Vísir


Vísir - 20.11.1975, Qupperneq 5

Vísir - 20.11.1975, Qupperneq 5
VISIR Fimmtudagur 20. nóvember 1975. 5 FLUGMAL UMSJON EDDA ANDRESDOTTIR ..Annars getum við sagt, að ég sé með endastöð i Vestmanna- eyjum, en ég held uppi flugi á næstu velli við Eyjar.” „Skemmtilegustu far- þegarnir minir eru dýr” Á þessu ári hefur B jarni flogið með 1600 farþega. „Það er ótrú- lega mikið. Ég trúi þvi varla sjálfur.” Og hann nefnir sem dæmi, að daginn eftir að þjóð- hátiðinni i Eyjum lauk, flaug hann með 128 farþega á einum degi. „Skemmtilegustu farþegarnir sem ég flýg með, eru dýr,” segir hann. „Ég hef flogið með ýmiss konar dýr, hunda, ketti, endur. hænsni, svin og sauðfé. Dýrin virðast kunna vel við sig i loft- inu.Hundarnirdorma og það er eggjahlióð i hænsnunum.” „En hver er skemmtilegasti flugtúrinn þinn?” „Ætli það sé ekki bara túr með Loftleiðum til New York!” Langar i litla 2ja hreyfla vél búna góðum tækjum — Hvað ætlarðu þér i fram- 'iðinni? ,,í vetur fer TF-BKG á sölu- skrá. Mig langar hins vegar að ' omast yfir litla tveggja hreyfla vél,búna mjög góðum tækjum, sem eykur likurnar á flugi, með tilliti til sjúkra- og neyðarflugs. „Við höfum flogið mikið sjúkraflug, en nú langar okkur að veita alla þá þjónustu sem völ er á.” „Ég hef lika alltaf haft geysi- legan áhuga á þyrlu. Þó er ég að verða uppgefinn á skriði, á eins hreyfils vél og ég er hræddur um að það verði enn meira skrið á þyrlu. Samt hef ég áhuga en það er ekki timabært, og óþarf- lega dýrt til þess að leika sér að þvi. Svo hef ég að sjálfsögðu áhuga á þvi að bæta starfsem- ina i framtiðinni.” „Hann er galdramaður hann Guðjón”, segir Bjarni um flugvirkjann, sem þarna er að skoða „GOSIД aðra vél Bjarna í Reykjavfk. Það sakar ekki öryggisins vegna að láta skoða vélina. Ljósm.: BG. Bjarni flytur aðallega'farþega, en einnig landbúnaðarafurðir og dýr. Þarna er hann lentur I Vestmanna- cyjum og að sjálfsögðu biður Trabant eftir honum. Bilaleigan hans er nefnilega með þá tegund bila á boðstólum. Ljósm. GS. ,,Ég sé aö vísu aldréi peninga.........” — Er ekki einhverju ábóta- vant á þeim völlum sem þú hefur mest af að segja? „Jú, ég mundi segja að það vantaði ýmsa hluti. Mitt álit er það að það þurfi radióvita á Hellu. Með tilliti til þess að þar eru ljós, þá er æskilegt að hafa radióvita þar lika. Það er lika æskilegt að hafa radióstefnuvita á Stórhöfða. Þetta mundi auð- velda mönnum i ferjuflugi og mönnum á minni vélum að bjarga sér i erfiðum skilyrð- um.” — Hefurðu einhvern tima orðið fyrir einhverju i fluginu? „Ja, það brotnaði einu sinni nefhjól hjá mér og einu sinni skrúfa. Svo nauðlenti ég einu sinni. Ég var þá i flugi yfir Bláfjöllum með fulla vél af far- þegum. Mótorinn missti afl og ég nauðlenti á Sandskeiði. Ég hefði sjálfsagt haldið hæð, en það vissi ég ekki fyrr en á eftir.” — Græðirðu á fluginu? „Afkoman er þokkaleg. Ég sé að visu aldrei peninga, þvi er ég alltaf að borga eitthvað. En nú á ég tvær flugvélar, svo maður hlvtur að hafa efnast á þessu'." — EA Flugfélagið er meira og minna rekið á heimilinu, og allir á heimil inu geta, „tékkað veður”. Hér er Bergþór, sem oft gefur veður- lýsingar. Ljósm. GS. „Ég var alltaf sjóveikur á meðan égvar á sjónum hér áður. Nú er ég það ekki lengur, og ég held aðflugið hafi sjóað mig!” Usta i sambandi við flugið og það fólk sem ferum flugvöllinn. Bilaleiga er þjónusta