Vísir - 20.12.1975, Page 4
4
m
Laugardagur 20. desember 1975. VISIR
Geturðu
notað
þessa?
Merkispjöld þurf um við víst á jólapakkana. Auðvitað er hægt að kaupa þau
i búðum, en því ekki að búa þau bara til sjálf? Það er hægur vandi, ef þú get-
ur komið einhverjum myndum þokkalega á pappír.
Þessa merkimiða sem við birtum hér geturðu meira að segja vel notað. Þú
gætir litað þá í hinum skrautlegustu litum, eða bara búið til einhverja svip-
aða. Alla vega vonum viðað þeir komi aðeinhverjum notum.
—EA.
Kertastjakarnir
skreyttir líka
Kertastjaka get-
um við gert jólalega
á tiltölulega fljót-
legan hátt. Á með-
fylgjandi myndum
eru dæmi um það.
Þarna er notað það
sem tiltækt er, kúl-
ur, slaufur og ann-
að.
Á annarri mynd-
inni eru kerta-
stjakarnir tveir
skreyttir með blöð-
um sem klippt eru
úr málmpappír.
Annar er skreyttur
með rauðum blöðum
en hinn með bláum.
Rauðu blöðin eru
síðan gerð skraut-
legri með gylltum
kúlum, en bláar kúl-
ur eru notaðar við
bláu blöðin.
Á hinni myndinríi
er kertastjakinn
einn skreyttur með
silkipappír og hinir
síðan rauðum og
gylltum kúlum.
— EA
Umsjón:
Edda Andrésdóttir.
Hér mó spara
nokkrar krónur
Flestir þurfa að horfa rækilega i krónuna J>essa dagana, en eitt-
hvað vilja menn skreyta i kringum sig I tilefni þeirrar hátlðar sem
er á næstu grösum. Ekki geta nærri þvl allir leyft sér að kaupa allt
slikt skraut og þá er að reyna að búa það til sjáifur, ef timi er fyrir
hendi. Það sparar skildinginn og þvl fylgir líka oftast einhver
ánægja. Hér gefum við nokkrar hugmyndir:
1.
Það má fá alls kyns körfur i verslunum og ein slík er tilvalin til þess
að gera svolitið jólalegt. Ekki þó bara karfan ein, heldur skraut til
viðbótar. Hér er greni I körfunni með alls kyns kúlum og skrauti, og
þá ber mest á rauða litnum.
2.
Margir vilja hengja kransa á útidyrnar og þá má vel gera sjálfur.
Þessi er til dæmis úr mosa sem fæst i blómaverslunum. Kransinn er
siðan skreyttur með blómum eða öðru sem til fellur. Þessi er
skreyttur með bleikum, þurrkuðum blöðum og slaufan er aö sjálf-
sögðu bleík.
3.
Svo er það sígilda jólahjartað sem búa má til i öllum stæröum og
hengja hvar sem er, á jólatréð eða jafnvel á dyrnar. Hér er það
hengt á dyrnar, og ofan i er komið fyrir greni eða einhverjum
fallegum stráum. Hjartað er bleikt.
4.
Grenið stendur alltaf fyrir sinu og með rauðri slaufu er það oröið
fallegasta jólaskraut, og sómir sér alls staöar. Það er heldur ekkert
slöra á útidyrnar en jólakrans. Rauðu slaufuna vantar ekki hér og
svo er skreytt með jólakúlu til viðbótar.