Vísir - 29.10.1975, Side 11

Vísir - 29.10.1975, Side 11
VÍSIR. Miðvikudagur 29. október 1975. 11 TONHORNIÐ Umsjón: Örn Pedersen „tg er stoltur yfir öllu því, sem Moody Blues hafa gert..." — segir Ray Thomas, sem er nýbúinn að senda frá sér plötu Þaö er liðinn þó nokkuð langur timi frá þvi að MOODY BLUES sendu frá sér sina siðustu plötu. Þeir hafa þó al- deilis ekki setið auðum höndum, þvi allir hafa þeir sent frá sér sóió plötur. Justin Hayward og John Lodge sendu frá sér plötuna „Blue Jays”, Graham Edge sendi frá sér litla plötu og ásamt Mike Pinder vinnur hann núna að sóló plötu. Ray Thomas er nýbúinn að senda frá sér sina fyrstu sóló plötu „From Mighty Oaks”. Ray Thomas. Um plötuna ségir Thomas: „bað var ansi erfitt að vinna að þessari plötu einn eftir öll þessi ár með Moody Blues”. „Ég hef eiginlega aldrei unnið með öðrum en strákunum i Moody.” Aðspurður hvort hlustandinn fengi eitthvað meira út úr þessari sólóplötu en venjulegri Moody Blues, svaraði Thomas: „Ekkert, þvi ég er stoltur yfir öllu þvi sem Moody Blues hefur gert og hvi ætti ég þá að vera að breyta tónlist minni?” „Moody Blues eru alls ekki hættir, DAYS OF FUTURE PASSED var góð plata og við gætum auðveldlega farið i stúdió i dag og hljóðritað „Days of Future Passed II”, en okkur fannst bara timi til kominn að taka okkur smá fri og afla okkur nýrra hugmynda og áhrifa. Við viljum ekki blekkja al- menning þegar við sendum frá okkur plötu, við viljum vera ánægðir með hana sjálfir.” (R.S.)Örp. herrar mínir! Já,herrar minir, fylgist þið með fatatiskunni? Þessi auglýsing birtist nýlega i hinu fræga bandariska timariti „Rolling Stones”, og sýnir okkur hausttiskuna frá Eldridge De Paris. Buxurnar eru sagðar sérstaklega hannaðar með karlmenn i huga, og vitanlega kemur það sér vel á þeim timum sem klæðaburður beggja kynjanna er mjög svipaður. Hér er semsé ekki hægt að taka feil. örp. • PAUL SIMON sem nýlega sendi frá sér „Still crazy after all these years” hefur nú tilkynnt að hann hyggist hætta að koma fram opinberlega á tónleikum. Vita- skuld er honum það svo frjálst, að skipta um skoðun ef hann vill. • DOOBIE BROTHERS er örugglega uppáhaldshljómsveit meðlima STEELY DAN. Ekki alls. fyrir löngu gekk JEFF IBAXTER (Skunk) yfir til DOOBIE (reyndar hætti hann stuttu seinna, og gekk til liðs við Elton John) og nú hefur Michael McDonald, pianóleikari Steely Dan.tilkynnt „félagaskipti” yfir i Doobie Brothers. • LES PAUL sá er fann upp hinn traustbyggða rafmagnsgitar er nú kominn á kreik á ný. Hann (59 ára) er búinn að.uppgtöva smá „simabox” sem fest er á raf- magnsgitar, og siðan má, með þvi að velja sér einstök númer, fá rytmatiska hljóma frá gitar- bassa- eða slagverki úr kassan- um, á meðan að hljóðfæraleikar- inn leikur sóló á gitarinn sjálfan. betta undraverk kallar hann „Paulverizer”, og hefur það þeg- ar vakið athygli i Bandarikjun- um. MINNISPENINGUR * stórmeistarasería - Upplag peningsins er takmarkað við 100 gull-, 500 silfur- og 1000 koparpeninga, sem allir verða númeraðir. Peningurinn er teiknaður aí Halldóri Péturssyni listmálara, en sleginn lijá ÍS-SPOR hf. Reykjavik. Pöntunum er veitt móttaka hjá Söludeild Svæðisinótsins að Hótel Esju, Samvinnubankanum, Bankastræti 7, Versl. Klausturhólum Lækjargötu 2 og hjá félögunum.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.