Lesbók Morgunblaðsins - 10.05.1936, Blaðsíða 6

Lesbók Morgunblaðsins - 10.05.1936, Blaðsíða 6
150 LESBÓK MORGUNBuaÐSINS Japönsk fjölskylda. Þessi mynd er af fjölskyldu Naganos flotafor- ingja, og bíður hjá flotamálaráðuneytinu í Tokio til þess að taka á móti Nagano er hann kom heim af flotamálaráðstefnunni í London fara svo vel við liið sólríka jap- anska töfraland. 1^ ÓLklÐ fer í bað í fjelagi. Er það ekki einkemiilegt ? Og þótt jeg væri Evrópumaður varð jeg að hlíta þessari venju, því að ekki eru til nema sameigin- leg baðherbergi. Og þarua baða Japanar sig oft á dag. Bað- tíminn er frá því árla á morgn- ana og fram undir kvöld. Og Jap- anar eru svo hispurslausir, að þeim kemur ekki til hugar að klæða sig í baðtímanum. Örlítil lendaskvla, rjett eins og fíkjublað, er klæðnaður þeirra, kofri á höfði og ef til vill gleraugu og arm- bandsúr. Bæði konur og karlar ganga þannig til fara. Þau þurfa ekki að skammast sín fyrir neitt og þurfa ekki að blygfast sín. A þessum baðtímum fer líka alt fram með dásamlegri siðsemi. Fyrsta morguninn ætlaði jeg að fá mjer aðeins skyndibað. Jeg hafði ásett mjer að fara í sjó seinni liluta dagsins og fá að vera þar einn út af fyrir mig. En þeg- ar jeg kom ínn í baðherbergið rakst jeg þar á heila fjöldskyldu, foreldra, piltung og tvær frum- vaxta yngismeyjar, öll alsnakin. Þeim brá ekkert þótt jeg kæmi inn. Engin hrínandi hljóð nje uppþot. Jeg reyndi að stama fram afsökun fyrir það að hafa ráðist þama inn á þau, en þess þurfti ekki. Þeim var alveg sama þótt jeg kæmi inn. Þau þurftu ekki að skammast sín fyrir neitt. I ÁSAMLEGT er hvernig lieil- ■*■'' ar fjölskyldur koma sjer fyrir í litlu herbetgi í gistihúsi, og hvernig sambúðin og heimilisbrag- urinn er þar. Fátt er húsgagna í herberginu, allur gólfflöturinn er tíl þess ætlaður að hver geti látið sjer líða þar sem best, og eftir eigin geðþótta. Eitt eða tvö mjög lág borð og fataskápur í veggnum sjálfum; flötum svæflum er raðað í hrúgu — einkeUni allra jap- anskra heimila. Svæflunum er skift milli heimilisfólks og gesta þegar þurfa þykir, og eftir hvers ósk. Tveir slíkir koddar, lagðir hlið við hlið mynda hvílurúm, og það má lengja og breikka eftir vild með því að_bæta fleiri kodd- um við. Umhverfis borðin eru kringlóttar sessur. og koma í stað stólanna í Evrópu. Fimm eða sex manna fjölskylda býr venjulegast í einu litlu her- bergi. En oft eru alt að tíu manna fjölskyldur í sama herbergi. í gistihúsunum gera menn sjer heimili úr þessu eina herbergi, en í gistihúsum í Evrópu væri slíkt óhugsandi. Það hindra hinir vondu siðir og venjur vorar ve’strænna þjóða. 1 miðju herberginu, á gólf- inu, reisir fjölskyldan sjer rúm úr svæflum og köddum. Yfir það er svo spent snjóhvítt flugnanet. Undir þessum hvíta, gagnsæa liimni, hvílir svo öll fjölskyldan, og kemst þannig af með undra- lítið liúsrúm, því að næsta morgun er þessu öllu svift þurtu, og þá eru sessurnar og koddarnir úr hviilunni notaðSr sem ^æti og hægindi. Það er einkennilegt að sjá. þegar flugnanetið hefir verið spent yfir svæflana og koddana, »ð þá er það eins og sjerstakt herbergi í herberginu. Og inni í ]>essu her- bergi lesa menn blöð og bækur skrifa brjef o. s. frv. og leggjast þar svo til hvíldar. Það er ótrú- lega viðkunnanlegt' í þessu tjaldi. Þar er ró og friður, en í herberg- inu fyrir utan sveiina ílugur og allskonar veggjalýs og skorkvik- indi, sem vakna með rökkrinu. TDOKÐSIÐIK og matarhæfi J,ap- ana er einkennilegt og að mörgu leyti til fyrirmyndar. Disk- ar og skálar eru lakkfægðar og gljáandi, með kolsvörtum eð,a rú- bínrauðum grunni og margskonar íburðarmiklnm skartmyndum. —■■ Fram eTu reiddir súrir og sætir á- \

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.