Lesbók Morgunblaðsins - 29.01.1928, Blaðsíða 5
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
29
UatnsflóÐ í tondan.
Yiku af janúar kom geisivöxtur
í ána Thames. Þá höfðu að undan-
förnu verið hríðar og var kominn
mikill stjór á Suður-Englandi. En
nú gerði hláku og aftakarigningu
og kom þá svo mikið hlaup í ána,
að yfirborð hennar varð 6 fetum
liœrra en dæmi eru til. Sprengdi
fljótið varnargarða á mörgum stöð
um á bökkunum og geistist inn
í London. Þetta var um miðja nótt
og bar svo brátt að, að fólk gat
elcki forðað sjer. Þeir, sem bjuggu
í kjöllurum eða neðstu hæðum
húsa, vöknuðu við það, að vatnið
kom upp í rúmin. Flýði þá hver
sem gat, á nærklæðum einum, en
sumir fengu eigi komist út og
druknuðu í svefnherbergjum sín-
um. Er talið að 14 manns hafi
druknað í miðri borginni, og hefði
eflaust druknað miklu fleiri, ef
lögregla og slökkvilið hefði ekki
komið til hjálpar.
Vatnið fór með beljandi hraða
fram hjá þinghúsinu og víða á
götunum, svo sem í grend við
Charing Cross, Waterloo-brú og
í Westminster var flóðið nokkur
fet á dýpt. Tower og höllxerki-
biskupsins af Kantaraborg stóðu
eins og klettur úr hafi.
A einum stað í Grosvenor Road
kom flóðið yfir átta manna fjöl-
skyldu; björguðust fimm með
naumindum, en þrjú börn drukn-
uðu.
Vatnið komst inn í rafmagns-
stöðvarnar og olli því miklum
truflunum á neðanjarðar-spor-
brautum.
Eftir nokkra stund sljákkaði í
fióðinu, en allar götur voru þá
þaktar slími og alskonar rusli,
sem áin hafði borið með sjer. Var
þá þegar tekið að hlaða sandpok-
um í skörðin, sem áin hafði brot-
ið í varnargarðana. Sjest á mynd-
inni hjer að ofan ein slík bráða-
birgða viðgerð.
Daginn eftir kom vöxtur í ána
aftur og ruddi hún þá sandpok-
unum burtu eins og fisum. Skamt
frá Cusneybrú fór beljandi straum
ur inn í borgina og út yfir leik-
vang Raneleigh-klúbbsins og mynd
aði þar stöðuvatn, sem náði yfir
20—30 ekrur.
Páfinn dæmdur til dauða. Italskt
blað, sem gefið er út í Rómaborg,
skýrir nýlega frá því, að Vati-
kanið hafi fengið tilkynningu frá
Moskva, um það, að Bolsar liafi
dæmt páfann til dauða fyrir það
að hann hafi hjálpað andstæðing-
um Bolsa og styrkt þá með fjár-
framlögum.
Tilkynningin er undirrituð af
ýmsum mektarmönnum Boka, svo
sem sjálfum höfuðpaurunum Rý-
kow og Stalin.
Gull — gull! Það er talið, að
gullforði sá, sem til er í Banda-
ríkjunum núna sje 20.000 miljóna
virði. Og þó er þar ekki talið með
það gull, sem fólkið hefir látið
smella í fennur sínarj