Tíminn - 13.11.1966, Blaðsíða 1

Tíminn - 13.11.1966, Blaðsíða 1
260. tbl. — Sunnudagur 13. nóvember 1966 — 50. árg. r ■' Gerizt áskrifendur a5 Tímanum. Hringið í síma 12323 24 SÍÐUR Auglýsing f Tímanum kemur daglega fyrir augu 80—100 þúsund lesenda. Gilitrutt fram- haldsleikrit í barnatíma hjá Sjónvarpinu GÞE-Reykjavík, laugardag. Svo sem frá var skýrt í blaðinu í fyrradag, eru samningar milli félags ísl. leikara og sjónvarpsins nú á lokastigi. Fregnaði blaðifí í dag, að þeir yrðu líldega undir ritaðir n.k. mánudag og verður þá vonandi bráðlega hafizt lianda um upptöku leikrita og leikþátta en efcki er enn vitað, hvaða leik rit verða fyrir valinu til að byrja með. Hins vegar hafa þegar verið tek in upp nokkur barnaleikrit fyrir bamatíma sjónvarpsins, en leik endur þar hafa verið skólabörn. M.a. hefur verið tekið upp barna leikritið Gilitrutt, og verður það framhaldsleikrit. Állinn, sem lifnaði við Maðurinn hér á myndinni fór ásamt syni sínum inn í fiskbúð í Varsjá Póllandi, á dögunum og keypti sér þar ál þann, sem þeir balda á hér á myndinni. Er þeir voru að labba heim á leið með áfbm, vaknaði hann skyndilega til Msins og lét öllum illum látum, og áttu feðgamir í fuilu fangi með að halda honum eins og sjá má. TVÖ JAFN- TEFLI VIÐ SOVÉTRÍKIN í sjöundu umferð á Ólympíuskákmótinu tefldi ísland við Sovétríkin og lauk tveimur skákum með jafntefli, en tvær fóru í bið þanniq að staðan er 1:1 og 2 biðskákir. Friðrik og Spassky gerðu jafntefli á 1. borði og einnig Guðmund ur Pálmason og Stein á þriðja borði. fslenzku skák mennirnir höfðu hvitt í þess um skákum. Biðskák varð varð hjá Inga R. og Tal á 2. borði, og hjá Gunnari Gunnarssyni og Poluga- evsky á 4. borði. Úrslit í öðrum leikjum urðu, að Danmörk vann Þýzkaland með 2 1/2-1 Vz Bandarikin unnu Noreg 31 og Spánn og Rúmenía gerðu jafntefli 2-2. Tékkar hafa tvo vinninga gegn ein um vinning Júgóslafa, ein biðskák. Argentína hefur 2 1/2 vinning gegn hálfum Búlgara tvær biðskákir, og Ungverjaland hefur tvo vinninga gegn Kúbu tvær biðskákir. C—,, , ...j BÚRFELLSSAMNINGAR GANGA HÆGT: Á MÁNUDAG OG ÞRIDJUDAG? VERKFALL EJ—Reykjavík, laugardag. Sáttafundurirm í Búrfells deilunni, sem hófst í gær- kvöldi kl. 20.30 varð árang urslaus. Var honum slitið á fyrsta tímanum í nótt. Nýr sáttafundur hófst í dag kl. 14 og var honum ólokið, þegar blaðið fór í prentun. Starfsmenn við Búrfell hafa boðað verkfall á mánudag og þriðjudag, og í dag voru allar líkur á að það verkfall kæmi til framkvæmda. Eins og áður hefur komið fram í blaðinu, er mikið los á mannskapnum við Búrfell, og hætt við, að margir hætti á næstunni, ef viðunandi sam- komulag næst e'klki fljótt. Aðalvél Hamra- fellsins bilaði SJ-Reykjavík, laugardag. skipadeildar SÍS, sagði í viðtali við blaðið í dag, að vonir stæðu Olíufiutningaskipið Hamra- til að áhöfnin gaeti sjálf fram- fell, sem er nú á heimleið með kvæmt bráðabirgðaviðgerð, og fullfermi af gasolíu frá Rúmen mun skipið halda áfram ferð íu, varð að stöðva ferð sína sinni til Reykjavíkur um leið um 100 sjómílur suður af og