fara vel með afla, útgerðarvörur og eldsneyti njóti þess ekki nægjanlega. Endurskoðunin er margþætt og flókið verk sem bæði snertir löggjöf og kjarasamninga. Þeir þættir sem athugunin hefur einkum beinst að eru Oliu- sjóður og Tryggingasjóður fiskiskipa. Þessir tveir sjóðir taka stærstan hluta þeirrar upphæðar sem í sjóðakerfið rennur. Oliusjóður rúmlega þrjá milljarða og trygginga- sjóðurinn 1250 milliónir. Alls renna 5,6 til 5,8 milljarðar i sjóðakerfið á ársgrundvelli. Til þess að dæmið geti gengiö upp þyrfti fiskverð að hækka og hlutaskipti að breytast. Um hækkunina tekur verðlagsráð ákvörðun en hlutaskiptareglan yrði ákveðin i k jarasamningum. —EKG Að afla lánsfjár Lang stærsti aðilinn sem lánar til sjávarútvegsins er Fiskveiðasjóður. Hans hlutverk er að efla fiskveiðar, fram- leiðslu og framleiðni i fisk- vinnslu, fiskiðnaði og skyldri starfsemi með þvi að veita stofnlán gegn veði i fiskiskipum, vinnslustöðvum og mannvirkj- um sem að dómi sjóðsstjórnar eru i þágu sjávarútvegsins. Fjáröflun Fiskveiðasjóðs er nú eftirfarandi: a) Vextir af lánum og öðrum kröfum. b) 1% af útflutningsandvirði sjávarafurða, nú 350 milljónir. c) Jafnhá- upphæö frá rikis- sjóði. d) 7,5% af almennu útflutnings- gjaldi, áætluð upphæð 107 milljónir. e) Sérstakt framlag úr rikis- sjóði 35 milljónir. f) Lántökur innanlands og er- lendis. Vextir af lánum Fiskveiða- sjóðs eru nú 11% af fiskiskipum og 12% af öðrum fasteignum. Að auki eru lánin gengistryggð. Gengistryggingin hefur reynst útveginum þung i skauti vegna tiðra gengisbreytinga og gengissigs. Stofnfjársjóöur fiskiskipa Hlutverk Stofnfjársjóðs fiski- skipa er að koma inn i myndina við greiðslu vaxta og afborgana af lánum. Til þess að auðvelda sjávarút- veginum að greiða vexti var Stofnfjársjóði fiskiskipa komið á laggirnar. Hann er deild i Fiskveiðasjóði. Fjár til Stofnfjársjóðs er aflað þannig að fiskkaupandi greiðir til Stofnfjársjóðs 15% aflaverð- mætis. Þegar fiskiskip landar i erlendum höfnum greiðir það 21% heildarsöluverðmætis til sjóðsins. Stofnfjársjóðsgjöld skulu leggjast inn á reikning þess skips hjá Stofnfjársjóði sem aflað hefur hráefnisins og greitt gjaldið. Greiðsla á trygg- iiigum fiskiskipa Hluta af iðgjöldum trygginga fiskiskipa greiðir svokallaður Tryggingasjóður fiskiskipa. Reglur um greiðslur eru nokkuð flóknar og margbreytilegar. Er þar tekið tillit til hinna ýmsu tegunda skipanna og einnig er það skilyrði til þess að bátar njóti fullrra greiðslna úr trygg- ingasjóöi að þeir hafi fullt út- hald, þ.e. 270 daga á ári. Fjáröflun til tryggingasjóðs er þannig: Greiðsla skal aldrei vera hærri en 15% af aflaverðmæti skips á árinu að með talinni greiðslu i Stofnfjárslóð. Við ákvörðun aflaverðmætis skal fara eftir gögnum Stofnfjár- sjóðs fiskiskipa og miða við það aflaverðmæti sem greitt er af til hans. Áætlaðar tekjur á þessu ári eru 1250 milljónir. Niðurgreidd olia. Eftir oliuhækkun þá er dundi yfir var það talið nauðsynlegt að greiða niður hækkunina svo út- vegurinn gæti borið hina auknu byrði. 1 þvi skyni var Oliusjóður stofnaður árið 1974. Tekna til oliusjóðs er aflað með útflutningsgjaldi. Oliu- kostnaður hefur vaxið stöðugt og til þess að mæta þvi hefur Oliusjóður orðiö að taka æ stærrihluta útflutningsgjalda til að mæta þvi. Nú rennur u.þ.b. helmingur útflutningsgjalds, sem tekið er af óskiptum afía í Öiiusjóð. Fiskimálasjóður Hvert gæti sá maður leitað er hygði á nýjungar i sjávarútvegi og skorti lánsfé?

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.