Lesbók Morgunblaðsins - 03.12.1933, Side 2

Lesbók Morgunblaðsins - 03.12.1933, Side 2
370 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS Scotland Yard. Húsið, sem hin fræga leynilögregiustofmin hefir ver- ið í, á nú að rífa og byggja annað liús miklu stærra. Verður það }>á lögreglumiðstöð fyrir alt England. A myndinni hjer að ofan sjest forstjóri Scotland Yard, Trenchard lávarður og Scotland Yard bygg- ingin í London uppljómuð um miðja nótt, því að leynilögreglan ^ starfar eigi síður á nóttunni en á daginn. !-------------------------------------------------------------------- ir sjer far um að núa slíkum lilut- um inn í huga lesandans, þá verð- ur honum alt af fyrst á að spyrja: Til hvers er verið að þessu? — Gerir höfundurinn sjer krók iit að sorphaugunum af þeirri einu svínsnáttúru, að liann hefir á- nægju af að róta í þeim, eða vakir hjer á bak við einhver markviss tilgangur? Er höfund- urinn svo mikið skáld, að liann með skáld'íkap sínum á pappírnuin vilji einnig yrkja upp lífið sjálft til meiri göfgi og fegurðar — og er þá verk hans þannig úr garði gert, að það sje líklegt til jiess? A svarinu við þessari spurn- ingu veltur það, hvort eitthvað skáld er skóbótar virði-eða ekki. Óneitanlega fær maður iðulega það bragð á tunguna af því að lesa H. K. L., að tnannlífið sje raunar einn allsherjar sóðalegur sorphaugur bófa og illræðismanna, bar sem naumast þekkist ærleg taug og þar sem fagrar hugsjónir Heu annað hvort svik og blekk- in:rar eða heimspeki eymdarinnar. Þetta byggist á því að mannlífið er eins og maðkarnir á mykju- skáninni. að eins fyrirbrigði trvltra os- heimskulegra náttúru- afla. sem auðvitað er slegið föstu að skorti alt vit og tilgang. — I innganginum að: Þú vínviður hreíni, hljómar strax frumtónninn að þessari heimspeki hjegómans, í samtali langferðamannanna á strandbátnum: . Þegar maður siglir í kaldsælu skammdegismvrkri með fram þess- um ströndum. bá finst manni, að ekkert í heiminum geti verið öllu cmerkilegra og þýðingarlausara. en svona Utið þorp undir svona. háum fjöllum- Hvernig skyldu menn lifa á svona stað? Og hvem- ið skyldu menn devia? — Hvað skvldu menn segia hverir við aðra, benar þeir vakna á morgnana? Hvernig skyldu menn líta hverir á aðra á sunnudögum ? Og bvað skyldi rtrestinum finnast. þegar hann stígur í stóiinn á jólunum eða náskunum? Skvldi hann ekki siá hvað þetta er alt saman þýð- inearlaust? — — Já, hverskonar gleði og hverskonar sorgir skvldu eiginlega þrífast í kringum þess- ar daufu olíutýrur? Það hlýtur oft að koma fyrir á slíkum stöð- um, að menn sjái speglast hver í annars augum,. sannfæringuna um fátnýti þess að vera til. — Því liver maður hlýtur að viðurkenna, að það er iildungi.s þýðingarlaust að lifa ; slíkum stað“. f þessum dúr er öll bókin skrif- uð, og heldur hofundurinn áfram að lýsa fólkinu þarna eins og skynlausum skepnum og lífinu í heild sinni, sem er svo vita þýð- ingarlaust. Og í augum höfund- arins er baráttan og baslið svo yfirgengilegt og vesaldómurinn andlegur og líkamlegur svo mikill að það er eins og menn lifi aðeins til að þjást þarna um nokkur ár, þangað til menn drukkna í flæð- armálinu, sumir óvil.jandi en aðr- ir viljandi, sumir á brúðkaups- daginn sinn, en sumir aðra daga, eins og höf. kemst að orði. Jafnvel framar en Vefarinn mikli stendur bók þessi að orð- snild, en hún er með sömu ein- kennum að því leyti, að það er eins og frá henni andi djúpri fyr- irlitningu á mönnum, lifnaðarhátt- um þeirra, hugsunum þeirra og filfinningum, eðli þeirra og ör- lögum. Maður fær þá tilfinning, að hjer sje höfundur, sem skortir samúð með persónunum, sem hann er að lýsa. Og ef samúðin er til, þá takist honum a. m. k. vel að dylja hana- En ef liann gerir .sjer far um að dylja hana, þá sje það gert af oflátungshætti, sem góður rithöfundur á ekki að láta sjer sæma. Þegar Halldór gengur rakleitt úr sinni kaþólsku kirkju yfir í hóp spottaranna, ti 1 að hrakyrða með borginmannlegu yf- irlæti það, sem mörgum er enn þá heilagast, nefnir trúarbrögðin kjaftaþvaður og dýrlingana, hverra bein hann kyst i fyrir skömmu síðan með brennandi f.jálgleik, byski, ásamt Maríu mey og guði almáttugum, þá er slílcur hávaði auðvitað auglýsing á feg-

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.