Tíminn - 13.11.1966, Qupperneq 9
SUNNUDAGUR 13. nóvember 196G
TÍIVUNN
t.d. árið 1933 synjað um skipun
í kennarastarf það, er hann hafði
verið settur til að gegna þremur
árum áður, á þeim forsendum að
eigi þætti rétt að festa embætli
við stofnun, sem gera yrði ráð
fyrir að lögð yrði niður á næst-
unni. Um þessar mundir barst
skólastjóra Eiðaskóla, tilboð að
vísu munnlegt, að taka að sér ný-
stofnaðan og velútbúinn héraðs-
skóla á öðru landshorni og þess
jafnframt getið að til mála kæmi
að taka skólahúsin á Eiðum til
afnota fyrir fávitahæli, sem taliö
var að brýn þörf væri orðin fyrir.
Það stóð tæpt með Eiðaskóla um
þessar mundir, þessa einu al
mennu menntastofnun á öliu Aust
uriandi og eina þá elztu í land-
inu.
Austfirðingar hrukku að vísu
upp, er þeir spurðu hver örlög
kynnu að bíða þeirra og hóf
sókn honum til varnar. Þáverandi
skólastjóri sr. Jakob Kristinssr'n,
beitti allri sinni miklu snilld, orðs
og stíl, skóla sinum til sóknar og
varnar, en svo kunnugur þykis!
ég þessum málavöxtum öllum að
hefði gætt sama tómlætis og áður
um mál skólans, hefðu raddir þess
ara ágætu manna og mannfunda
enn á ný orðið að röddum hróp-
andanna á eyðimöririnni og ill
örlög skólans hefðu ekki orðið um
flúin.
En Eiðaskóla átti að verða
lengra lífs auðið.
Árið 1933 var Eysteinn Jóns-
son kosinn á þing í Suður Múla
son kosinn á þing í SuðurMúla-
sýslu. Hann var þá yngstur þing-
manna. Strax á því ári fór hann
að kynna sér ástand Eiðaskóla, at
hugar bréfaskipti skólastjórans við
ríkisstjórnina og áskoranir og
fundarsamþykktir varðandi fram
tíð skólans, sem gerðar höfðu ver
ið á undanförnum árum. Hann
verður var við endurteknar áskor-
anir að rfkið láti raflýsa á Eið-
wn. Gekk hann í það við ríkis
stjómina að hafin væri athugun
á hngsanlegum virkjunarmöguleik
mn, og þegar komið er á þing
það ár bera allir þingmenn Múla-
sýslna, Seyðisfjarðarkaupstaðar,
Austur-Skaftafellssýslu og Norður
Þingeyjarsýslu fram ályktun í
ameinuðu þingi þess efnis að
byggð verði rafstöð á Eiðum, er
nægi til Ijósa, suðu og hitunar,
þar með talið hitunarvatns í sund
laug og jafnframt yrði byggð sund
laug og leikfimihús af hæfiiegri
stærð.
Tillagan var samþykkt og frarn
kvæmd hennar olli straumhvörfum
í sögu skólans. Höfundur nennar
varð ári síðar fjármálaráðherra og
átti þá hægara um vik að rélta
skólanum örvandi hjálparhönd oa
hvetja menn til samstöðu um hann.
Sú saga skal eigi rakin lengra hér
en það fullyrði ég, allkunnugur
þessum málum, að engum einum
manni, er til pólitízkra áhrifa hafa
komizt á fslandi á Alþýðuskólan
um á Eiðum, og þeir sem bám
hag hans fyrir brjósti, meira að
þakka en Eysteini Jónssyni. Hann
kom þegar Eiðum lá allra mest á.
Á merkis tímamótum í ævi hans
skulu honum því færðar djúpar
þakkir, ekki aðeins frá mér fyrir
margháttuð samskipti út af mál
efnum skólans, þau ár er ég veitti
honum forstöðu heldur og allra
þeirra er létu sig framtíð þessarar
elztu menntastofnunar Austur-
lands nokkru skipta.
Ég tek mér það bessaleyfi að
bera þessar þakkir einnig fram i
nafni allra þeirra Austfirðinga og
annarra er skólans hafa notið á
einn eða annan hátt og þeir eru
nú orðnir all margir, sem Elða
skóli hefur stutt til nokkurs
þroská.
Þórarinn Þórarinsson.
fyrrv. skólastjóii.
