Lesbók Morgunblaðsins - 17.05.1936, Page 1
20. tölublað.
J5®lor3Jijj!>Iaí>0M0
Sunnudaginn 17. maí 1936.
XI. árgangur.
k.f.
ARNI OLA:
Kaflar úr sögu
HEGNINGARHUSSINS
I REYKJAVIK.
T TPP úr aldamótunum 1800
fer föngum sífelt fjölg-
andi hjer í hegningarhúsinu,
svo að til vandræða horfir
um það að láta þá fá nógan
mat, og gæta þeirra. Hinn 3.
mars 1804 eru taldir þar 19
fangar fyrir utan sakafólk,
en það var 7 karlmenn og 7
konur, eða alls 33 fangar,
en í nóvember sama ár, eru
fangarnir 40. Eru jafnan
taldir margir sjúklingar á
meðal þeirra, og eru konur
þær, sem hraustar eru, látn-
ar hjúkra þeim, en annars
stunda þær tóskap, ræsta
fangaklefana og íbúð_ fanga-
varðar; eru í eldhúsinu, látn-
ar fara í þangfjöru, vinna að
mó og garðrækt o. s. frv.
En karlmennirnir eru látn-
ir stunda allskonar úti-
vinnu hjá hinum og öðrum,
kom jafnvel fyrir að þeir
voru lánaðir suður til Kefla-
víkur. Á vertíðinni eru þeir,
sem hraustir eru, látnir róa
og; í apríl hafa þeir flestir
róið 6—12 daga, en sumir
verið í beitifjöru. Er nóg;u
fróðlegt að taka lítinn kafla
upp úr vinnuskýrslum fanga
varðar. í aprílskýrslunni
fyrir árið 1804 segir svo:
— Jón Jónsson stór> 11
daga við útróðra, Jón Helga-
son einnig, Guðm. Nikulás-
son 12 daga við sjóróðra, 3
daga í beitufjöru. Hannes
Hannesson 12 daga við sjó-
róðra, 3 daga í beitufjöru, 1
dag að sækja skipið, Va
bjá Frydensbergbæjarfógeta
1 dag hjá Wetlesen, 2 daga
í apótekinu, 1 dag að höggva
brenni. Jón Runólfsson 11
daga í beitufjöru, 1 dag hjá
Wetlesen, 1 dag hjá Knud-
sen, 1 dag að sækja lækni t'l
að skoða lík eins fangans.
Tveir voru 17 og 19 daga að
vinna út í bæ. Þuríður Niku-
lásdóttir gerði hreint í 23
daga, Kristín Vigfúsdóttir
var við hjúkrun allan mán-
uðinn. Helga Jónsdóttir var
ýmist við hjúkrun eða í
fiski. Jón Snorrason var um-
sjónarmaður hússins. Af
sakafólkinu voru allir veikir,
nema einn sem dó! Konurn-
ar voru og flestar veikar.
Má nú gera ráð f.yrir að
sumir hafi slegið á sig
skrópasótt, en aðrir hafi
verið veikir af slæmri að-
búð og illri meðferð. Munu
sjást rök til þess í því sem
fylgir hjer á eftir.
V'egna þess að fangarnir
ljeku nokkuð lausum hala,
varð gæsla þeirra erfiðari,
og voru þeir stundum að
strjúka, eða fóru ferða sinna
að fangaverði forspurðum
og kynokuðu sjer jafnvel
ekki við að fremja allskon-
ar þjófnað innan veggja
hegningarhússins. Verða nú
talin ýmis slík atvik, eftir
því sem frá þeim er skýrt í
fundabók hegningarhús-
stjórnarinnar og öðrum
skjölum.
IJ INN 23. ágúst 1804 helt hegn-
*■ ingarhússtjórnin fund í hegn-
ingarhúsinu. Fundarefnið var það,
að halda yfirheyrslur yfir nokk-
urum föngum, sem Waldbohm
fangavörður hafði tilkynt að tek-
ið hefði sig saman um það að
strjúka úr fangahúsinu. Væri
foringi þeirra Bjarni Bjarnason,
morðinginn frá Sjöundá. Hafði
hann lengi verið hafður í járnum,
en slept úr þeim að læknisráði,
vegna þess hvað honum v-ar o-rð-
ið ilt í fótunum. Sagði Waldbohm
í kæru sinni, að fangarnir hefði
útvegað sjer ýmis verkfæri, svo
sem öxi, tvo knífa, sax og beykis-
kníf.