Lesbók Morgunblaðsins - 03.12.1933, Síða 7

Lesbók Morgunblaðsins - 03.12.1933, Síða 7
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 37«‘) -L-i-p-u-r-ð- Fyr hef jeg ýmsan fimleik sjeð, en fimi, líka þinni, svo leikandi, svífandi líkamsmýkt, jeg leit ei nokkru sinni. Þú kemur við gólfið og kastast í hring eins og knöttur, sendur af hendi, og syngur undir það sólskinslag, er sumardísin þjer kendi. Þú, snögg eins og leiftur, í loftköstum ferð, þu líður sem frækorn í blævi. I dýrlegum fögnuði dag hvern, þú, dansar, uns lýkur æfi. Þótt mörg sje í dansinum mjúk og glæst af meyjum skemtistaða, þú berð af þeim öllum í ljettstígri list, í lipurð og snúningshraða. Þetta er staðreynd, en þó er nú svo, að þannig er vegið og metið, að þær eru dáðar og þeirra er minst, en þín er að engu getið. Hví gerist það svo, að menn gleyma þjer, en geyma þær jafnan í huga? Jú, þær eru konur, já, það er satt, en þú ert — maðkafluga. Böðvar frá Hnífsdal. 12 daga fresti allan ársin.s liring eignast bananafluga með ófrávíkj- anlegri reglu 1000 afkvæmi. Og á 48 dögum er hún orðin langamma- Með öðrum orðum: Vísindamaður getur á einu ári rannsakað hjá iienni fleiri ættliði heldur en hann gæti rannsakað hjá músum eða öðrum tilraunadýrum alla .sína ævi. Það er ekki þægilegt að rann- :aka arfgengi hjá mönnum, fyrst og fremst vegna þess, að ekki má nota þá til tilra\ma og í öðru lagi vegna ]>ess íivað viðkoman er lítil cig langt á milli ættliða- Enn ber þess að gæta að ,,Kromosomer“, liinar örsmáu ,,sellur“ sem erfð- irnar fylgja, eru svo margar li.já mönnunum, 24 samstæður, en lijá bananaflugunum aðeins 4 þráða og korna ,,Kromosomer“. Eftir að hafa rannsakað rúm- lega 20 miljónir af bananaflugum, eru menn nv'i komnir á svo góðan rekspöl, að þeir geta gert teikning- ar af „Kromosomunum“ þannig að hinum ýmsu erfðatilhneiging- um er nákvæmlega niðurskipað, því að þær eru í rjettri röð eins og perlur á festi. Svo nákvæmir eru menn orðnir í þessu, að þeir geta sagt fyrir frain hvaða eigin- leika foreldranna afkomendur erfa- Skilyrðið til þess að einhverj- ir eiginleiar verði arfgengir '■— og það á líka við um menn — er oft- ast nær það að foreldri hafi hæði þann eiginleika. En stundum eru áhrif annars kynsins svo sterk, að þau nægja. Auk afbrigðisins með hvítu aug- un, hefir Morgan og samverka- menn hans fundið 700 önnur af- brigði meðal bananaflugnanna, og einkenni þeirra eru öll arfgeng. Þeir hafa fundið um 50 augnaliti, marga liti á búknum, flugur með tvöfalda vængi, vanskapaðar flug- ur. dverga og risa og tvíkynja flugur. Allskonai- arfgenga sjúk- dóma hafa þeir líka fundið hjá þeim. Því ertu með glóðarauga? — Manstu eftir konunni, sem átti manninn sinn í Kína? — Já, en---------- — Maðurinn var ekki í Kína- Saga frá París. Mörg einkennileg mál koma fyr- ir í Frakklandi- Þetta er eitt þeirra og það er nú á döfinni: Tannlæknir og verkfræðingur áttu heima í sama híísi. Einhverju sinni urðu gervitennur verkfræð- ingsins óþolandi og hann varð að leita til læknisins, nábúa síns. Læknirinn ljet liann fá nýjar gervitennur, og eftir hæfilega langan tíma sendi hann reikning- inn, 1500 franka. Yerkfræðingur- inn malpaði eitthvað í móinn, en greiddi ])ó 1000 franka. Eftirstöðv arnar var hann ófáanlegur til að borga, liversu oft sem reikningur- inn var .sendur. Einn góðan veðurdag hittust þeir lannlæknirinn og verkfræð- ingurinn í stiganum. Tannlæknir- inn heilsaði ósköp kurteislega. og liinn tók því vel- Hvað er að sjá þetta. segir tannlæknir alt í einu, gervitenn- urnar, sein þjer fenguð hjá mjer, sitja skakkar í munninum á yður. Þetta má jeg til með að laga ! Verkfræðing grunaði ekki neitt. fór með tannlækni inn í lækninga- stofu hans og settist í stólinn. Þá var tannlæknirinn handfljótur, rr-if gervitennurnar út úr lionum og mælti sigri hrósandi: „Nú fáið

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.