Við óskum þér innilega til ham
ingju Eysteinn Jónsson. Að vísu
kemur okkur þessi aldur þinn
nokkuð á óvart, því hvern hefði
grunað, sem sá þig bruna á skið-
um niður Fannborgarjökulinn í
sumar, að þú værir að verða sex-
tugur. Eitt er víst, að „Elli kerl-
ing“ virðist hafa farið heldur
halloka í viðskiptum sínum við þig.
En þannig er það með menn, sem
lifa heilbrigðu lífi og efla lífs-
orku sína við hollar íþróttir og
útivist. Þeir varðveita æsku sína
og líkamsstyrk ótrúlega lengi,
þótt árin færist yfir þá.
Á þessum afmælisdegi þínum
minnumst við skíðamenn með þakk
læti ómetanleg? stuðnings þíns við
skíðaíþróttina í ræðu og riti og
við gerum okkur ve] Jjóst, hversu
mikilvægur sá stuðningur er. En
bezt kunnum við að meta kynnin
við manninn Eystein Jónsson og ó-
gleymalegar eru þær kvöldstundir,
er við áttum með þér að aftokn
um skíðadegi, þegar þú skemmtit
okkur með upplestri þínum og
gamansamri alvöru. Við minnumst
alls þessa með mikilli ánægju um
leið og við óskum þér langra og
gæfusamra lífdaga. Lifðu heill.
Skíðafélagar úr Kerlingarfjöllnm
☆
*
Þótt við hér á Tímanum séum
vanari því að sjá um birtingu á
afmælisgreinum í stað þess <
skrifa þær, þótti okkur ástæða til
breyta um sið, nú þegaj Ey-
steinn Jónsson er sextugur. f nær
fimmtíu ár hefur Framsóknarflokk
urinn verið útgefandi Tímans.
Hann fer því með æðsta vald
í málefnum blaðsins og kýs til
þess sérstaka blaðstjórn. Og þar
sem Eysteinn Jónsson er bæði
formaður Framsóknarflokksins og
formaður blaðstjórnar liggur f aug
um uppi að meririsdagur í lífi
hans er líka dagur handa okkur
starfsfólki Tímans, að minnast.
Gæti Eysteinn þó gegnt báðum
fyrrgreindum embættum, án þess
okkur á Timanum skipti miklu
máli stórir dagar í lífi hans. En
þessu er bara ekki þannig varið
með Eystein Jónsson. Ég held að
fáum mönnum sé jafn lítið og
honum gefið um að gegna emb-
ættum, sem hann sinnir ekki. Sem
formaður blaðstjórnar Tímans hef
ur hann alla tíð haft hin giftu-
drýgstu afskipti af blaðinu.
Það liggur í augum uppi, og
þekkja þó engir eins vel tU þess
og þeir sem við það vinna, að það
er enginn barnaleikur að geía út
dagblað hér á landi. Útgáfukosm
aður fer hækkandi ár frá ári, svo
að engar rekstraráætlanir stand-
ast deginum lengur. Og af þe*m
sökum meðal annars er alltaf á
brattann að sækja, þótt út-breiðsla
blaðs sé í sæmilegu lagi og reynr
sé að stilla j hóf með kostnað.
Við þannig aðstæður reynir mjög
mikið á skilning og útsjónarsemi
formanns blaðstjórnar, sem verð-
ur að taka á sfnar eigin herðar, í
fleiri en einurn skilningi, að halda i
blaðinu í sómasamlegu horfi. í
þessum efnum hefur Eysteinn
Jónsson unnið alveg frábært starf,
og megum við starfsmenn Tím
ans þakka honum það, að engir
erfiðleikar við útgáfuna hafa
mætt á okkur eða komið ofekur
í koll á neinn máta. Má vel segja,
að við hefðum átt að geta svarað
þessu með því að gera blaðið bet-
ur úr garði, en þar verður við að
sitja eins og hverjum líkar.
