Vísir


Vísir - 06.12.1975, Qupperneq 14

Vísir - 06.12.1975, Qupperneq 14
14 Laugardagur ti. desember 1975. visir „Bjuggum nánast í stúdíói" segja strákarnir í iúdas, sem hafa varið 2,3 milljónum í gerð tíu laga hljómplötu ,,Júdas nr. 1” heitir frumburður hljóm- sveitarinnar Júdas, og er þá vitaskuld átt við hljómplötu. Til glöggvunar fyrir sjálft sig og lesendur sina, fór Tónhornið á stúfana, og náði tali af þeim félögum i Júdas. T. — Þetta hefur verið kostnaðarsamt verk? M. — Já, ætli að við höfum ekki sett 2,3 milljónir i fyrirtækið, sem miðast við fyrstu tvö þús- und eintökin svo ef þau seljast, sem við vitanlega vonum, þá er- um við hólpnir. V. — Við höfum lagt allar tekjur okkar i þetta fyrirtæki siðustu mánuðina. T. — Hvað tók upptakan langan tima? M. — Allt i allt tók hún heila 240 tima (til samanburðar má geta þess, að sóló plata Gunnars Þ. tók 90 tima), en við vorum i si- felldum aukavinnum, við að- stoðuðum t.d. Bjarka Tryggva- son, Sigrúnu Harðard., Megas. Fórum til Spánar o.fl., þannig að vinnan var alltaf að slitna i sundur og það hafði sitt að segia. 5. — Þrátt fyrir kostnaðinn hef- ur þetta verið ykkur mikil reynsla? M. — Mjög gagnleg og þrosk- andi reynsla fyrir hvern ein- stakling innan hljómsveitarinn- ar, en vissulega hafði þessi timi sin áhrif á hljómsveitina sem heild. T. — Nú? V. — Jú, það kom vissulega upp viss þreyta i okkur, við næstum þvi bjuggum i stúdiói og æfðum litið, fyrir utan þau lög sem komu til greina á plötuna. V. — Þetta hafði sín áhrif á markaðinn hérlendis, við spiluðum minna, fólk varð ergi- legt yfir gömlu prógrammi, og það hafði lika áhrif á okkur. M. — En núna erum við með nýtt, þrælgott prógramm. T. — Þið hafið verið nefndir eina „linu-hljómsveit” tslands, þ.e. spilað eingöngu ,,soul-funcky music”, verður einhver breyt- ing á þvi núna? M. — Já, við höfum verið mikið með þessa tegund tónlistar og teljum okkur algera brautryðj- endur á því sviði hérlendis, aðr- ar grúppur hafa svo fylgt þess- ari linu eftir. T.d. átti platan okkar upphaflega að vera reglu- lega ,,heavy”, þú veist, en svo fréttum við um aðrar með svipaðar hugmyndir, þannig að þetta breyttist og þróaðist á meðan að við vorum við upp- töku. T. — Þýðir það breytta tón- listarstefnu hljómsveitarinnar? M. — Nei, ekki beint, en góður tónlistarmaður er alltaf að spreyta sig á nýjum verkefnum', þannig þroskast hann i betri tónlistarmann. Við erum með ýmsar góðar hugmyndir i kollinum, en þær koma bara fram með timanum, þvi að grúppan er fýrst núna að kom- ast i hið andlega rétta form. Vignir og Finnbogi byrjuðu sem atvinnumenn i sumar, og fyrst núna eru þeir að komast i sviðs- ljósið. T. — Er ^Skveðið að fara til Ame- riku i janúar? F. — Það má endilega ekki mis- skiljast, við erum ekki að pæla i þvi að leggja Ameriku undir okkur, þetta á fyrst og fremst að vera okkur gagnlegt og þrosk- andi. T. — Er búið að ganga frá ráðn- ingum einhversstaðar? F. — Ekki 100% við komum að öllum likindum til með að spila á islendingafagnaði i New York ifebrúar, annars treystum við á sambönd okkar fyrir vestan. T. — Hvað með konurnar, Maggi? M. — Við erum sko bara að fara á norðursjóinn. (Hlær). Þær verða eftir. T. — Þessi ferð ykkar, þýðió hún uppgjöf i atvinnumennskunni hérlendis? M. — Nei, alls ekki, peningar koma þessari ferð ekkert við, nema þá að þvi leyti að ef platan okkar selst ekki, þá verður varla farið neitt. Allir sér- mennlaðir menn verða að fylgj- ast með þeim breytingum sem eiga sér stað i sinu fagi, lika tón- listarmenn. Amerika er okkar skóli, og þangað förum við til þess að læra og útvikka sjón- deildarhring okkar. T. — Að lokum, miðað við fjár- hagslega afkomu, hvaða hljóm- sveitir skipa toppinn á