Lesbók Morgunblaðsins - 29.01.1928, Page 2

Lesbók Morgunblaðsins - 29.01.1928, Page 2
26 LESÉÓK MORGUNBLAÐSINS eyjum og viðliald tuugunnar, jafn framt því, sem hann beiti sjer fyrir því að þjóðin sje vel að sjer í danskri tungu. Árið 1924 endurskoðuðu sjálf- stæðismenn stefnusktá sína. Þá er það tekið frarn, að þar sem Fær- eyingar sje sjerstök þjóð og hafi þess vegna rjett til að ráða yfir Færeyjum, þá skuli barist fyrir sjálfstjórn. Engin lög megi gilda þar í landi, nema lögþingið hafi samþykt þau. Frjálst skuli á öllurn sviðum að nota færeyska tungu. Öll kensla í skólum skuli fara fram á fæteysku. Auknar skulu tekjur lögþings á hagkvæman hátt. Frá ríkisrjettarlegu sjónarmiði eru Færeyjar nú amt í Danmörku, en liafa þó sjerstöðu. Færeyingar hafa sitt eigið þing, og eru allir þingmenn nú þjóðkjörnir. Þingið velur sjer sjálft forseta. Þingið hefir ráðgjafarjett um öll lög, er snerta Færeyjar, og samkvæmt lög- um þess frá 1923, er stjórnin skyldug að leggja fyrir lögþingið til timsagnar, svo fremi að það sje unt, Öll þau lög, sem eingöngu snerta Færeyjar. LÖgþingið kýs mann á þjóðþing Dana. 1 < Færeyinga'r greiða enga beina skatta í ríkissjóð og þeir hafa sjer- stök toll-lög. Þar er tillögulega lágur tollur á áfengi, tóbaki og sumum sykurtegundum, en enginn tollur á nauðsynjavörum nje öðr- um munaðarvöruin en þeim, sem þegar hafa verið nefndar. Af toll- tekjunum renna 30 þúsund krónur í ríkissjóð, en afganginn fær lög- þingið til urnráða. Ýmisleg önnur opinber gjöld eru lág, og renna yfirleitt í ríkissjóð, en þó fær lög- þingið nokkuð af erfðaskatti og Öll gjöld af livalaveiðunum. — Stimpilgjald er ekkert, og Fær- eyingar eru ekki skyldir til her- þjónustu. En þótt Færeyingar sjeu lausir við ýmsar byrðar, sem á dÖnskum tíkisborgurum hvíla, svo sem rík- isskatt og herþjónustu, eru þeir á liinn bógiilii algerlega útilokað- ir að njóta flestra þeirra gæða, sem ríkissjóður veitir dönskum ríkisborgurum. Við höfum engin not af járnbrautunum. Það er) fyrst nú fyrir skemstu, að byi’jað *er á vegagerð og hafnarmann- • 'virkjum. j Sambandsmenn vilja lialda í Isambandið við Dani, eins og það W nú. Með öðrum orðum: lög- þingið á ekki að hafa neitt lög- gjafarvald, heldur vera eins og það er nú. Sambandsmenn vilja ekki upphefja lögþingið, nje veikja ráðgjafarvald þess. Ekki vill flokkurinn heldur að lagðir sje nýir ríkisskattar á Færey- inga, beinlínis nje óbeinlínis, og ekki vilja þeir heldur herþjón- ustuskyldu. Þvert á móti vill flokkurinn bæta aðstöðu lögþings- ins bæði fjárhagslega og á annan liátt. Sjálfstæðismenn vilja að eyjarn- ar hafi sjálfstjórn, en það er ekk- ert talað um það í stefnuskránni hve langt skal gengið á því sviði, að öðru leyti en því, að engin lög öðlist gildi í Færeyjum, nema þau sje samþykt af lögþinginu. Sjálf- stæðismenn eru ekki á einu máli um það, hve langt skal farið í sjálfstæðiskröfunum, en meirihluti þeirra aðhyllist það fyrirkomulag sem Niels Winther stakk upp á 1851 (að lögþingið skuli skipað þjóðkjörnum þingmönnum ein- göngu, það skuli setja lög fyrir Færeyjar og ákveða hvort dönsk lög skuli að einhverju leyti eða öllu gilda á Fæfeyjum). Fjárhagslega hafa Færeyingar sjerstöðu í ríkinu. Sambandsmenn og sjálfstæðismenn virðast ein- huga um það, að eigi skuli lagðir á nýir skattar lxanda ríkissjóði, og báðir flokkar virðast á sama máli um, að nauðsyn beri til að afla lögþinginu meiri tekna og færa út verksvið þess. Árið 1918 vildu sjálfstæðismenn leggja á menn tekjuskatt, sem fynni til lögþingsins. Lögþingið samþykti frv. um það efni, en stjórnin hefir ekki látið það kom- ast til framkvæmda. En árangur- inn varð þá sá, að sambandsmenn fjellust á, að auka amtsjóðsgjöld- in, en þau gjöld renna að mestu leyti til lögþingsins. Sambandsmenn hafa einnig fall- ist á það, að setja ný toll-lög fyrir Færeyjar, Og foringi þeirra, Samuelsen þjóðþingmaður, er mjög áfram uia það, að fá sam- þykt lög um færeyskt happdrætti. Á lögþingið að fá ágóðann af því. Það má svo kalla, að ekki sje ágreiningur milli flokkanna í þess- um efnum. Ríkissjóður Dana leggur fram allmikið fje til að launa embættis- menn á Færeyjum og til ýmissa almenningsþarfa þar. En mun liann fást til að halda því áfram, ef Færeyingar leggja ekki meira af mörkum við hann en þeir hafa gert, en auka jafnframt tekjur lögþingsins? Eða munu Danir segja: Látum lögþingið afla sjer meiri tekna, en taka þá um leið á sig ýms útgjöld sem nú hvíla á ríkinu að nokkru leyti eða öllut Mjer er það ekki ljóst enn, hver niðurstaðan verður. Sem sagt, það eru skiftar skoð- anir um það meðal Færeyinga hve háar kröfur skal gera. Sumir vilja skilnað. En jeg liygg ,að niður- staðan verði sú, að komið verði á líku skipulagi og því, sem vinstri- mannastjórnin bauð ■ Patursson 1906. Að lögþingið fái allar eða mestallar opinberar tekjur, en taki svo að sjer þau opinber útgjöld, sem nú hvíla á ríkissjóði. Þegar jeg gekk í skóla fyrir 25 árum, heyrðist f>ar ekki færeyskt orð. Nú er færeyska skyldunáms- grein, en kensla fer fram á dönsku að því undanskildu, að smábörn- um má kenna á færeysku. Þetta fyrirkomulag fengu sambands* menn fram 1912. En sjálístæðis- menn halda fram kröfu um það, að öll kensla í skólum skuli fara fram á færeysku. Jeg veit, að margir sambandsmenn eru þessu fvlgjandi, en floltkur þeirra í lög- þingiiiu hefir verið því mótfallinn. Þó er það áreiðanlegt, að þess verður ekki langt að bíða, að lög- þingið samþykki með yfirgnæf- andi meirihluta, að færeyska skuíi vera kenslutungan í færeyskum skólum. Og jeg get ekki ímyndað mjer að nein dönsk stjórn muni skorast undan að staðfesta þau lög. Það er skamt síðan, að guðs- þjónustur máttu ekki fara fram v. Öðru máli en dönsku. Nú má helmingur af guðsþjónustum fara fram á færeysku, ef prestar og söfnuðir koma sjer saman um það. En mönnum nægir þetta ekki og

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.