Vísir - 20.12.1975, Síða 9
Laugardagur 20. desember 1975.
9
HAMENNING FORNALDAR
Af quðumog
gyðjum
Jón Gislason:
GOÐAFRÆÐI GRIKKJA OG
RÓMVERJA.
tJtg. ísafold.
Þetta mun vera ljósprentun
útgáfunnar frá 1944 (þótt ekki sé
þess getið i bókinni né á), væn
bók, um 280 siður, með nafna-
skrá, greinargerð fyrir heimild-
um og mörgum tugum mynda,
sem raunar eru yfirleitt illa
prentaðar og sumar hreint til
skammar.
Klassisk goðafræði er merki-
leg fyrir margra hluta sakir.
Menn getur forvitnað um hana
sem þátt i trúarbragðasögu, til
dæmis sem hluta af baksviði
frumkristninnar eða til saman-
burðar við aðrar goðsagnir, til
að mynda norrænar. Hún er lika
þáttur i hugarheimi fornaldar
sem þarf að kynnast til skýring-
ar á ýmsu i sögu fornþjóðanna,
og ekki sizt til skilnings á bók-
menntum þeirra og myndlist. A
siðari öldum var svo goðafræðin
á nýleidd til öndvegis I menntun
Vesturlanda og ótæpilega til
hennar vitnað, sér i lagi i mynd-
listinni, og raunar skáldskap
lika og likingasmið mælskulist-
ar. Gott yfirlitsrit um klassiska
goðafræði er þvi hinn þarfasti
gripur og getur þurft að leita til
þess með viðfangsefni af óliku
tagi.
Nú er sagt erfitt tveimur
herrum að þjóna, hvað þá
mörgum, og er þá vart við þvi
að búast að.bók um goðafræði
geti verið jafnhandhæg til fróð-
leiks um alla áðurnefnda hluti.
En eftir atvikum verður að telja
GOÐAFRÆÐI Jóns Gislasonar
standa prýðilega fyrir sinu.
Meginhluti bókarinnar gerir
grein fyrir einstökum goðum og
sagnahetjum Grikkja og Róm-
verja (einkum Grikkja, eins og
rétt er og eðlilegt) og rekur I
stuttu og glöggu máli ævintýri
þeirra. Þessi bókarhluti er ekki
sizt ætlaður til kennslu, en þó
hafður svo langur og rækilegur
Atlas.
að allvel hentar áhugasömum
lesendum utan skóla, einnig til
uppsláttarnota. Allt er þetta
mest miðað við goðsagnaheim
fornskáldanna, en lauslega drep
iðá þróunarsögu helztu goðanna
og hlutverk þeirra I eiginlegu
trúarlifi. Nokkuð er sagt frá
opinberri goðadýrkun, hofum og
hátiðum, og er það efni meira
rómverskt en griskt, sjálfsagt
mest til þess ætlað að veita la-
tinunemendum upplýsingar um
þjóðlifsbaksvið rómverskra
bókmennta. (Einnig eru latnesk
goðanöfn stundum skýrð þannig
að gert er ráð fyrir nokkurri
latinuþekkingu lesandans.
Þetta hvort tveggja átti við i
kennslubók 1944 en siður nú.)
Mjög litið er um samanburð við
norræna goðafræði, og litil
áherzla lögð á launhelgatrú eða
annað það sem máli skiptir til
skilnings á kristnisögunni. Um
goðin kemur flest það fram sem
þarf til skilnings á túlkun þeirra
i myndlistinni, enda fylgja
margar myndir, flestar af lista-
verkum frá fornöld. Ekki er þó
alveg skipulega skýrt frá mynd-
táknum goðanna og falla nokkur
undan sem algeng eru i málara-
list siðari alda (páfugl Heru,
snælda, kvarði og skæri örlaga-
nomanna). Yfirleitt er ekki get-
ið þeirra hugmynda eða tákn-
merkinga sem siðari alda menn
hafa tengt forngoðunum.
En eins og fyrr segir, eru tak-
mörk fyrir þvi hvers krefjast
má af einni bók, höfundur
verður að velja efni og hafna.
1 fyrsta þriðjungi bókarinnar
bregður Jón upp myndum úr
forsögu griskrar menningar og
trúarbragða, talar um Eyja-
hafsmenninguna, þjóðablönd-
una I Hellas, uppruna goðanna
og trúarlegt gilcH þeirra. Þessi
þáttur bókarinnar er um sumt
læsilegur, en i heild miklu verr
heppnaður en hin eiginlega
goðafræði. Þar er mikið bolla-
lagt um. fornleifar Eyjahafs-
menningarinnar, og er það
margt óskyldur fróðleikur, en
sumt úrelt. Þá eru hugmyndir
Jóns um kynþáttaeinkenni og
söguskýringar hans á þeim
grundvelli heldur hæpin fræði.
Loks eru öll trúarbragðafræði
Jóns langt um of mótuð af við-
bjóði hans á „frumstæðri fá-
vizku og fáfræði” og öðrum
„sjúklegum gróðri mannssálar-
innar”, raunar á flestu þvi sem
kalla má verulega trúarlegt i
trúarbrögðunum. Allan þennan
inngangshluta hefði þurft að
endurskoða, jafnvel sleppa hon-
um með öllu og visa lesendum á
almennar mannkynssögubæk-
ur.
Ritmennska Jóns Gislasonar
er vönduð og nokkuð viðhafnar-
mikil, allt skýrt og skilmerki-
legt, og hin samþjappaða skrá
yfir goð og ævintýri þeirra svo
læsileg sem krafizt verður. t
aðalatriðum er GOÐAFRÆÐIN
vandað verk, gott og gagnlegt,
þó finna megi að einstaka at-
riðum, bæði við höfund og útgef-
anda.
