Vísir


Vísir - 29.10.1975, Qupperneq 19

Vísir - 29.10.1975, Qupperneq 19
VtSIR. Miðvikudagur 29. október 1975 19 Jú, þetta er allt á sinum stað, en samt vissara að „tékka” á því. Sigfús sölustjóri opnaði vélarhlifina á einum bilanna, og tilvonandi kaupendur þyrptust að — liklega til að gá hvort vélin væri ekki á sinum stað. , , <7 uppboði hjó Sölunefndinni Ætti maður aö gera tilboð i hann þennan? Já, best að gera það. Aldrei að vita neina maður sé heppinn. Kkki gleyma samt að reikna með söluskattinuin. Það eru bara svo ansi margir sem gera lika tilboð. Á hverjum þriðjudegi er uppboð á bílum hjá Sölunefnd varnarliðs- eigna. Þar eru boðnir upp 6 til 7 bílar, yf irleitt ame- rískir, sem áður hafa verið í eigu varnarliðsins eða einstaklinga hjá varnarliðinu. Oftast koma fleiri hundruð manns í Sölu- nefndina á Grensásvegi, til að spá í bílana og gera tilboð í þá. Vísismenn brugðu sér inn i Sölunefnd í gær, til að f esta eitt svona uppboð á filmu. En fyrr en varði var kaupæðið einnig runnið á blaðarhennina og þeir runnu saman við hópinn, og voru manna ötulastir vð tilboðagerð- ina. Það er furðulegt æði sem grípur menn á upp- boðum.... Meira að segja þessi óhrjálegi Karmann Ghia fékk tilboð (þó ekki frá okkurl. Ilmmm.... það er vist eins gott að ganga úr skugga um að rispurnar séu ekki of margar. — Sjáiöi, hann er meira að segja með hanskahólf. En það er vist það eina góða sem hægt er að segja um hann. Meira að segja verðir laganna voru komnir til að skoöa. Ætli þetta sé drauma-Iöggubillinn? Sigfús Jónsson. sölustjóri, tók þessu öllu með jafnaöargeði, enda búinn að starfa við þetta i mörg ár. Texti: Ólafur Hauksson Myndir: Loftur Ásgeirsson

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.