Vísir - 20.12.1975, Blaðsíða 14
Plötur, plötur og fíeirí plötur!
Ungur maður hafði samband við Tónhorniö i vikunni og kvart-
aði undan þvi að Tónhornið hefði ekki minnst einu orði á nokkrar
hljómplötur sem komið hafa út slöustu daga.
Má vera að Tónhornið hafi ekki tekið allar plötur til meðferö-
ar, en plöturnar eru margar og Tónhornið hefur ekki fullar
hendur fjár, þannig að eðlilega dregst dómur sumra á langinn.
En þar eð þetta verður siðasta Tónhornið fyrir jól, verður nú
getið um nokkrar nýútkomnar plötur i stuttu máli.
Ekki er hér um gagnrýni að ræða, heldur aöeins stutta lýsingu
á innihaldi þessara platna. örp.
Litið eitt. ,,Til hvers”.
Fálkinn h/f.
Þetta er önnur hljómplata söng-
flokksins Litið eitt, og töluvert
betri en sú fyrri.
Litið eitthefur gott lið sér til
aðstoðar að þessu sinni, eða þá
bræöurna Karl og Sigurjón Sig-
hvatssyni, Engilbert Jensen,
Sigurð Rúnar Jónsson og
„Göstla” Ragnar Sigurjónsson.
Þó að um frábæra hljóðfæra-
leikara sé yfirleitt að ræða, þá
eru þeir lítt áberandi, nema þá
helst Sigurður Rúnar, en allir
standa þeir fyrir sinu.
Meginuppistaða plötunnar
eru lög þeirra Gunnars og Jóns
Árna, en til uppfyllingar hefur
Litiö eitt valið lög eftir Dylan,
Paxton o.fl.
„Hvers vegna” er róleg og
falleg plata, og gallalaus ef frá
er skilin heldur langdreginn
flutningur ljóðs Edgar Allan
Poe’s „Annabel Lee”.
Berglind sy ngur vel, en þarna
leggst söngur hennar illa i mig,
kannski sökum þess hve lang-
dregið lagið er.
Yfirhöfuð finnst mér samt
fjörugu lögin „Háar öldur”
(Dylan), „Herinn” og „Til
draumsins” bera af, auk rólegu
ogfallegulaganna „Minningar”
og „Kyrrð” en þar fer Lltið eitt
á kostum.
Frágangur plötunnar er góð-
ur, og með albúminu fylgir
textablað, sem margur útgef-
andinn mætti taka sér til fyrir-
myndar.
„Ýr” Ýr.
Það hlýtur að teljast til tiðinda
þegar hljómsveit úr dreifbýlinu
ræðst i hljómplötuútgáfu.
„Þetta er ævintýri hjá þeim,”
sögöu lika margir þegar
hljómsveitin Ýr frá Isafirði fór
til New York og hljóðritaði þar
hljómplötu undir stjórn Jakobs
Magnússonar nú I sumar.
Útgefandanum, Ámunda
Ámundasyni, hefur þó orðið á i
messunni varðandi útgáfu
plötunnar, hún kemur seint, of
seint til þess að geta sannáö
gæði sin á markaðinum fyrir jól,
og á ég þar við sölu, þvi að þessi
plata frá ÝR er fyllilega sam-
bærileg við aðrar þær hljóm-
plötur er komið hafa frá ýmsum
hljómsveitum af höfuðborgar-
svæðinu. Þvi er synd að hún fær
ekki að sanna það.
Tónlist sú er ÝR býður upp á
er yfirleitt ættuö aö vestan
(USÁ) „Country-rock”, en
saminfyrir vestan (Isafirði), að
undanskildum tveimur lögum
Jakobs Magnússonar.
Hljóðfæraleikur ÝR á plöt-
unni er góður, og fáa veika
hlekki þar að finna, og söngur-
inn góður, þó óskýr oft á tiðum.
Tónlistin erkraftmikilán þess
aö vera hávær, og á eflaust eftir
að falla I góðan jarðveg hjá
þeim erunna „country-rokki” á
annað borð.
Má ég óska ÝR til hamingju
meö þessa plötu. Hún sýnir
þeim sem þvi ekki trúa, að góð-
ar hljómsveitir geta þrifist og
þroskast hvar sem er á landinu.
„Alíra meina bót”
Change og fl.
Hvernig barnaplata á að vera,
sýnist sitt hverjum og örugg-
lega eru félagarnir i Change
ekki á sama máli og Svavar
Gests.
„Allra meina bót” er undan
rifjum Magnúsar Sigmundsson-
ar og Change, en ekki er um al-
hliða Change plötu að ræða, þó
svo að þátttaka þeirra sé mest
áberandi á plötunni.
Sem barnaplata er þetta tvl-
mælalaust ein sú vandaðasta
sem komið hefur á markaðinn
fyrr og siðar, og mátti ekki
seinna vera að einhver ynni
verkið af fullri alvöru og vand-
virkni.
Textarnir eru eins og þeir
eiga að vera, dálitið fyndnir og
auðveldir, en tónlistin gæti talist
einum of vandvirk.
Það hefur vakað fyrir Change
að gefa út barnalög I samræmi
við þróun tónlistarinnar og um-
hverfisins i dag, og það hefur
tekist, og platan venst eflaust
vel I eyrum barna.
Gráman, Hráman og svo frv.
hefði verið algerlega ónauðsyn-
legt, óþarfi er að fela sig á bak
við grimu þegar gott efni er á
boðstólnum á annað borð.
Auk þess finnst mér þessi
„Lónliblúbois-stæla” orðin full
mikið notuð.
Þótt „Allra meina bót”
flokkist undir barnaplötu, má
njóta hennar allt að niræðu, svo
vönduð er hún.
„Peanuts” Demant h/f,
Hnetur frá Demant”
Demant h/f hefur gefið út
hljómplötu með samsafni af þvi
sem fyrirtækið hefur gefið út á
þessu ári, og þá yfirleitt i formi
litillar plötu.
A plötunni má t.d. finna
„Superman” (Paradis) „Spáðu
i mig” (Megas), „Promised
land” (Borgis), „Hotel Garbage
can” (Eik) og „Wild night”
(Bjarki T).
Eitt lag hefur þó ekki heyrst
hér áður, en það er titillagið
sjálft „Peanuts”.
Þetta lag var hljóðritað um
svipað leyti og „Candy Girl”,
sem þeir Pal Brothers fluttu á
sinum tima.
Pal Brothers (Magnús og Jó-
hann) gefa „Candy Girl” ekkert
eftir með „Peanuts”, þetta er
rennandi og sætt lag, sem ef-
laust á eftir að ná einhverjum
vinsældum, ef það á annað borð
kemst upp úr „flóðinu mikla”.
Annars er mikill fengur I
þessari plötu, þvi að margan
fýsir eflaust að eignast lögin
með þessum listamönnum, þar
eð litlar plötur virðast ekki eiga
upp á pallborðið hjá aðdáendum
þeirra, en öll þessi lög hafa eins
og fyrr segir áður komið út á
litlum plötum.
Þarna er sumsé hið upplagða
tækifæri, að öðru leyti býður
platan ekki upp á neitt nýtt.
'Odýrir snjóhjólbarðar
HJOLBARÐASALAN
Laugavegi 178 Sími 35960
Margar stœrðir af
mjög ódýrum snjó-
dekkjum fyrirliggjandi
NITTO Umboóió hf. Brautarholti 16 s.15485