Vísir - 06.12.1975, Page 2
risusm:
Hvaö viltu helst fá í jóla-
gjöf?
Kristján Pálsson: Ég vil helst fá
vesturþýska landsliösbúninginn!
Ég ætla að nota hann á æfingum
og i keppni, þvi að ég er mikill
iþróttamaður. Ég vildi gjarnan fá
bolta lika.
Júliana It. Indriðadóttir: Skiði
eða skauta. Ég hef aldrei átt slikt
en mig langar til að prófa það. Já,
já, ég er viss um að ég fæ ein-
hverjar jólagjafir, ég gef lika
gjafir sjálf, en það er verst að ég
á svo litla peninga.
Elln Einarsdóttir: Ég vildi helst
fá annað hvort skiði eða skauta,
en ég hugsa nú að ég fái það ekki,
þetta er svo dýrt. Ég veit ekki
hvað ég vildi þá annað, en ein-
hverjar gjafir fæ ég.
Jenný Gunnarsdóttir: Ég veit að
ég fæ einhverjar gjafir, kannski
færrien i fyrra. Mig langar einna
helst i útvarp eöa þá bók. Ég gef
lika gjafir sjálf fyrir eigin pen-
inga.
Jens Þór Svanson: Ég vil helst fá
hest, ég gæti haft hann i húsi hjá
pabba. Það gæti verið að pabbi
gæfi mér hest, en mig langar
ekki i neitt annað sérstakt.
Hjörgvin Björgvinsson: Mig
langar i fótboltaspil, — ég veit nú
ekki hvort ég fæ það, það kostar
svona 5—6 þúsund. Sjálfur er ég
núna að selja blöð, til að safna
fyrir jólagjöfum handa öðrum.
Laugardagur 6. desember 1975. VISIR
w
JOlAGtTRA UNIN 12)
Ætlar einhver að missa af mögu-
leikunum á þeim stórkostlegu verðlaun-
um sem bjóðast i jólagetrauninni? Þaö
er ekki of seint að taka þátt i keppninni,
hún hófst i gær og ef næsti blaðsölustað-
ur á ekki blaðið, má fá það á afgreiðslu
Vísis á Hverfisgötu 44.
Daglega veitum viö þrjá valkosti á þvi
i hvaða landi Steini og Gunna gæða sér á
rétti sem er einkennandi fyrir viðkom-
andi land og þjóð. Nú erum við komin i
annaö landið af þeim tiu sem heimsótt
verða. Fjölskyldan gæöir sér i dag á
rétti sem heitir Les Cremets d’Angers,
og það er i....
Steini slapparaf meöanGunna tilreið-
ir Les Cremets d’Angers, sem er eftir-
réttur.
1 hvaöa landi eru þau?
PORTÚGAL
□ FRAKKLANDI
□ BELGÍU
Setjið kross við rétta svarið, og geym-
ið seðilinn. Safnið öllum seðlunum tiu
saman, þar til getrauninni er lokið. bá
eru þeir sendir Visi, ásamt nafni og
heimilisfangi. Siðan verður dregið úr
réttum úrlausnum.
LES CREMETS
D’ANGERS
(eftirréttur)
1/4 1 rjómi, 2 eggjahvitur
Þeytiö rjómann stifan og þeytið
siðan eggjahviturnar sér.
Blandiö þessu varlega saman.
Hellið blöndunni i litlar virkörf-
ur, og breiðið þunnan, hreinan
dúk yfir. Látið þetta jafna sig á
köldum stað yfir nóttina.
Litlar virkörfur fást ekki hvar
sem er, og er þá hægt að nota
gott sigti.
Réttinn á að framreiða þannig
aö hliðin sem lá á virnum snúi
upp. Hellið óþeyttum rjóma
yfir, og hafið sykur með, i sér
skál.
Verðlaunin
Nordmende liljómtækið sem
er i verðlaun i jólagetrauninni,
er allt hið glæsilegasta.
i þessu tæki er að finna allt
það sem þarf til hljómflutnings
— nema kannski sjálfar
plöturnar eða snældurnar
(kassetturnar).