sem þarf að hafa i hverjum bæ.” En hvert flýgur Bjarni helst? „Þetta er aðallega flug frá Eyj- um á Hellu og Selfoss. Það sem af er- þessu ári höfum við lent 125 sinnum á Selfossi og senni- lega um 170 sinnum á Hellu. Aðallega er um farþegaflug að ræða, en ég flýg lika með land- bUnaðarafurðir og dýr.” — spjallað við Bjarna Jónasson í Eyjum, sem rekur þar bœði flugfélag og bílaleigu „Ég held að ég liafi aldrei fengið flugdcllu, en hins vegar gæti ég fengið hana einhvern daginn. Ég er sem sagt farinn að finna mig i einhverju, og kann betur og betur við mig i fluginu”. ,,Ég hafði engan sérstakan áhuga fyrir fluginu þegar ég fór að læra, en ég hafði reynt margt um dagana, og þvi þá ekki að reyna þetta lika?” Og i dag rekur hann flugfélag i Vestmannaeyjum. Hann heitir Bjarni Jónasson, og flugfélagið kallar hann: „Eyjaflug Bjarna Jónassonar.” t dag á Bjarni tvær flugvélar af gerðinni Piper Cherokee 4 og 6-7 sæta en hann byrjaði með eina Cessnu 150, tveggja sæta og eins hreyfils vél. „Cessnuna keypti ég 1969, og var þá rétt kominn með sóló- prófið,” segir Bjarni. „Ég vil nú samt ekki segja að ég hafi verið orðinn fleygur, þegar ég keypti vélina. Ég var eiginlega drifinn i gegnum sólóprófið, lafhrædd- ur, og varð svo ekki fleygur fyrr en sfðar.” En vélina keypti hann og rak nokkurs konar flugskóla i Eyj- um. Að visu kenndi hann ekki sjálfur,en vélina útvegaði hann. ...,,og sagði þá bara: Gúdbæ sjór!” ,,Ég var áður á sjónum”, seg- ir Bjarni. „I10 ár. Ég var lengst af vélstjóri en siðar stýrimaður og skipstjóri en fiskaði litið og sagði þá bara : Gúdbæ sjór! Ég fór iland og fór að vinna i frysti- hús. En svo fór ég að fikta við flugið. Ég var alltaf sjóveikur áður, — á meðan ég var á sjón- um, en ég er það ekki lengur. Ætli flugið hafi ekki sjóað mig! ” „Þetta var voðalegt basl eftir að ég fékk Cessnuna. Það var ekkert flugskýli i Eyjum, og maður stóð i þvi að byggja það. borga vélina, og var svo meö fullt hús af krökkum — fullt á nútima mælikvarða!” Aðra Cherokee-vélina. TF-BKG fékk Bjarni i mai ’73. „Spræk vél”, segir hann. TF-GOS fékk hann svo ári siðar. Cessnuna seldi hann. Meira og minna rekið á heimilinu Það má segja að flugfélagið sé meira og minna rekið á heimili Bjarna. „Konan og börnin sjá um símaþjónust- una”, segir hann. „Allir á heimilinu, allt niður i 7 ára ald- ur, geta tékkað á veðrinu. Ef ég er úti á landi og hringi heim, fa ég ágætar upplýsingar um skýjahæð og annað, ef einhver er heima.” Tvéir synir Bjarna eru komn- ir langt i flugnáminu. „Það er þó ekki svo að flugið þrúgi okkur á heimilinu, langt frá þvi. Við önsum til dæmis ekki flugi á nóttunni, nema um neyðarflug sé að ræða.” „Það var nokkuð strembið að kaupa TF-BKG”, segir Bjarni. „Ég bauð hálfa milljón i útborg- un og siðan björguðu góðir kunningjar málinu.” Flugfélag — og bilaleiga Bjarni hafði enga flugvél þeg- ar gosið i Eyjum hófst. Þá vann hann við uppbyggingu i Eyjum, en um vorið hófst leiguflugið af krafti. Siðan hefur Bjarni ekki fengist við annað en flugið. Jú, að visu.. Það er ekki langt siðan, hann hóf rekstur bilaleigu i Eyjum. Það er eina bilaleigan á landinu, og þó viðar væri leitað, sem biður upp á Trabant. Bjarni er með þrjá bila, sem Eyjamenn leigja mest sjálfir. „Þetta var hugsað sem þjón- „ÆTLI FLUGIÐ HAFI EKKI SJÓAÐ MIG"

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.