viðgerð hefur farið fram. Vestmannaeyjum vegna biiun f morgun var veður heidnr ar f aðalvél skipsins. Hjörtur slæmt á þeim slóðum þar sem Hjartar framkvæmdarstjóri Framhald á 11. sfðu Ágreiningur um gul Ijós bifreiða FB-Reykjavík, laugardag. Nokkur ágreiningur er nú ris inn upp vegna gulra Ijósa á bif reiðum, en samkvæmt lögum um ljósabúnað skulu há ljós lýsa ak- brautina vel með hvítu eða dauf gulu ljósi, að minnsta kosti 100 metra fram fyrir bifreiðina. Á greiningurinn er um það, hvað skær þessi gulu Ijós mega vera og hefur nú verið boðað til fund- ar með yfirmanni bifreiðaeftirlits ins umferðarlögreglunnar, fuli trúa Ljóstæknifélagsins og FÍB sem fulltrúa bifreiðaeigenda. Við hringdum í Magnús Valdi- marsson hjá FÍB og spurðum hann nánar út í þessi ljósamál. Sagði hann, að komið hefði í ljós, að gulu Ijósin eru mismunandi sterk, og er þetta nú í athugun hjá bifreiðaeftiriitinu og vegalögregl unni. FÍB hefur mikinn áhuga á að ræða þetta fyrir bönd bifreiða- eigenda og hefur því óskað eftir fundi með viðkomandi aðilum, og verður sá fundur haldinn í næstu viku. Framhald á bls. 11. HEITT VA TNIFJ0RÐU B0RH0LU HÚSVlKINGA GÞE—Reykjavík, laugardag. Svo sem kunnugt er hafa heitavatnsboranir staðið yfir á Húsavík um alllangt skeið með góðum árangri, en heitt vatn hefur þegar fengizt úr þremur borholum. Fyrir þrem mánuðum var hafizt handa um fjórðu borholuna, og nú þegar komið er niður á 567 metra dýpi er farið að hyllaj undir árangur samkvæmt upp lýsingum, er blaðið fékk frá Raforkumálaskrifstofunni í dag. Vatnsborðið í holunni var um 6 metrar á hæð í gærkvöldj og var þá farið að dæla upp úr henni. Hins vegar reyndist hita- stigið fremur lágt og stafar það líklega af því, að skolvatn frá borunum hefur blandazt saman við vatnið í holunni. Um helgina verð ur haldið áram að dæla, og fari hitastigið ekki hækkandi eftir því sem lengra dregur, verður farið að bora á ný, að því er Björn Frið- steinsson, bæjarstjóri á Húsavík tjáði Tímanum í dag, en dýpt hinna borholanna þriggja er 500 —1500 metrar. Ef vel tekst til með þesa fjórðu borholu eru líkur fyr- ir því, að heita vatnið nægi til varmaveitu fyrir allan Húsavíkur kaupstað. Greinaflokkur um Víetnam Um fátt er nú meira rætt í heiminum en styrjöldina í Vietnam. Þar s^m skoðanir um hana eru nokkuð skipt- ar, þykir Tímanum rétt að birta yfirlitsgrein eftir merk an fréttamann Neil Sheehan sem dvaldi í Vietnam 1962— 64 og aftur 1965—66 sem fréttaritari bandaríska stór. blaðsins New Vork Times. Sheehan kom heim frá Viet nam i ágústmánuði síðastl. og hefur nú það verkefni að fylgjast með Pentagon, hinni miklu miðstöð banda. ríska hersins í Washington. Grein Sheehans birtist í „The New YorkTimes Maga zine“ 9. okt. síðastl. og bar fyrirsögnina „Not a Dove, But No longar a Hawk.” (Ekki dúfa en ekki lengur haukur.) Þar sem greinin er alllöng er hún aðeins stytt í þýðingnnni. Þá verð ur ekki komizt hjá því að skipta henni í nokkur blöð. Fyrsti kaflinn birtist á 5. siðu blaðsins í dag.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.