Af
heim-
spek-
ingum
Gunnar Dal: GRtSKIR HEIM-
SPEKINGAR. títg. Vikurútgáf-
Gunnar Dal hefur skrifað
mikið um heimspeki og heim-
spekisögu. Hér er steypt saman
i allmikla bók (yfir 200 drjúgar
siður) ritum hans um griska
heimspekinga og gerð af þeim
nokkuð samfelld heimspekisaga
klassiskrar fornaldar. Kjarni
bókarinnar fjallar um Sókrates,
Platón og Aristóteles, en tals-
vert er einnig vikið að hinum
fyrrispekingum, og stuttlega að
heimspekistefnum Rómaveldis,
Epikúrsstefnu, Stóuspeki og
nýplatónisma.
t aðalatriðum er bók Gunnars
Alþýðlegt yfirlitsrit um þetta
efni, einföld lýsing merkustu
heimspekikenninga ásamt
nokkurri greinargerð fyrir
spekingunum sjálfum og samtið
þeirra. Auðvitað er afar mikili
vandi að greina einfaldlega frá
fágaðri hugsun manna um hin
erfiðustu vandamál, og kann ég
ekki að dæma um hve trúlega
Gunnar kemur til skila hugsun
spekinga sinna. En yfirlit hans
er læsilegt og vel samið viðast
hvar, rikulegar tilvitnanir til
frumheimilda (þ.á m. öll
varnarræða Sókratesar) fróð-
legar og vel valdar, myndir
Sókratesar og Aristótelesar
fjörlega dregnar og skemmti-
lega tengdar samtimaatburð-
Gunnar Dal
um, hinum siðari heimspeki-
stefnum einkar glögglega lýst i
stuttu máli. Hnökrar eru þeir
helztir að Gunnar notar talsvert
erlend fræðiorð sem ósann-
gjarnt er að heimta að lesendur
skilji, og svo það að hann drepur
stundum kunnuglega á fyrir-
bæri sem honum hefur láðst að
skýra, og verður þá ófróðum
lesanda efnið ekki ljóst fyrr en
löngu siðar og jafnvel ekki.
Nokkuð virðist Hka bresta á
samræmi i meðferð heita, t.d. á
ritum fornhöfunda. Ekki kveður
mikið að þessum ágöllum né
öðrum álika, og er þessi heim-
spekisaga Gunnars Dal góðra
gjalda verð og þarft að eiga slikt
rit á islenzku.
GRISKIR HEIMSPEKING-
AR er ekki aðeins hefðbundin
heimspekisaga. Hún flytur lika
kenningar og sérskoðanir
höfundarins sjálfs. Ganga þær
aðallega i þá átt að gera sem
mest úr austrænum áhrifum á
griska hugsun, að gera dul- eða
djúphyggjuþáttinn sem rikast-
an i hverri kenningu, og sér i
lagi að túlka myrkar og illa
skjalfestar kenningar hinna
elztu spekinga sem eina og
sömu austurlenzku algyðishug-
myndina i mismunandi likinga-
gervi.
Ekki skal ég fullyrða um gildi
þessara sjónarmiða, en varla
nægir þessi bók til að sannfæra
þá sem vilja efast. Einatt reyn-
ist erfitt að setja fram nýjar
fræðilegar niðurstöður i alþýð-
legu yfirlitsriti, rökstuðningur
og heimildameðferð vilja þá
verða sundurlaus og fneð til-
viljanablæ, og svo er hér. Ljóst
er að minnsta kosti að stundum
sækir Gunnar mál sitt langt um
efni fram, svo sem þegar hann
vitnar i Jóhannesarguðspjall
sem dæmi um þann austur-
lenzka hugsunarhátt sem grisk-
ir spekingar hafi orðið fyrir
áhrifum af, einnig i þvi hve
slæma fulltrúa hann leiðir fram
fyrir þau sjónarmið er hann vill
hnekkja. Þessi rökfærsluspjöll
eru býsna áberandi i upphafi
bókarinnar og fram undir
Sókrates, en þar bregður til
betri áttar.
Ekki fer hjá þvi að dulfræða-
áhugi Gunnars setji svip sinn á
alla frásögn hans. Hann gerir
spekinga sina flesta að „djúp-
hyggjumönnum” og „miklum
sjáendum” sem „hið tæra vatn
andans sprettur fram úr hugar-
djúpum” þeirra og „verður þvi
gruggugra þvi lengur sem það
streymir fram um urðir tungu-
málanna og fúamýrar hins
staðnaða orðs.” Það má rétt
vera að boðskapur griskra
heimspekinga hafi öðrum þræði
verið af toga spámennsku eða
skáldskapar og ekki átt annað
fyrir sér en dofna i höndum
eftirkomendanna, en að hinu
leytinu voru þeir þó fræðimenn
sem fundu skiljanlegaraðferðir
til að fást við vandamál mann-
lifs og þekkingar og gátu (eins
og allri fræðimennsku er eigin-
legt) byggt á verki fyrirrennara
sinna og þokað þvi fram á við.
Þessi þáttur heimspekisögunn-
ar (sem frá sjónarmiði nútima-
heimspeki er vafalaust miklu
merkilegri) hlýtur naumast
verðuga athygli i meðförum
Gunnars.
Allt um það ber að fagna
GRÍSKUM HEIMSPEKINGUM
sem fróðlegri og að mörgu leyti
vel gerðri viðbót við hið fá-
skrúðuga safn alþýðlegra fróð-
leiksrita á islenzku.
Pelsar - hlý og falleg jólagjöf
Fáeinir pelsar eftir.
Nú er hver siöastur.
Góðir greiösluskilmálar.
Opið i dag kl. 1-8 e.h.
Pelsasalan Njálsgötu 14. Simi 20160.