Lesbók Morgunblaðsins - 14.06.1936, Blaðsíða 6

Lesbók Morgunblaðsins - 14.06.1936, Blaðsíða 6
190 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS Iðnsveinar á ferðalagi. Það var algengt á nieginlandi Evrópu á mið- f&öldunum og jafnvel seinna, að iðnsveinar lögðu land undir fót, og ferðuðust með skreppu og staf borg úr borg og unnu fyrir sjer þar sem vinnu var að fá. Nú hefir þessi siður verið vakinn upp í Þýska- landi að nýju. Meistarar í borgum, sem eru Langt hver frá annari, lofa að skiftast á sveinum, svo og svo langan tíma, > en sveinarnir far.a fót- gangandi á milli og vinna fyrir sjer á leiðinni. Nýlega lögðu 120 iðn- sveinar á stað frá Berlín. — Trjesmíðasveinarnir voru í einkennisbúningum sínum. keypt brauð hjá Potræus fyrir alla 18 skildingana, en ekki 2 sk. Nokkrum dögum seinna segir lianu svo, að það sje alt lygi, sem lianu hafi borið um tóbakið. Seg- jst hann níi hafa látið Guðríði Jónsdóttur úr Snæfellssýslu (hún losnaði úr fangahúsinu 24. október) fá 4 pund af því, gegn loforði um smjör næsta vor, og sem borgun íjt ir nokkra skildinga, sem hann hafi skuldað henni. Þetta hefði gerst niður í fjöru,* þar sem þau voru tvö ein, og hefði Guðríðtir hót- að sjer öllu illu ef þetta kæm- ist nokkru sinni upp, og skyldi hún þá ofsækja hann og elta með öllu því illa, sem sjer kæmi til» ^ hugar. Þess vegna hefði hann ekkif þorað að segja hið sanna, bví að hann væri hraddur við hana. Út af þessu var leitað til yfir- vialdanna í Snæfellsnessýislu og Uy.íafjarðarsýslu að yfirhtvra þau Guðríði og Einar Eiríksson, en ekkert hafðist upp úr því. En vegna þessa drógst málið á langinn og voru ekki kveðnir upp dómar í því af hegningathússtjóminni fyr en 9. apríl 1807. Þá voru tveir af sakborningui t látnir, Nikulás Páls- son og Vigfus Erlendsson og end- aði hann þannig æfi sína í hegn- ingarhúsinu, þótt hann hefði tek- ið ut tildæmda refsingu. og ver- ið kominn frjáls ferða á stað heim til sín. Uómarnir. Þeir fellu þannig: Bjöm Gíslason var dæmdur til æfilangrar þrælkunarvinnu á Brim- arhólmi (hafði verið dæmdur eins fvrir f\rra innbrotið). Kjartan Ólafsson var dæmdur til þiælkunar á Brimarhólmi í 3 ár. Jón Gíslason sömuleiðis. Þuríður Nikulásdóttir var dæmd til að vinna enn 3 ár í fangahús- inu. Guðrún Egilsdóttir slapp með það gæsluvarðhald er hún hafði setið í síðan í nóvember. Guðrún Þórðardóttir var sýknuð. Þeir Björn, Jó'n og Kjartan áfrýj uðu dómunum til konungsnáðar, en Þuríður var ánægð með sinn dóm. Ymsar sagnir. (Eftir handriti Sigm. M. Long í Landsbókasafni). Guðmundur í Húsey. Filippus landhlaupari er maður nefndur. Hann var af Vestfjörð- um, en var eitt ár í Mtilasýslu. Þeg- ar hann fór þaðan bað hann Jens Wium sýslumann að sjá um þrjár lambgimbrar, sem hann ætti eftir í sýslu hans, en aldrei bar á nema tveimur börnum, sem honum voru kend. Annað var Guðmundur, sem seinna varð bóndi í Húsey og lengi hreppstjóri í Hróarstungu. Guðmundur var með stærstu mönnum, mikill um herðar og búk, kviklegr og snar. Hann var ætíð á hlaupum þá hann var á ferð, ber- fættur og helt á smíðaöxi sinni vanalega. Skapmikill var hann. Væri eigi alt gert að vilja hans, varð hann æfur, barði saman hnef- unum og stökk í loft upp. Bar líka oft við að öxi hans fór á loft. En enginn vissi til að hann blak- aði við manni hversu ógurlega sem hann ljet. Heimilisfólk hans óttaðist hann og elskaði. Við gesti var hann hinn skemtilegasti, og sat hjá þeim með ýmsu gamantali. Mikla skemtun hafði hann af því að leika á einfeldninga. Einu sinni þóttist hann hafa fundið lík rekið af sjó, bjó sig með sleða og umbúðir til að sækja það. Hafði hann með • sjer einfeldning, sem Eiríkur Bjarnason hjet, sagði honum að ganga á eftir sleðanum með grallara syngjandi. En sjálfur dró hann sleðann og var ekki annað á honum en rekadrumbur og flíkur breiddar yfir. Hermann hjet bóndi í Hólshjá- leigu en Ásmundur á Hóli, ísleif- ur hjet sonur hans. Guðmundur hendi oft gaman að þeim ísleifi og Hermanni. Það var eitt sumar í heyþurki miklum að töður lágu undir hjá Hólsbændum. Þá var það snemma morguns að Guðmundur hljóp ber- fættur fram að Fljóti móts við Hól og kallaði ferju. Menn voru komnir út á töðuvöll, því besti þurkur var, en með því þeir þektu manninn, brugðu þeir við og sóttu hann. Var hann svo hjá þeim lengi

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.