Vísir - 20.12.1975, Page 19
VISIR Laugardagur 20. desember 1975.
19
Eins og hann
hafi komist
að sérstöku...
INDVERJINN Satya
Sai Baba er einn mesti
undramaður sem nú
gengur um á vorri jörð.
Um hann hafa verið
skrifaðar nokkrar bækur,
en kunnust er sú sem
ástralskur blaðamaður,
Howard Murphet, hefur
samið og heitir á frum
málinu: Sai Baba, Man of
Miracles.
Hún er nú komin út hjá
Skuggsjá í þýðingu Ás-
geirs Ingólf ssonar,
smekklega úr garði gerð.
011 ævi Satya Sai Baba (nú 49
ára) er eins og svæsnasta lyga-
saga. Aödáendur lita á hann
sem avatar eða guölega hold-
tekju, og meðal yoga er hann
talinn hár mahatma eöa siddha
púrúsha. Þeir sem þekkja hann,
vestrænir sem austrænir, eigna
honum undantekningarlitið
undraveröan mátt rétt einsog
hann hafi komist að sérstöku og
.harla óvanalegu samkomulagi
við náttúruöflin. Hann læknar,
býr til hluti úr engu, er allt i einu
kominn til fjarlægra staða og
virðist bera kennsl á menn, sem
á fund hans koma þótt sannan-
lega hafi þeir aldrei áður fyrir
auglit hans stigið. Hinu er þó
ekki að leyna að sumum yogum
þykir hann fara gáleysislega
með dulinn mátt og skilja ekki
gagnsemi þessara óskaplegu
máttarverkasýninga.
Einn þeirra sagði við mig i
fyrra:
— Þú bjargar ekki hungruðum
manni með þvi að gefa honum
brauð, heldur með þvi að fá
hann til að vinna fyrir sér.
Ekki þekki ég Sai Baba og get
þvi ekkert um þetta borið.
En ég þekki Howard
Murphet, höfund bókarinnar,
og tel mig geta vitnað um
einlægni hans og sannleiksást.
Hann er einn þessara góðu
blaðamanna sem öðlast hafa þá
lifsreynslu að sannleikur og
ekkert nema sannleikur sé það
sem máli skiptir.
Howard er nú á sjötugsaldri,
hættur að mestu að skrifa i blöð
en ritar bækur. Fyrr á árum var
hann vel þekktur i sinni stétt,
fylgdist með herför Montýs
gamla yfir gula sanda Noröur--
Afriku, skrifaði um Nurnberg-
réttarhöldin yfir nasista-
foringjum og var siðan „free
lance” i Fleet Street um tiu ára
skeið, og i það leggja ekki aörir
en snjallir kalla’r.
Siðar dvaldist hann árum
saman á Indlandi, og er einn
þeirra blaðamanna vestrænna
sem best þekkir hið hljóða og
spakvitra Indland.
—Væri ég yngri, sagði hann eitt
sinn viö mig, verði ég nokkrum
árum i aö ferðast um Indland
meöal yoga og vitringa sem fáir
þekkja, og áreiöanlega engir
vestrænir menn, og reyna að
koma visku þeirra og viðhorfum
á blaö.
Það tók Howard langan tima
að setja saman þessa bók, og
hann sparaði til þess hvorki
tima né fyrirhöfn. Hún ber lika
vitni um vandvirkni hans og
hugljúfan frásagnarmáta. Hann
er innansveitarmaöur á Ind-
landi. Það er liklega af þvi sem
bók hans rauk út einsog heitar
lummur þar i landi.
Þýöing bókarinnar er mikið
fyrirtæki og þakkarvert hve As-
geiri hefur tekist aö sigla fram-
hjá skerjunum án viðhlitandi
leiðsagnar.
NÝJAR BÆKUR
w
A
MARKAÐNUM
Þrjár nýjar ljóða-
bækur eru komnar út
hjá Almenna bókafé-
laginu:
„Gleymd stef en geymd”eftir
prófessor Simon Jóhann
Agústsson. Bókin geymir úrval
ljóöa hans, 38 talsins, ort á
timabilinu 1926—36. Fiest eru
þau ort á háskólaárum hans úti I
Frakklandi.
„Sunnan I móti” eftir Helga
Sæmundsson. 1 þessari nýju bók
hans er aö finna 45 ljóö, öll frá
timabilinu 1937 til 1975. ííöfund-
urinn er sem kunnugt er meðal
fróðustu manna um islenskan
skáldskap síðari tima og hefur
auk þess litið eitt fengist við
ljóðagerð sjálfur. Hann gaf út á
unglingsárum sínum ljóðabók-
ina Sól yfir sundum.
„Leiöin heim” eftir Þóru
Jónsdóttur. Þetta er önnur bók
skáldkonunnar, en fyrsta ljóða-
bók hennar. Fyrri bók hennar
hét „1 leit að tjaldstæöi. Ljóöin i
nýju bókinni eru 56 að tölu.
„Við hljóöfall starfsins” nefnist
nýútkomin ljóöabók eftir Guð-
njund Þorsteinsson frá Lundi.
Að efni til byggja ljóðin á liðn-
um tlmum, islensku þjóölifi og
þjóöháttum.
Prentverk Odds Björnssonar
h.f. á Akureyri gefur bókina út.
—vs
Blóm og
Ávextir
Hafnarstrœti og Austurstrœfi 17 Símar 12717 og 23317
A þessari jólaskreytingu er eingöngu þurrt skraut,
þ.e. aö jólaskrautiö getur enst ár eftir ár. Það
einasta sem þarf að cndurnýja fyrir næstu jól eru
kertin. Þessi jólaskreyting kostar 3.650 krónur.
Blóm og
Jólaskreytingar
í hundraðatali gerðar
af fagmönnum
Ávextir
B I ó m o g
ávextir er
virðuleg og
gróin verslun
i Reykjavík
og hefur að-
setur sitt í
- Haf narstræti
3. Auk þess er
J ó I a -
markaðurinn
í Austurstræti
17 í kringum
jólin rekin af
sömu mönn-
um, svo þar
fást sömu
vörur og i
Blómum og
ávöxtum.
Þessi keramikplatti
og stytturnar eru
sænskar vörur.
Plattinn kostar 3.250
en stóra styttan kostar
3.220. Sú minni kostar
1.610 krónur.
Þessi dressing glös fást i
Blómum og ávöxtum. Þau eru
sænsk og stærra glasiö kostar
2.040 krónur en hið minna 1.200
krónur. Bakkinn undir tómats-
sósu og sinnep o. fl. er sænskur
likaogkostar 1.350 krónur. Efst
á myndinni er stativ fyrir
klósettrúllur i sumarbústað á
1.450.
Opið í dag og
sunnudag
til kl. 10 e.h.