Vísir - 26.11.1975, Page 3
Miðvikudagur 26. nóvember 1975.
3
Gómuðu búðarþjóf
15 ára gamall piltur gerði
tilraun til þess að stela úr
versiun rétt eftir hádegið i
fyrradag. Hann var hándtek-
inn á staðnum, en var með
varningsem liann hefur senni-
lega tekið annars slaðar.
Pilturinn kom ásamt öðrum
inn i skartgripaverslun við
Laugaveg 8 um klukkan hálf
eitt i gærdag. Afgreiðslufólk
var að sjálfsögðu i
versluninni, en hann lét það
ekkert á sig fá. Hann notaði þó
kunningjann til þess að ekki
bæri eins mikið á honum sjálf-
um.
Hann tók siðan úr, en af-
greiðslufólkið varð vart við
þjófnaðinn og gerði lögregl-
unni viðvart. Úrið var 20
þúsund króna virði.
Á piltinum fundust siðan
bækur sem hann hefur senni-
lega tekið annars staðar. Pilt-
ur þessi hefur oft áður komið
við sögu hjá lögreglunni.
-EA.
Rukkuðu fyrir blað með
fölsuðum reikning
„Mér fannst framkoma stúlkn-
anna eitthvað svo dularfull, að ég
var viss um að ekki væri allt með
felldu,” sagði kona nokkur sem
býr iHeimunum.þegar hún hafði
samband við blaðið.
Barið var á dyr hjá henni á
laugardagskvöldið, og voru tvær
stúlkur, 9 og 12 ára, fyrir utan.
Kváðust þær vera að rukka fyrir
Morgunblaðið i október.
Konan var erlendis þann
mánuð og fékk þvi ekki blaðið.
Stúlkurnar voru fljótar að átta sig
og sögðu þetta misskilning, þær
væru að rukka fyrir nóvember.
Engan höfðu þær þó reikning-
inn og fóru við svo búið. Klukku-
stund siðar komu þær aftur og þá
með reikning. En konan sá strax'
að hann var falsaður, en sagði að
sjóndapurt fólk hefði þó örugg-
lega ekki greint það.
Hún vissi lika vissi lika að ekki
væri krafist borgunar fyrir
nóvember fyrr en i desember-
mánuði. Stúlkurnar fengu þvi
heldur óbliðar móttökur.
,,Ég vildi bara vara fólk við, og
þá helst sjóndapurt fólk á eftir
árum,” sagði konan, sem sendi
falsaða reikninginn til Morgun-
blaðsins til viðvörunar.
— EA
Fó ekkí
Félagsstofnun stúdenta hef-
ur fengið neitun um fram-
reiðslu iéttra vina i Stúdenta-
kjallaranum sem rekinn er i
tengsium við Matstofu stú-
denta i Stúdentaheimilinu við
Hringbraut.
Umbeðið vinveitingaleyfi
hefur verið til meðferðar i
létt vín
dómsmálaráðuneytinu, og
hefur ráðuneytið m.a. íeitað
umsagnar borgarstjórnar
Reykjavikur og matsnefndar
vinveitingahúsa. Að athuguðu
máli hefur ráðuneytið nú til-
kynnt Félagsstofnun stúdenta
að eigi verði fallist á útgáfu
umbeðins vinveitingaleyfis.
-VS
Kannski það sé til
þess að bjarga við
g ja ldey r is á sta ndi
þjóðarinnar að menn
hafa farið um og reynt
að selja brasiliskan
gjaldeyri.
Menn þessir hafa varið viða
og selt mönnum þennan gjald-
miðil og jafnframt sagt að verð-
mæti hans væri hið sama og
svissneska frankans.
Seðlabankanum fengust þær
upplýsingar að brasiliski gjald-
miðilinn héti „cruzeiros” og
væri ekki skiptanlegur hér á
landi. Við öll okkar viðskipti við
brasiliumenn væru dollarar
notaðir.
Brasiliumenn þurfa nefnilega
að striða við sama vandamál og
islendingar, óðaverðbólguna.
Og þvi er gjaldmiðli þeirra
mjög vantreyst i viðskiptum.
Það er þvi ástæða fyrir fólk að
gæta vel að sér ef þvi er boðinn
brasiliskur gjaldmiðill til
ka'ups. E.K.G.
r
Alit Hafrannsóknar-
stofnunarinnar:
UFSINN ER FULLNYTTUR
- KARFINN OFNÝTTUR
i samningsdrögum
þeim sem nú liggja fyrir
eftir viöræöur islendinga
og vestur-þjóöverja er
gert ráö fyrir 60 þúsund
tonna hámarksafla vest
ur-þjóðverjum til handa.
