Lesbók Morgunblaðsins - 23.01.1927, Side 7

Lesbók Morgunblaðsins - 23.01.1927, Side 7
23. jan. ’27. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 23 Hirohito, hinn nýi keisari í Japan. um það, að keisari mætti eiga fara úr landi og þjóðin trúði því ekki að hann væri farinn, heldur dveldi hann í höll sinni og hefði sent einhvern .annan í sinn stað. Hirohito, hinn nýi keisa*ri, er fæddur 29. apríl 1901. Árið 1924 giftist hann prinsessu Nagako af Kuni-k.ynstofni. Hann hefir ferð- ast mikið og sjeð margt- Sam- kvæmt venju í J.apan, ríkir móðir hans Sadako með honum. Yoshihito keisari verðar ekki grafinn fyr en í febrúar eða mars og er lík hans til sýnis þangað til. Friðarverölaun Nobels. Verðlaunamennirnir. Talið frá vinstri: Chamberlain, Dawes, Briand og Stresemann. Það v.akti eigi litla undrun um allan hinn mentaða heim, er það frjettist, .að þeir Stresemann. Briand og ChamberLain hefði hlot ið friðarverðlaun Nobels. — Mun öllum hafa komið það á óvart, og eigi síst Þjóðverjum. Enginn Þjóðverji hefir áður hlotið frið- arverðlaunin, þótt flest önnur No- belsverðLaun hafi farið til Þýska- lands. Stresemann er því sá fyrsti Þjóðverji, sem slíkur heiðu* hlotn ast. Bertha von Stattner og pró- fessor Alfred Fried hafa áður fengið Nobelsfriða<rverðlaun, en þó þau sje þýskumælandi eru þau Austurríkismenn en ekki Þjóð- verj.í'tr. Frjettaritari „Tidens Tegn“ hafði tal af þeim öllum utanríkis- ráðherrunum þá er það var gert kunnugt að þeir hefði hlotið No- belsverðlaunin. Stresem.ann kvað sjew mikla ánægju að því að mót- taka þau, en hann skoðaði þau þó eigi sem sjerstaka viðurkenn- ingu fyrir sig, heldur viðurkenn- ingu á því starfi sem unnið hefði verið í Locamo og Thoiry síðan Dawes-samþyktin var gerð. — Hann sagði .að það væri skylda stjórnmálamanna, að vinna að farsæld þjóðann.a og meðan þeir Briand og Chamberlain væri i broddi stjórnmálamanna, þá væri hann fullviss um .að friðarhreyf- ingunni miðaði vel áfram. Chamberlain sagði líka að sjer þætti vænt um verðlaunin, sem viðurkenningu á frið.arstarfi sínu. En hann sagði að Briand og Strese mann ætti friðarlaunin miklu frern ur skilið. Briand sagðist ver.a þakklátur fvrir þann heiður, sem sjer væ»'-i sýndur, en aðstoðarmönnum sín- um, sjerstaklega Poul Boncourt, væri miklu meira að þakka ár- angur Locarnoráðstefnunna*- en sjer. Aðrir fulltrúar á Locarnofund- inum, svo sem Scialoja hinn ít- •alski og Ishij greifi hinn japanski, telja að þessir þrír menn sje vel að friða»rverðlaununum komnir. SÆNSKU BLÖÐIN ÓÁNÆGÐ. Sænsku blöðin eru ekki ánægð með valið á mönnunum. Þannig segir „Nya Dagligt Allehanda" að verðlaunanefndin hafi gert sig að alþjóðadómstól, þegar hún leit svo á, að þrjú af þeim stórveld- um, er stóðu fyrir hinum ægileg- ustu manndrépum, er sögur tvr*

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.