Lesbók Morgunblaðsins - 29.01.1928, Blaðsíða 7

Lesbók Morgunblaðsins - 29.01.1928, Blaðsíða 7
hærupoki kaldgóður með högldum samandregitin. Sig liann ekki semja fer, að siðum bænda yngra, á hestum jafnan heiman ber (heldr’ en úr kaupstað) þyngra. Ull og kæfu í kaupstaðinn, (klárar vanir berið), liertan ost og húðir, skinn, hangiket og smjerið. Klafa bmidinn engan á ekki er skuld að finna; kaupmenn vilja karli þá kátir eitthvað sinna. í kaupstað góna karlinn á kaupmenn jafnt sem aðrir, en haun skreyta aldrei þá annarlegar fjaðrir. Girnist hvorki gort nje raup af góðum stofni sprottinn en, ef hann þiggur af þeim staup inn tekur hann pottinu. Engin veitir eftirköst ögn af tunnu-dreyra, en, stefnan verður sterk og föst og strykið hálfu meira. Út. hann tekur engan kliit, og ekki neitt af prjáli, en á lætur (ann eikarkút, anker, að fornu máli. Upplitsdjarfui' allri drótt engan spyr um leyfi. Skarð í höku miðri mjótt myndar kjálka reyfi. Reykvíkingum irakstra gjöld rjettir ei haust nje vorið; hefur ekki í hálfa öld hníf á kampinn borið. Á hjarnastalli hár ógreitt herðar nemur viður, er tilsýndar yfirleitt arnar-líkt og -fiður. Ennþá stenst hann ungurn við að útliti og þokka, þó að upp um svaiðarsvið silfri ellin lokka. Ef hann kendur einhvern brag ymprar rómi snjöllum: hátturinn er hringhent lag hlymur í stuðlaföllum. LBSBÓK MGRGUNBLABSINS 31 Mest liann prýða tel jeg tvent: tryggð og hreysti rara. — En, það er ekki heiglum hent í höndur slíkra að fara. I»að er best í þagnarskans Þulins ferju kreppa; þeir, sem segja sögu hans svona brotum sleppa. Helgi hjðnabandsins. Mussolini ætlar að leggja þunga refsingu við hjónaskilnaði og ótrygð. iMussolini hefir nýlega látið merkileg orð falla um hjónaband- ið og mikla þýðingu þess fyri'r þjóðfjelagið. Ummæli hans eru á þcssa leið: Heimilið er hin trausta uudir- staða öflugs og heilbrigðs þjéð- fjelags.Sú þjóð, sem byggir stjórn- málalíf sitt og framkvæmdalíf á siðspillingu og metur einkis helgi heimilislífsins hlýtur að eiga glöt- un fyrir höndum. Hver fjölskylda er sem lítið þjóðfjelag, þar sem hver borgari hefi'r sínar ákveðnu skyldur. Eig- inkona, móðir, eiginmaður, faðir, dætur og synir, öll eiga þau jafn- an rjett, en eru þó bundin viss- um skyldum, aga, hlýðni, sam- heldni og fórnfýsi. Þessar eru þær námsgreinir, sem menn læra í skóla heimilanna. í fjölskyldulífinu engu síður en í þjóðfjelagslífinu, hlýtur maður og lcona að verða fyrir ýmiskonar mótlæti, sem lieimtar fórnir. — Hjónabandið verður að vera reist á þeirri föstu áltvörðun, að báðir aðilar beri þar mótlæti og færi þar fó'rnir, sem nauðsynlegar kunua að vera á langri lífsbraut. Heimilislífi, sem bygt er á þess- um grundvelli, er ekki hægt að slíta, þegar manninum og komnini býður svo við að horfa. Þau bera ábyrgðina á gjörðum sínum og hafa sótt um leyfi ríkisins og bless- un kirkjunnar. Og þegar hjóna- bandið hefir í eitt skifti fyrir öll fengið viðurkenning ríkisins, og biessun guðs, geta aðilar ekki slit- ið fjelagsskap sínum eftir eigin geðþótta, þyí að þótt þessi fje- lagsskapur sje hverfandi lítil ein- ing út af fyrir sig, er hann þó hlnti af þeim stóra fjelagsskap, sem vjer köllum ríki. Bæði ríkið og kirkjan hafa sama rjett til þcss að grípa fram í, þegai' maður og kona óska eftir skilnaði, eins og þau hafa til þess að viðurkenna og blessa sáttmála þeirra. Alstaðar í hinum mentaða hcimi er sú tilhneiging að rj'ðja sjer til rúms, að líta á hjónabandið eins og þægindi um stundarsakir. Hinn vaxandi fjöldi manna og kvenna, sem óskar að skjótapt undan skyldum sínum, hefir orð- ið til þess, að ýmsar þjóðir hafa neyðst til að búa til heilmikið af nýjum lögum, sem miða að því, að ijetta skyldur heimilanna og losa um fjölskylduböndin. Á vorum dögum er þessi löstur, þessi ljettúðuga upplausn heim- ilislífsins, orðin hræðileg ógnun allrar siðmenning.'íi'. Og Ameríku- menn hafa gengið á undan. Það er blátt áfram tíska meðal auð- ugs fólks, einkum í Ameríku og Englandi að rjúfa hið heilaga hjónaband. ítalir eru allra þjóða siðlátasth', en þessi siðleysispest hefir einnig bieiðst út meðal þeirra. Og jeg liefi neyðst til að segja við þá, sem líta á fjölskyldulífið mcð fyrirlitningu: „Jeg vil ekki láta þetta viðgaugast.“ , Siðleysi — óskin um að mynda nýtt kynferðilegt samband, sem sprottin er af dutlungum eða stundar geðh'rifum — er orsökin til þessarar syndar gegn hjóna- bandinu. Löngunin til að leita nýrra æfintýra á sviði kynferðis- lífsins er ekki framar skoðuð ósið- fcrðileg, jafnvel ekki svo mikið sem óskaðleg. I mínum augum cr þetta ekkert annað en hórdómur. Að kalla það vægarg nafni e'r blátt áfram hræsni. Nú þegar svona er komið, verð- ur ríkið, sem á að vaka yfir lík- amlegri og siðferðilegri velferð Iþegnanna, að lepgja bann við hjónaskilnaði. Jeg ælta að gera það að lögum, að ótrygð í hjóna- bandi, verði skoðuð sem glæpur, er verðar 15 ára betrunarhúsvist og alt að æfilöngu fangelsi, eftir málavöxtum. Það mun hrátt gera enáa á athæfi þeirra manua, sðm

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.