Við sem alla jafna gerum tölu
vert með blaðamennsku, erum
stundum spurðir að því, hvarnig
okkur falli sambýlið við útgefend-
ur, sem í þessu tilfelli er Fram-
sóknarflokkurinn. Þróunin nefur
orðið sú á síðustu áratugum, að
litið er á blöðin í stöðugt vax
andi mæli sem fréttastofnanir og
miðlara almenns efnis. Þetta hef-
ur jafnframt leitt til þess að blaöa
menn ráðast nú milli blaða í meiri
mæli en áður. Með þessu aukna
frjálslyndi kveður alveg við nýi-
an tón í hinni stjórnmálalegu
blaðaútgáfu. Hvað viðvíkur Tím-
anum hefur Eysteinn Jónsson ver-
ið sérstaklega glöggskyggn á be-ssa
þróun mála, og mun þó enginn
væna hann um, að hann sé ekki
harðfenginn stjórnmálamaður,
þegar því er að skipta. Siðan
hann varð formaður blaðstjórnar
hefur Tíminn orðið fjörlegra og
fjölþættara blað, og til hans er
alltaf að sækja hvatningu um
meiri fjölbréytni 0g meiri sókn
á hinn almenna vettvang. Samstarf
hans við blaðið hefur alltaf verið
sérstaklega ánægjulegt og um
hyggja hans fyrir blaðinu alhl’.ða.
Blaðið hefur einnig notið góðs
af þeim eiginleika, sem oft hefur
vakið verðskuldaða aðdáun á hon
um sem stjórnmálamanni, hve
fljótur hann er að átta sig á því
sem að höndum ber. Ljós rök-
semdarfærsla sem leiðir til rök-
réttrar niðurstöðu virðist honum
í blóð borin. Þótt ég hafi oft orð
ið þessa var þegar blaðið hefur
verið til umræðu, munu þeir kann
ast enn gerr við þennan eigin
leika, sem hafa staðið með hon-
um á sjálfum orrustuvelli stjórn-
málanna.
Eysteinn Jónsson ber gott skyn
bragð á það, hvað teljast verður
góð blaðamehnska. Og ég efast
um að aðrir séu meira inni í þeim
málu-m en hann, og öllu því sem
að blaðaútgáfu lýtur. Auðvitað er
það hreinn hvalreki fyrir eitt
blað, þegar til forsjónar þess velst
maður, sem hefur lifandi áhuga
á öllu þvi sem útgáfustarfsemina
snertir Hvað Eysteini viðvíkur er
kannski ekki rétt að tala um
áhuga. Hann er mikið meira tengd
ur Tímanum en svo og Tíminn
honum os bað eru hin farsælustu
tengsl.
Nú á þessum merkisdegi vii ég
leyfa mér að flytja afmæúsbam
inu alúðarkveðjur starfsfólks Tím
ans með þökkum fyrir samstarf og
forsjá á liðnum árum. Allir vita,
að Eysteinn Jónsson er mikill
stjórnmálamaður Hitt munu færri
vita, að Tírninn væri ekki það
sem hann er í dag, ef hans nyti
ekki við.
Indrlði G. Þorsteinsson.
PIANO -
FLYGLAR
Steinway gj Sons
Grotrian-Steinweg,
Ibach,
Schimmel.
F|ölbreytt úrval
5 ára ábyrgð.
PÁLMAR ÍSÓLFSSON
& PÁLSSON
Pósthólf 136
símar 13214 og 30392.
Yfirburðir
DEUTZ-dráttarvélanna
dyljast ekki
•ic Loflkældir, gangþýSir DEUTZ-dieselhreyflar — landsfrægir fyrir endingargæði og
sparneytni. Sama hreyfilgerS I öllum DEUTZ-dráttarvélum.
★ Öryggisgrlnd, sem gera má úr rúmgott hús, smíSum vér í eigin verkstæSum.
★ VellagaS, svampklætt ekilssæti á löngum fjaSurarml veltir heilsu ySar vernd gegn
hristingi og hnjaski.
★ Fljótvirkt og sterkt DEUTZ-Transfermatic-vökvakerfi, óháS gírsklptingum, gerir
notkun ámoksturstækja auSvelda og iipra.
"A" Aurbretti viS framhjól og brelð affurbretti hlífa ökumanni og dráttarvél vlS aurkasti.
ir Festikrókur aS framan og hæSarstillanlegur dráttarkrókur aS aftan stækka notkunar-
sviS vélarinnar.
★ Höggdeyfar viS framhjól auka enn frekar á öryggl og þæglndl viS akstur á vegum
og vegleysum.
★ Hliðarsæti fyrir farþega eru þægindl sem aSeins DEUTZ-eigandinn getur boðið fólki
sinu upp á.
DEUTZ-dráttarvélarnar hafa fullkomnasta búnaS fyrlr (slenzka sfaShætti.
Hlutafélagið HASVIAR, véladeild
Sími 22J23, pósthólf 1444, Tryggvagötu, Reykjavfk.