Tækið er plötuspilari, snældu-
segulband, magnari og útvarp.
Með þvi fylgja tveir hátalarar,
og tveir hljóðn.emar. Verðmæti
þess er 133 þusund krónur.
Þaðer Radíóbúðin sem flvtur
inn Nordmende tæki og selur
þau.
LESENDUR HAFA ORÐIÐÍ
Hvar var nú kurteisin?
Sjónvarpsáhorfandi skrifar:
, ,Ég hef fastlega átt von á þvi
siðan um helgi að sjá einhvern
,,opna sinn munn” á prenti Ut af
sjón varpsþættinum Kastljós
föstudagskvöldið siðasta i
nóvember.
Sú hefur þó ekki orðið raunin,
en samt veit ég að það urðu
fleiri hissa en ég.
Ástæða undrunar minnar var
framkoma iðnaðar- og félags-
málaráðherra vors, Gunnars
Thoroddsen. Hingað til hefur
mér fundist Gunnar manna
kurteisastur og prúðmann-
legastur i umræðum og viðtöl-
um á opinberum vettvangi, en
þarna varð ég fyrir miklum
vonbrigðum með henn.
Allt frá upphafi þáttarins var
framkoma hans slik, að ég gat
ekki annað fundið en meining
hans væri að reyna að gera
spyrjanda og aðalstjórnanda
þáttarins Svölu Thorlacius,
hlægilega og heimskulega i aug-
um áhorfenda.
Það tókst þó ekki, að minnsta
kosti ekki hvað mig snertir og
ég held að ráðherrann hafi mest
tapað á þessu sjálfur. Svala bar
þarna fram spurningar sem ég
álit að stór hluti þjóðarinnar
hafi einmitt viljað fá svör við.
Þess vegna veit ég að það
urðu fleiri fyrir vonbrigðum
með svör iðnaðarráðherra en
ég. Það eru ekki bara ráðherrar
og rikisstjórn sem verða að
,,Jón” skrifar:
„Mikið lifandis skelfing finnst
mér einkennilega staðið að máli
breska fréttamannsins sem
laumaðist í land af eftirlitsskip-
inu Miröndu. Aumingja maður-
inn fer i land eftir að hafa talað
við skipstjórann sem segir hon-
um að allt sé i' lagi og grænt ljós
hafi fengist fyrir hann frá ráðu-
neytinu. Nú honum er stungið i
stofufangelsi um nóttina og yfir-
horfast i augu við vandamálin i
sjávarútveginum, bæði þau sem
upp eru komin og þau sem eiga
eftir að koma i ljós.
Þjóðin öll verður að axla sina
byrði og þess vegna á hún lika
rétt á að fylgjast með fram-
heyrður um morguninn og þá
kemur hið sanna i ljós.
Eru svona aðgerðir ekki bara
til að mata fréttanef blaða-
mannsins?
Hvað gerði blessaður maður-
inn svona stórvægilegt af sér að
hann var eltur og settur i stofu-
fangelsi? Hann var einungis að
vinna sina vinnu, þurfti að koma
sinum fréttum heim á leið, nú og
auðvitað beitir góður blaðamað-
vindu mála hvort sem ráða-
mönnum er það ljúft eða leitt.
Hitt er svo annað mál að það
er sjálfsagt ekki eintóm ánægja
sem fylgir þvi að vera i farar-
broddi og þurfa að taka
ákvarðanir. Mér er raunar
óskiljanleg þessi stöðuga eftir-
sókn eftir „stólunum” en þeir
sem hafa hreppt þá verða lika
að sitja þá sómasamlega, þótt á
móti blási.”
ur öllum tiltækum ráðum til að
koma þeim áleiðis.
Mitt álit er að betra
hefði verið að gefa honum á-
minningu og gefa út yfirlýsingu
þess eðlis að ef þetta kæmi upp
aftur þá verði tekið á málinu
með töngum.
Jæja, við sjáum fljótlega
hvernig hann matar landa sina
á atburðinum og kannski er
þetta rangt mat hjá mér, en það
kemur i ljós.”
Er verið að mata frétta-
nef blaðamannsins...?