Lesbók Morgunblaðsins - 15.09.1935, Qupperneq 4
292
LESBÓK MORQrTNBLAÐSINS
Drápsgeislarnir ensku.
Höfundur þeirra hefir ekki trú á því, að þeir
verði notaðir að mun, ef til ófriðar kemur.
I blöðum birtast altaf við og við
fregnir um undraverða íteisla, sem
eiga að geta drepið menn. á löngu
færi, stjórnað mannlausum skip-
um, stöðvað flugvjelar í háalofti
og bíla, sem eru á hraðri ferð.
Einn af þeim mönnum, sem
unnið hefir að þessum uppgötvun
um, er Englendingurinn Grindell
Matthews.
FYRIR 20 ÁRUM.
Fyrir 20 árum gerðist merkis-
viðburður í lífi þessa manns. Þá
vann hann sjer inn stóra upp-
hæð á skömmum tíma en nokkur
leikari eða jafnvel nokkur spá-
kaupmaður hefir unnið svo skvndi
lega. Hann fekk sem svaraði %
miljón króna fyrir 5 mínútna
starf.
Þetta var seint á sumrinu 1915.
Nokkrir menn komu saman í
Richmond-garðinum í London, þar
var Fisher lávarður flotaforingi,
Balfour og annað stórmenna.
Einn af þeim kynti þar Grindell
Matthews fyrir samkomu þessari.
Hann stóð á bak við töflu, er
reist var í tjarnarbakka einum-
Á töflunni varu ahmargir raf-
magnstenglar.
En á tjörninni flaut eftirgerð
lítil af einu af herskipum Breta
með rá og reiða, byssum og öðrum
tæk.ipm.
— Það hefir altaf verið ósk mín,
sagði einn af flotaforingjunum við
Matthews, að fá yfirstjórn á þessu
skipi.
— Nú getið þjer fengið það,
svaraði Matthews. Þjer skuluð
gera fyrirskipanir yðar. Skipið
hlýð'r. Það getið þjer verið vissir
um-
— Stefnið með fullri ferð að
gosbrunninum! skipaði flotafor-
inginn.
— Og í sama vetfangi fór skips-
skrúfan á hreyfingu, stýrisútbún-
aður sömuleiðis, og skipið tók
stefnu á gosbrunninn.
Allir horfðu agndofa á hreyf-
ingu skipsins. Menn hjeldu að
þræðir lægju frá tenglunum í
töflunni út í skipið. En svo var
ekki. Ekkert hafði gerst annað
en það, að Matthews fiktaði eitt-
hvað við tengla sína.
Brátt var skipið komið að gos-
brunninum, og flotaforinginn gaf
skipun um það, að skipið skyldi
snúa við til strandar.
Á leiðinni þangað mætti það
hríslu, er flaut á vatninu.
— Óvinurinn nálgast, sagði
Matthews. Eigum við að leggja
til orustu?
— Til orustu, skipaði aðmíráll-
inn! Skjótið!
— Hann hafði ekki fyrr mælt
þessi orð, en ein af fallbyssum
skipsins var miðað á hrísluna, skot
reið af og kvistur af hríslunni
datt af. Skotið hitti mark.
Áhorfendur dæstu af undrun.
Skipið kom til strandar, og menn
ljetu undrun sína óspart í ljósi.
Enska stjórnin keypti skipið, all-
an vitbúnaðinn og skilríki Matt-
hews fyrir upphæð er nam %
miljón króna-
Breska stjórnin hefir því í 20
ár vitað hvernig liægt er að út-
búa mannlaus herskip sem láta
að stjórn.
AÐ FINNA KAFNÖKKVA.
Nú byrjaði Matthews á nýju
verkefni. Hann ætlaði að gera á-
liald sem gerði mönnum kleift að
verða varir við kafbáta í 20—30
km. fjarlægð.
Þetta reyndist erfitt verk. Hann
liafði ekki lokið þeirri hugvits-
smíði meðan á ófriðnum stóð.
Hvort hann hefir náð þessu tak-
marki nú, veit enginn, því Matt-
hews er þögull sem gröfin.
ENGINN FÆR AÐ KOMA
NÆRRI.
1 mörg ár hefir Matthews nú
verið uppi í háfjöllum Wales. Um
bústað hans er há gaddavírsgirð-
ing.
Enginn kemst yfir hana nema
fuglinn fljvigandi. Hvergi nærri
er trje eða runni, eða neinn felu-
staður. Ef einhver nálgast girð-
inguna að degi til koma varð-
menn og víkja honum á brott. Um
leið og einhver snertir girðinguna,
eftir að dimt er orðið, kviknar á
ótal kastljósum, svo enginn slepp-
ur ósjeður á brott. Þannig er sagt
að tekist hafi að handsama nokkra
njósnara.
Varðmenn hleypa engum inn í
girðingu þessa. Þeir hafa fyrir-
skipun um, að þó konungurinn
sjálfur kæmi, megi ekki hleypa
honum inn fyrir.
En engin regla er án undantekn
inga. Og nýlega fjekk ofursti
einn, enskur, P. T. Etherton að
heimsækja Matthews.
Etherton heflr síðan sagt, að
Mathewes sje enginn morðtóla-
smiður, sem geri ófrið ennþá
mannskæðari en áður. Uppgötvan-
ir hans miði frekar að því, að
draga úr manndrápum, bægja flug
vjelum og kafbátum á brott,
hindra manndrápin.
Hann segir að takmark sitt sje
að láta England standa jafnvel
að vígi og það stóð, áður en til
voru flugvjelar og kafbátar. Og
þetta er hægt, ef takast má að
finna ráð fll þess að bægja þessurn
farartækjum frá sjer, eða lama
þau.
Árum saman hefir Matthews
unnið að því, að senda rafmagns-
aflstraum loftleiðis. Með því mófl
á að vera hægt að senda eldingar
frá sjer er stöðva flugmótora. lam
ar stórskotabyssur, stöðvar alla
umferð sem rekin er með vjelum,
drepur jafnvel menn.
Grindell Matthews getur með
geislum þessum drepið rottur á
20 metra færi. Hann getur stöðvað
bíl í sömu fjarlægð, og hleypt
eldi í púðurhylki. Hann getur
kveikt á rafmagnsljósi loftleiðis,
þó engin raftaug sje í lampan.
Drápsgeislar þessir, er svo liafa
verið nefndir eru tvennskonar, þ.
e. a- s., fyrst er hinn svonefndi
„leiðslugeisli“, sem kemur í stað-
inn fyrir raftaugarnar.
1 þessu liggur mesti leyndardóm-