Lesbók Morgunblaðsins - 08.07.1928, Side 8
216
LESBÓK M0RGUNB1.A.ÐSINS
Sending.
Uppvakningur einn kom iijer frá
Ameríku,
úr Alpversleir og Drepstokksdellu
samansettur.
Sá var ekki í vexti nettur.
Kraftaskáld ei koma ]>arf að
kveða’ hann niður.
Málfræðingar mikið lilæja,
má það litla draugsa nægja.
V. G.
Smælki.
Stærsta verslunarhús í heimi.
er nú verið að smíða í ('hieago.
Yerður það helmingi stærra en
nokkurt verslunarhús, sem reist
liefir verið til þessa. Það er 18—23
hæðir og langt að því skapi. Bygg
ingarkostnaður er áætlaður 30
miljónir dollara. Gólfflötnr þess
verður samtals 4 miljónir ferfeta.
-r- Ilann segist ekki reykja, ekki
drekka og ekki spila.
— Nei, hann hefir þá enga ó-
kosti! «
— Hann hefir aðeins einn
ókost. — Það er ekki einú orði
trúandi sem hann segir.
Maggie litla var dóttir ritstjóra
og hún heyrði föður sinn einu
sinni segja, að ritstjórár yrðu að
vita alt. Hún notaði þegar tæki-
færið til að afla sjer fróðleiks.
—- Pabbi úr hverju dó Dauða-
hafið?
— Það get jeg ekki sagt þjer.
—- Pabbi, hvað verður af draum-
unum, þegar maður vaknar?
— Það veit jeg ekki.
— Pabbi, hvers vegna setti guð
svona mörg bein í fiskana?
— Það veit jeg eltki bami
— Pabbi, hvernig gatstu orðið
ritstjóri ?
100.000 krónur hefir gamall Eng
lendingur nýlega gefið barnaspít-
ala í Cardiff. Fyrir vextina af
þessu fje á að kaupa leikföng-
lianda litlu sjúklingunum um hver
jól.
ljSfol#«rpr.ntsml»Ja tlf.
Nýlega flaug ameríkskur flugmaður, Kingsford Smith að nafni,
yfir Kyrrahaf frá Kaliforniu til Ástralíu. Sú vegarlengd er 7300
enskar mílur. Frá Kaliforniu flaug Smith í einum áfanga til
Fidji-eyja, og er það hið lengsta flug, sem enn hefir verið far-
ið yfir opið haf. — Hjer á myndinni sjest Smith og flugvjel hans
sem heitir „Southern Cross“.
— ———i———■——
Jámbrautarslysið mikla í Svíþjóð.
Fyrir skemstu varð hræðilegt járnbrautarslys hjá Bolnás í
Svíþjóð. Farþegalest, sem ók með 84 km. hraða, rakst á aðra
lest, sem ók með 60 km. hraða. Áreksturinn varð hræðilegur, eins
og nærri má geta. Margir vagnar fóru í mjöl, eða hentust út af
teinunum. Digur járn bognuðu og kýttust, eins og þau hefðu
verið úr pappír. 250 farþegar voru með farþegalestinni. Af þeim
biðu 16 bana þegar í stað, en 20 særðust hættulega. Þykja það
mestu undur, að manntjónið skyldi ekki verða miklu meira, og
er það þakkað því, að bugða var á brautinni, þar sem lestirnar
rákust á. Ef þær hefðu mætst á beinni braut, er talið að slysið
þefði orðið enn liræðilegrn,