Lesbók Morgunblaðsins - 10.05.1936, Side 7

Lesbók Morgunblaðsins - 10.05.1936, Side 7
vaxtarjettir af óteljandi tegund- um, fiskur með ananas ídýfu, alls konar ferskir ávextir og rjettir úr skelfiski og ýmsu öðru, sem e'kki tjáir nöfnum að nefna. Eftir J)ví em borðsiðirnir ein- kennilegir. Þar eru ekki notaðir knífar og matforkar. Menn eta með trjeprjónum, sem jeg hefi ekki enn komist upp á að nota, þótt jeg hafi dvalist 20 ár í Jap- an. Hver maður er frjáls að því hvaða rjett liann velur sjer af þeim, sem á borðum eru. Menn stinga prjónunum í hingað og þangað. Prjónarnir eru altaf á lofti sitt á hvað, hver innan um annan, eftir því sem hver maður fjölskyldunnar óskar sjer að krækja í. En það, sem nú hefir verið talið er aðallega borðskartið. Aðal mat- urinn er hrísgrjónin, hjer eins og í Kína, nema hvað þau eru mat- reidd hjer á miklu fjölbreyttari og betri hátt. Meðal heldra fólks- ins eru J>au borðuð á undan aðal máltíðinni og drukkið með þeim eitt glas af „sake“, nokkurskonar hrísgrjónabrennivíni, sem er þjóð- drykkur Japana. Bridge. S: 5. H: 6,5. T: 5. L: Ás, 10. S: 8. H: D, G, 10. T: enginn L: K, D. S: Ás. H: K, 9, 8, 7. T: Ás. L: ekkert. Grand. A slær út. A og B eiga að fá 5 slagi. Enskur liermaður var nýlega dæmdur í 10 daga fangelsi fyrir J>að að óhlýðnast skipun yfirboð- ara síns. Hermaðurinn var með mikið og fallegt skegg og hafði honum verið skipað að raka það af sjer, en J>að vildi hann ekki gera. : 1 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS Mcmntal. í Horcgi. Fæðingum fækkar altaf. Nýlega hafa verið birtar skýrsl- ur um manntalið norska 1935. Sam kvæmt þeim hefir fólki í landinu fjölgað um 12.000. Þetta ár voru gefin saman 1700 fleiri hjón heldur en árið áður. En fæðingum fækkar stöðugt og voru nú ekki nema 14.6 á hvert þúsund, en voru árið áður 14,8 á hvert þúsund. Fleiri dóu þetta ár heldur en árið áður og hafði dauðsföllum fjölgað úr 9.82 í 10.21 af hverju þvisundi. „Haltu áfram“. Hinn frægi enski leikari, Kean var einu sinni að leika í litlu þorpi. Þar var húsfyllir og á- horfendur voru yfir sig hrifnir. Kean ljek þar hlutverk vinnu- manns og var að halda brennandi ræðu fyrir þ’jóð og íó(sturjörð þegar húsbóndi hans í leikritinu kom inn á leiksviðið og kallaði: — Hættu nú! — Æ, lofaðu mjer að halda áfram.---------- — Jeg sagði þjer að þegja, grenjaði húsbóndinn eins og fyrir hann var lag.t í leikritinu. Þá urðu áhorfendur æstir, stóðu upp úr sætum sínum og hrópuðu hver í kapp við annan: — Haltu áfram! Vertu ekki að trufla hann ! Haltu áfram ! Hávaðinn varð svo mikill að leikendurnir urðu að hætta. Og þarn'a komst Kean í þá verstu klípu, sem hann hafði komist í á æfi sinni, því að ræðan var ekki lengri í leikritinu. 79 giftum mönnum var stefnt fyrir rjett í Chicago og þeir ákærð ir fyrir að hafa farið illa með konur sínar. Dómsforsetinn, Ro- bert Danne, fann upp á því snjall- ræði að láta konurniar sjálfar dæma menn sína. 78 voru dæmdir sýknir, en 79. konan krafðist J)ess að maður sinn yrði settur í „stein- inn“ og sæti Jvar i 2 mánuði. 151 — Molar — Úrið gekk. - Einu sinni hengdi bóndi í Iowa í Bandaríkjunum vesti sitt á girðingu. Kálfur kom þar að, át vasann undan vest- inu og gleypti gullúr, sem í honum var. Sjö árum seinna var kálfurinn orðinn væn kýr, og var henni slátrað. Fanst þá gullúrið og hafði það legið allan tímann þannig milli lungn anna að það drógst upp sjálf- krafa við andardráttinn. Gekk það enn og hafði ekki seinkað sjer nema um fjórar mínútur á þessum sjö árum. — Frásögn þessi birtist í blaðinu „The Torch“ og segir ritstjórinn að hún sje dagsönn. Hjartasorg. Stiilka í London, Miss Mat- ilde John, misti unnusta sinn árið 1795. Hún syrgði hann mjög og sprakk af harmi 89 árum seinna. Útlegðarsök. Rússneski austurlandafræð- ingurinn, prófessor Netomeff, ritaði bók um Nebúkadnesar Babylóníukonung. Hann var dæmdur til æfilangrar útegðar í Síberíu, vegna þess að titill bók arinnar var Nebuchadnezar, en það var svo líkt. því að sagt væri á rússnesku: „Ne boch ad ne zar“, en það þýðir: enginn guð og eliginn keisari. Sá hlær best. Grískum manni hafði verið spáð J)ví, að hann ætti að deyja ákveðinn dag. Þegar nú sá dagur kom og hann kendi sje'r einkis meins, greip hann svo tryllingslegur hlátur, að hann beið bana af. Dæmdur fyrir morð. Árið 1839 var maður að nafni Paul Hubert dæmdur í Bordeaux fyrir morð. Eftir að hann hafði setið í fangelsi í 21 ár fekst mál hans tekið upp að nýju, og kom þá í ljós, að maðurinn, sem hann átti að hafa myrt, var liann sjálfur.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.