Lesbók Morgunblaðsins - 15.09.1935, Blaðsíða 1
JWor0íWitiI>líM>sátis
37. tölublað.
Sunnudaginn 15. september 1935.
X. árgangur.
f*afold»rprent«mlffjfc h.f.
Á reiðhjóli um Þýskaland
Knútur Arngrímsson . segir
frá 1600 kílometra ferðalagi
um landið, er hann fór i sum-
ar ásamt frú sinni.
Reykjavík, þá sjeu
þeir leiðinlegir til
lengdar.
Yitanlega er þægi-
legt að ferðast með
járnbrautarlestum. En
það sem maður sjer út
um gluggann á járn-
brautarvagninum, er
venjulega horfið, þeg- Knútur Arngrímsson og frú hans með
ar maður ætlar að hjólin, sem þau fóru á 1600 kílómetra
Þýskaland í sumar.
Nýlega komu þau Knútur
Arngrímsson og frú frá Þýska-
landi, eftir eins árs dvöl. I sum-
ar ferðuðust þau víðsvegar um
Þýskaland á reiðhjólum. Blaðið
sneri sjer t'l Knúts Arngrímsson-
ar og bað hann að segja eitthvað
frá ]>essu ferðalagi, og segir hann
frá á þessa leið:
TILDRÖG FERÐA-
LAGSINS.
Við höfðum dvalið í Miinchen
frá því í september í fyrra, og á
leiðinni þangað höfðum við að
vísu staldrað við bæði í Hannover
og Berlín, og í vor um Hvítasunnu-
leytið höfðum við verið nokkra
daga austur Arið landamæri Aust-
urríkis, en okkur langaði til að
sjá eitthvað meira af Þýskalandi,
áður en við færum heim. 1 lok júní-
mánaðar hófst sumarfríið í há-
skólanum.
Sólin og sumarið seyddi okkur
burt frá stórborginni. Þó bið jeg
menn að skilja mig ekki svo, að
við værum orðin leið á Munchen.
Þvert á móti vil jeg taka það
fram, að Múnchen er mjög við-
kunnanleg borg. En jeg hefi nú
einhvernveginn komist á þá skoð-
un, að sjeu bæir mikið stærri en
t'ara að veita því veru-
tega eftirtekt. — Yið
völdum því reiðhjólin. Það eru
samleg farartæki, ef maður hefir
vit. á því, að ofbjóða þeim ekki,
með altof miklum farangri.
FERÐ UM SUÐUR-
ÞÝSKALAND.
Við lögðum af stað 5. júlí og
hjeldum suður frá Múnchen til
Fússen, sein er smáborg norðan
undir Ölpunum við ána Lech.
Síðan fórum við í einlægum krók-
um eftir dölum og yfir hálsa,
milli svonefndra AllgáuAlpa, og
hjeldum þaðan niður til Lindau
við Boden-vatn. Því næst fórum
við vestur með vatninu og skoð-
uðum hinar fornfrægu kastala-
rústir á Hohentwiel, og hjeldum
svo þaðan vestur í Schwarzwald.
Á leiðinni brugðum við okkur
spölkorn suður fyrir svissnesku
landamærin. 1 Schwarzwald fór-
um við upp á Feldberg, en það
er hæsta fjallið þar um slóðir, og
hjóluðum svo niður hinn hrika-
lega Höllental ofan til Freiburg.
Síðan fórum við norður Rínar-
sljettuna alla leið til Heidelberg.
En af þeirri leið tókum við þann
útúrdúr, að bregða okkur yfir
Rín á brúnni hje Kehl, og til
Strassburg. Við gengum upp á
fjallið Königsstuhl hjá Heidelberg
og nutum þaðan hins fegursta
útsýnis. Síðan hjeldum við upp
með ánni Neckar til Heilbronn.
Fórum við þaðan til Stuttgart, en
komum við á leiðinni í Marbach,
sem er fæðingarstaður Schillers,