Vísir - 20.11.1975, Side 20

Vísir - 20.11.1975, Side 20
I-«1IN<Z g-g IgQJJJtt <ZQgmifl 'OZO §'Qg- li.gUJDD- J-U)< (í J-<*- 20 Fimmtudagur 20. uóvember 1975. visrn Spáin gildir fyrir föstudaginn 21. nóvember: Hrútxirinn ________J 21. mars—20. april : Þú átt margra kosta völ i sam- bandi við vinnuna og skemmtanalifið. Gættu eigna þinna vel, það girnist einhver dýrmætan hlut sem þú átt. Nautiö _________ 21. apríl—21. mai: Athyglisgáfa og hugmyndariki þin eiga sér litil takmörk þessa dagana, hafðu augun opin og gáðu hvort þú getur ekki bætt eigin hag Likur benda til að lif þitt taki óvænta stefnu. m Tviburarnir 22. mai—21. júni: Möguleikar á að bæta fjárhag þinn eru á næsta leyti. Taktu eng- ar ákvarðanir fyrr en að vel at- huguðu máli. Farðu út að skemmta þér, þú gætir hitt óvenju skemmtilega persónu. Krabbinn 21. júni—22. júli: Þú ert óvenju fljótvirkur I dag, það kemur sér vel þvi óvænt verkfni biður þin þegar heim kemur. Láttu ekki slá þig út af laginu, þetta getur orðið þér mikil tekjulind i framtiðinni. HL Ljóniö 24. júli—23. ágúst: Einhvers staðar leynast maðkar i mysunni. Vinsældir þinar hafa al- ið á öfundsýki óvina þinna. Vertu varkár i framkomu og reyndu að finna leið út úr ógöngunum. Eyddu kvöldinu heima. ía Meyjan 24. ágúst—23. sept.: Það er hætt við að þú missir vini þina ef þú ert alltaf óþolinmóður og ókurteis. Vertu kátur og taktu meiri þátt i félagslifi en undan- farið. Þú leysir engan vanda með þvi að draga sængina upp fyrir haus. Vogin 24. sept.—23. okt.: Vinnuvikan endar með miklum bægslagangi, liklegast kemstu ekki hjá þvi að troða öðrum um tær. Hættu þér ekki á ókunnar slóðir, það er best að leika á heimavelli. Drekinn _________ 24. okt.—22. nóv.: Það er liklegt að þú farir i ferða- lag og endurnýir gömul kynni. Hreinsaðu andrúmsloftið heima fyrir og talaðu hreint út um hlut- ina. Bogmaöurinn 23. nóv.—21. des.: Það er aldrei gott að böðlast áfram, reyndu að leysa málin með lempni. Þú færð fréttir langt að. Stjörnurnar ráðleggja þér að fara varlega I umferðinni. Steingeitin 22. des.—20. jan.: Reyndu að særa ekki aðra með tillitsleysi. Þú tekur þátt i rök- ræðum um mál sem er þér hug- leikið og gætir orðið fróðari af. Vertu tilbúinn að þiggja hjálp sem veitt er að góðum hug. Vatnsberinn 21. jan.—19. febr.: Einhver vandamál gætu komið i ljós i sambandi við vinnuna. Taktu á honum stóra þinum og leystu þau sjálfur. Þú ættir að gera við bilinn þinn áður en verra hlýst af. Fiskarnir _________20. febr.—20. mars: Fjölskyldan er þér erfið I skauti taktu þvi með jafnaðargeði. Hafðu ekki of mörg járn i eldinum I einu. Þú færð hrós fyrir vel unn- ið starf.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.