Áf þeim af la verði um 55
þúsund tonn, ufsi og
karfi.
,,Svartnættisskýrslan",
skýrsia Haf rannsóknar-
stofnunarinnar sem svo
mjög var umtöluð gefur
upplýsingar um ástand
þessara fiskistofna.
Rannsóknir á ufsastofninum
benda til þess að hann sé
fullnýttur, en hámarksaf-
rakstur hans er talinn 100
þúsund tonn á ári. Samkvæmt
niðurstöðum Alþjóðahafrann-
sóknarráðsins er þó ekki talið
ráðlegt að veiða nema 75 þúsund
tonn árið 1976. Á árunum 1971-
1973 var hlutdeild islendinga i
heildaraflanum 50%.
,,Á undanförnum árum hefur
veriö gengið of nærri karfa-
stofninum. og veiðin hefur i æ
rikari mæli verið borin uppi af
smákarfa.”
„Brotthvarf erlendra fiski-
skipa af miðunum skapar
möguleika á auknum karfa-
veiðum islenskra skipa án þess
að um ofnýtingu stofnsins yrði
að ræða.”
Útlendingar hér við land veiddu
um 52-65% karfaaflans á árun
um 1971-1978. Heiidarafii á
karfa á þessum árum var að
meðaltali um 76 þúsund tonn á
ári. Árin 1973 og 1974 var meðal-
aflinn á ári tæp 70 þúsund tonn,
„Með tilliti til þessa er mælt
með að ekki verði tekin meira
en 50 til 60 þúsund tonn af karfa
á árinu 1976.” -EKG.
YFIR 6100 NÖFN ERU ÞAR SKRÁÐ
Saga Reykjavikur-
skóla I er fyrsta bindi
af tveggja til þriggja
binda verki um sögu
skóla þess, sem fyrst
var nefndur Hinn lærði
skóli i Reykjavik, síðar
Hinn almenni mennta-
skóli i Reykjavik og
loks Menntaskólinn i
Reykjavik.
Þetta fyrsta bindi, sem hlotið
hefur undirritilinn Nám og
nemendur er ofið úr tveimur
þáttum. Annar er ritgerð, sem
Kristinn heitinn Armannsson,
rektor, tók saman um reglu-
gerðir skólans og nám i einstök-
um greinum fram til 1946.
Hinn þátturinn er safn mynda
af nemendum skólans á ára-
bilinu 1869-1975, sem Heimir
Þorleifsson, cand. mag. hefur
náð saman og nafnsett með að-
stoð fjölmargra nemenda skól-
ans, eldri og yngri.
Þá hafa rektorarnir, Einar
Magnússon og Guðni Guð-
mundsson, samið kafla um
reglugerðir skólans eftir 1946. 1
þessu bindi eru ennfremur
skrár um kennara skólans i
hverri grein frá upphafi, og þar
eru margar myndir af kennur-
um, kennslutækjum og kennslu-
bókum. Þá eru nokkrar Faunu-
myndir af „inspectorum”.
Ritverkið um sögu Reykja-
vikurskóla gefur Sögusjóður
Menntaskólans i Reykjavik út.
Þennan sjóð stofnuðu flestir af-
mælisstúdentar 1974 og allir
afmælisstúdentar 1975 styrktu
hann mjög verulega. 1 stjórn
sjóðsins eru .Guðni Guðmunds-
son, rektor, Ólafur Hansson,
prófessor, og Þorbjörg Bjarnar
Friðriksdóttir M.A. -J- Bókaút-
gáfa Menningarsjóðs hefur
aðalumboð fyrir verkið, en rit-
stjóri er Heimir Þorleifsson.
Bókin er 296 blaðsiður i stóru
broti og ihenni eru hátt á fjórða
hundraðmyndirog teikningar. í
nafnaskrá eru liðlega 6100 nöfn.
—AG
Stúdentar 1869
1. Björn Jónsson rá<)ltrrru
2. Björn M. Olsen rcklor o(i all>m.
3. Guttormur Vigíússon preslur
4. Valdimar Bricm sálmuskáld
5. Jón borstcinsson prcstur
6. Páll Sívcrtscn prestur
7. Július Hulldórsson lœknir
8. Kristján Eldjárn bórarinsson prestur
9. Bogi Pétursson lœknir
10. Páli Olafsson prestur oa itllun.
11. Einar Gudjolinscn Iteknir
12. ll. Igi Mcl.-tcö stutl. tlieol.
A myndinui cr cklci:
Jón Jónsson prestur oallun.