Lesbók Morgunblaðsins - 23.01.1927, Page 7
23. jan. ’27.
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
23
Hirohito, hinn nýi keisari í Japan.
um það, að keisari mætti eiga fara
úr landi og þjóðin trúði því ekki
að hann væri farinn, heldur dveldi
hann í höll sinni og hefði sent
einhvern .annan í sinn stað.
Hirohito, hinn nýi keisa*ri, er
fæddur 29. apríl 1901. Árið 1924
giftist hann prinsessu Nagako af
Kuni-k.ynstofni. Hann hefir ferð-
ast mikið og sjeð margt- Sam-
kvæmt venju í J.apan, ríkir móðir
hans Sadako með honum.
Yoshihito keisari verðar ekki
grafinn fyr en í febrúar eða mars
og er lík hans til sýnis þangað til.
Friðarverölaun Nobels.
Verðlaunamennirnir. Talið frá vinstri: Chamberlain, Dawes, Briand
og Stresemann.
Það v.akti eigi litla undrun um
allan hinn mentaða heim, er það
frjettist, .að þeir Stresemann.
Briand og ChamberLain hefði hlot
ið friðarverðlaun Nobels. — Mun
öllum hafa komið það á óvart,
og eigi síst Þjóðverjum. Enginn
Þjóðverji hefir áður hlotið frið-
arverðlaunin, þótt flest önnur No-
belsverðLaun hafi farið til Þýska-
lands. Stresemann er því sá fyrsti
Þjóðverji, sem slíkur heiðu* hlotn
ast. Bertha von Stattner og pró-
fessor Alfred Fried hafa áður
fengið Nobelsfriða<rverðlaun, en þó
þau sje þýskumælandi eru þau
Austurríkismenn en ekki Þjóð-
verj.í'tr.
Frjettaritari „Tidens Tegn“
hafði tal af þeim öllum utanríkis-
ráðherrunum þá er það var gert
kunnugt að þeir hefði hlotið No-
belsverðlaunin. Stresem.ann kvað
sjew mikla ánægju að því að mót-
taka þau, en hann skoðaði þau
þó eigi sem sjerstaka viðurkenn-
ingu fyrir sig, heldur viðurkenn-
ingu á því starfi sem unnið hefði
verið í Locamo og Thoiry síðan
Dawes-samþyktin var gerð. —
Hann sagði .að það væri skylda
stjórnmálamanna, að vinna að
farsæld þjóðann.a og meðan þeir
Briand og Chamberlain væri i
broddi stjórnmálamanna, þá væri
hann fullviss um .að friðarhreyf-
ingunni miðaði vel áfram.
Chamberlain sagði líka að sjer
þætti vænt um verðlaunin, sem
viðurkenningu á frið.arstarfi sínu.
En hann sagði að Briand og Strese
mann ætti friðarlaunin miklu frern
ur skilið.
Briand sagðist ver.a þakklátur
fvrir þann heiður, sem sjer væ»'-i
sýndur, en aðstoðarmönnum sín-
um, sjerstaklega Poul Boncourt,
væri miklu meira að þakka ár-
angur Locarnoráðstefnunna*- en
sjer.
Aðrir fulltrúar á Locarnofund-
inum, svo sem Scialoja hinn ít-
•alski og Ishij greifi hinn japanski,
telja að þessir þrír menn sje vel
að friða»rverðlaununum komnir.
SÆNSKU BLÖÐIN ÓÁNÆGÐ.
Sænsku blöðin eru ekki ánægð
með valið á mönnunum. Þannig
segir „Nya Dagligt Allehanda"
að verðlaunanefndin hafi gert sig
að alþjóðadómstól, þegar hún leit
svo á, að þrjú af þeim stórveld-
um, er stóðu fyrir hinum ægileg-
ustu manndrépum, er sögur tvr*