Lesbók Morgunblaðsins - 29.01.1928, Side 8
32
LESBÓK MOEOUNBLAÐ3INS
gera sig seka í glæpsamlegu fram-
ferði gegn góðum siðum.
Lað veldur mjer sárrar gremju
að lesa um það í blöðunum, er
hjén eru að saka hvort annað um
ófrygð og draga enga dul á bað.
Og það getur gert mig ofsa reiðan
þegar jeg sje, að fólk, sem hefir
þannig gerst opinbert að ótrygð,
er hylt í svokölluðum „fínum' ‘
fjelagsskap, eins og það væri lietj-
ur og mikilmenni.
ítalía vill ekki láta sjer nægja
það, að gera gælur við ósómann
og nefna hann vægari nöfnuin en
hann á skilið. Dómstólarnir munu
sjá um það, að syndin gegn heil-
ögu hjónabandi ve'rði nefnd sínu
rjetta nafni — hórdómur! — og
leggja við stranga refsingu.
Skákþranlir,
Eftir H. Hafstein.
n.
Trotski og frú. Þess hefir áður verið getið í skeytum, að ráðstjórn-
in í Rússlandi hefir dæmt 30 af fyigismönnum Trotski og' hann sjálfan
í útlegð. Fengu þeir tilkynningu um það frá stjóminni hinn 3. des-
ember, að þeim mundi með þriggja daga fyrirvara tvístrað og þeir
sendir til ystu hjeraða landsins. Trotski val- svo sendur til Astrakan,
Rakovski til afskekfs bæjar í lijeraðinu Viatka, Radek og Kamenev
td Tobolslt-hjeraðs í Síberíu og Sinovjev til einh-vers þorps hjá Ural-
fjöllum. Er þetta talin ein liin merliilegasta ráðstöfuri ráðstjórnarinn-
ar. — Trotski hefir áður verið ger landrækur úr 17 ríkjum.
Lausn
á skákþraut nr. 1.
Hvitt: Svart:
1 Df2—f5 Kc6—b6
2 Df2—f5 Kc6—h6
3 Bg3—c7 mát.
eða
1 Df2—f5 Kc6—b7
2 Df5—c8 Kb7xc8
3 Be2—a6 mát.
Srnælki.
Úr nógu að velja. Vanderbilt
yngri var einu sinni í spilaknæpu
og misti þar slifsisnælu sína. Hún
var 40.000 franka virði. Ilann
kærði tjón sitt fyrir húsráðanda,
en hann sendi þegar leynilögreglu-
þjón til að hafa upp á nælunni.
Tíu mínútum seinna kom leynilög-
regluþjónninn með prúðbúinn
raann og nú gengu þeir og Vand-
erbilt inn í afskekt herbergi. Þar
dró sá prúðbúni 21 slifsisnælu upp
úr vasa sínum og lagði á borðið
og mælti: „Jeg man hreint eltki
hverja næluna þjer eigið!-Þjer
verðið að finna hana sjálfur." —
Vanderbilt tók nælu sína og borg-
aði manninum 1000 franka fyrir
það að skila henni.
Sá ljótasti. Maður er nefndur
Sam Langford og er Svertingi. ■—
Hann var einu sinni kunnur hnefa-
leikari, en varð að hætta vegna
sjóndepru, og nú er hann blindur
og hefir ofan af fyrir sjer með því
að bursta skó. — Binu sinni — það
var víst í París — átti hann að
berjast við annan Svertingja, sem
Sam McVea hjet. Þegar þeir tók-
ust í hendur á orustupallinum, hló
Langford út undir eyru, dró upp
hjá sjer tóbakspípu og rjetti hin.
um.
— Ge'rðu svo vel, Sam, þú átt að
eiga þessa pípu!
— Frá hverjum er húní
— Frá föður mínum.Þegar hann
afhenti mjer hana sagði hann: Ef
þú hittir nokkru sinni Negra, sem
er ljótari en þú sjálfur, þá gefðu
honum þessa pípu. Þú átt skilið að
eiga hana, Sam!
Vegua Olympíuleikanna, er fram
eiga að fara í Amsterdam í sumar,
hefir verið stofnaður þar sjerstak*
ur tungumálaskóli fyrir lögreglu-
þjónana. Eru 300 lögregluþjónar
í skóla þessarn, og læra þeir þar
frönsku, ensku og þýsku, svo að
þeir standi ekki uppi ráðþrota og
mállausir þegar ferðamanna-
straumurinn kemur.
abcdefgh
Hvítt leikur og mátar í 3. leik.
í*afoldarprentamiöja h.f.