Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 17.05.1936, Qupperneq 1

Lesbók Morgunblaðsins - 17.05.1936, Qupperneq 1
20. tölublað. J5®lor3Jijj!>Iaí>0M0 Sunnudaginn 17. maí 1936. XI. árgangur. k.f. ARNI OLA: Kaflar úr sögu HEGNINGARHUSSINS I REYKJAVIK. T TPP úr aldamótunum 1800 fer föngum sífelt fjölg- andi hjer í hegningarhúsinu, svo að til vandræða horfir um það að láta þá fá nógan mat, og gæta þeirra. Hinn 3. mars 1804 eru taldir þar 19 fangar fyrir utan sakafólk, en það var 7 karlmenn og 7 konur, eða alls 33 fangar, en í nóvember sama ár, eru fangarnir 40. Eru jafnan taldir margir sjúklingar á meðal þeirra, og eru konur þær, sem hraustar eru, látn- ar hjúkra þeim, en annars stunda þær tóskap, ræsta fangaklefana og íbúð_ fanga- varðar; eru í eldhúsinu, látn- ar fara í þangfjöru, vinna að mó og garðrækt o. s. frv. En karlmennirnir eru látn- ir stunda allskonar úti- vinnu hjá hinum og öðrum, kom jafnvel fyrir að þeir voru lánaðir suður til Kefla- víkur. Á vertíðinni eru þeir, sem hraustir eru, látnir róa og; í apríl hafa þeir flestir róið 6—12 daga, en sumir verið í beitifjöru. Er nóg;u fróðlegt að taka lítinn kafla upp úr vinnuskýrslum fanga varðar. í aprílskýrslunni fyrir árið 1804 segir svo: — Jón Jónsson stór> 11 daga við útróðra, Jón Helga- son einnig, Guðm. Nikulás- son 12 daga við sjóróðra, 3 daga í beitufjöru. Hannes Hannesson 12 daga við sjó- róðra, 3 daga í beitufjöru, 1 dag að sækja skipið, Va bjá Frydensbergbæjarfógeta 1 dag hjá Wetlesen, 2 daga í apótekinu, 1 dag að höggva brenni. Jón Runólfsson 11 daga í beitufjöru, 1 dag hjá Wetlesen, 1 dag hjá Knud- sen, 1 dag að sækja lækni t'l að skoða lík eins fangans. Tveir voru 17 og 19 daga að vinna út í bæ. Þuríður Niku- lásdóttir gerði hreint í 23 daga, Kristín Vigfúsdóttir var við hjúkrun allan mán- uðinn. Helga Jónsdóttir var ýmist við hjúkrun eða í fiski. Jón Snorrason var um- sjónarmaður hússins. Af sakafólkinu voru allir veikir, nema einn sem dó! Konurn- ar voru og flestar veikar. Má nú gera ráð f.yrir að sumir hafi slegið á sig skrópasótt, en aðrir hafi verið veikir af slæmri að- búð og illri meðferð. Munu sjást rök til þess í því sem fylgir hjer á eftir. V'egna þess að fangarnir ljeku nokkuð lausum hala, varð gæsla þeirra erfiðari, og voru þeir stundum að strjúka, eða fóru ferða sinna að fangaverði forspurðum og kynokuðu sjer jafnvel ekki við að fremja allskon- ar þjófnað innan veggja hegningarhússins. Verða nú talin ýmis slík atvik, eftir því sem frá þeim er skýrt í fundabók hegningarhús- stjórnarinnar og öðrum skjölum. IJ INN 23. ágúst 1804 helt hegn- *■ ingarhússtjórnin fund í hegn- ingarhúsinu. Fundarefnið var það, að halda yfirheyrslur yfir nokk- urum föngum, sem Waldbohm fangavörður hafði tilkynt að tek- ið hefði sig saman um það að strjúka úr fangahúsinu. Væri foringi þeirra Bjarni Bjarnason, morðinginn frá Sjöundá. Hafði hann lengi verið hafður í járnum, en slept úr þeim að læknisráði, vegna þess hvað honum v-ar o-rð- ið ilt í fótunum. Sagði Waldbohm í kæru sinni, að fangarnir hefði útvegað sjer ýmis verkfæri, svo sem öxi, tvo knífa, sax og beykis- kníf.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.