íslandi um þessar mundir? M. — Þegar nýjabrumið er fall- ið af Paradis, dala þeir örugg- lega, en annars erum við, Hauk- ar og Paradís á toppnum núna, miðað við fjárhagslegu hliðina vitanlega. — Já, (Kiddi rótari kinkar ákaft kolli, dregur uppúr vasa sinum lögguflautu eina mikla, og seg- ir): — Sko, ég spilaði lika á plöt- unni... TONHORNIÐ Umsjón: Örn Petersen getu þeirra á köflum, en þess á milli eru þeir stórgóðir. Vafalaust hefur þetta lag ver- ið sett saman á staðnum (þ.e. i upptökusal), og þvi vafist lengi fyrir mönnum. ,,I am on my way” sannar óneitanlega hrifningu Magnús- ar Kjartanssonar á þeim fræga Stevie Wonder. Þetta gæti allt eins verið eftir Stevie, en Magga má vart lasta fyrir það eitt, að stæla Stevie, svo framarlega sem að hann gerir það vel, og það gerir hann. ,,U.S. Naval Base”, eitt besta danslag plötunnar, og vafalaust á lagið eftir að verða með vin- sælli lögum hennar. Þarna heyra efalaust margir það, sem að þeir bjuggust við að heyra á allri plötunni. „Bye-Bye” er eftir Magnús, en sungið af Finnboga. Söngur Finnboga er góð visbending á meiri vidd innan hljómsveitar- innar, og þarna koma strengirn- ir og blásararnir mun betur út, enda um rólegt lag að ræða, og þvi hægara um vik. Þetta lag gæti samt ekki verið eftir neinn annan en Magnús Kjartansson. Þetta voru þá orðin um plöt- una. Hún ruglar þig i kollinum, ef þú átt von á „stuöi i stofuna”, en hún venst og mér finnst það hreint virðingarvert að Júdas skyldu einfaldlega þora þvi að troða nýja slóð, hvað viðvikur hljómplötuútgáfu á Islandi. Júdos treður nýjor slóðir Júdas nr. 1. er myndarlegt af- kvæmi hl jóm s v eit a r inn a r Júdas, eftir tveggja ára með- göngutima. Margur hefði þó bú- ist við öllu kraftmeiri tónlist en raun ber vitni, en út af fyrir sig má lita á Júdas nr. 1. sem til- raun. Margt er reynt á plötunni, þó að tilraunirnar séu nærri ein- göngu tengdar bakhljómum, svo sem strengjum og röddum. Strengirnir koma þó ekki nægilega sannfærandi út frá þessu, þareð þeir falla ekki allt- af inn í það andrúmsloft sem Júdas eru að reyna að skapa. Þar á ég aðallega við lagiö „New York Overture” (M.K.) þar sem að greinilega kemur i ljós að sú tegund tónlistar sem Júdas er að skapa (sbr. N.Y.O.), verður ekki hljóðrituð hérlendis. Þó svo að fiðlararnir séu kannski al-vanir i sinfóniunni, þá á þeir ekki að framkalla þann hljóm er til þarf i lag eins og N.Y.O. Með notkun „stringsynth- esier” hefði útkoman kannski orðið betri, en enginn slikur er til hérlendis að ég best veit. 1 „First Class Rock and Roll Song” finnst mér eins og að allt sé ofkeyrt. Blásarar of háir, raddir of margar. Þetta má þó vera algjört smekksatriði, en að minu mati hefði útkoman orðið mun betri, ef að allur þessi bakhljómur hefði verið stilltur i hóf. „It’s raining again” (hlýtur að hafa verið samið á Islandi, hm ), er eitt af lögunum er kom mér á óvart, rólegt og fallegt, minnir á eldri lög Magga. „Poseidon” er merkilegasta lag plötunnar, fyrir það að vera etna lag hennar sem tekið er al- gjörlega „hrátt” þ.e. öll hljóð- færi hljóðrituð á sama tima. Það er skemmtilegur stigandi i laginu, þó að um hreint „jamm” hafi verið að ræða. Orgelleikur Karls Sighvats- sonar kemur skemmtilegá út i laginu, að hlutverki Magga ólöstuðu. 1 „Breakdown” má heyra mun betri útkomu á bakröddum en í t.d. N .Y.O., enda aðeins um fjóra söngvara að ræða. Magnús hefur einnig greini- lega verið i essinu sinu, við upp- töku þessa lags, sem er með betri og hressari lögum plötunn- ar. „Depression” er dálitið skrýt- ið lag að minum dómi, flutning- ur Júdasar er fellur niður fyrir Margt er reynt á plötunni — mest tengt bakhljómum

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.