Lesbók Morgunblaðsins - 24.01.1937, Page 3
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
19
Nokkrir forvígis-
menn I. S. I.
Axel V. Tulinius.
Guðm. Björnson.
kvæmd fyr en árið 1934. Síðan
hefir sambandið haft skrifstofu í.
húsi Mjólkurfjelagsins, sem er op-
in 2 tíma á dag, en forseti í. S. í.
er þar til viðtals 1 klst. á viku.
Heiðursfjelagar og
æfifjelagar.
tjórn í S. í. hefir kjörið nokk-
ura heiðursf jelaga í viður-
kenningarskyni fyrir ágætt og
heillaríkt starf í þágu sambands-
ins og íþróttamálanna. Heiðursfje-
lagar I. S. í. eru: Axel V. Tulinius
(27.júní 1936), Guðmundur Björn-
son (29. mars 1928), dr. Halldór
Hansen (25. janúar 1929), Páll
Erlingsson sundkennari (7. júní
1929) og Sigurjón Pjetursson
glímukappi (28. janiiar 1932).
Sjötti heiðursfjelaginn er forseti
í. S. I., Ben. G. Waage, er var
kjörinn lieiðursfjelagi á aðalfundi
sambandsins 1935.
Æfifjelagar geta menn orðið
gegn 50 kr. gjaldi, sem lagt er í
sjerstakan sjóð. Fyrsti æfifjelag-
inn var Þórarinn Tulinius, en nú
er tala æfifjelaga 105.
Löff og reglur.
Uitt af aðalstörfum sambandsins
hefir verið að setja lög og
reglur um íþróttaiðkanir og í-
þróttamót. Leikreglur eru venju-
lega settar af alþjóðasamböndum
hverrar íþróttagreinar. Starf 1. S.
I. var í þessu efni aðallega að
þýða erlendar reglur á íslensku.
Það er oft og tíðum mikið vanda-
verk, því að hverri nýrri íþrótt
fylgja ný hugtök og nýir hlutir,
sem gefa þarf nafn. Mál íþrótta-
manna var áður fyr mjög blendið,
og er að sumu leyti ennþá, þó að
nú sje mikil bót á þessu ráðin með
starfsemi í. S. 1. Fremstií í þessu
málhreinsunarstarfi voru þeir
Guðm. Björnson landlæknir og
Ben. G. Waage. Sambandið hefir
gefið út fjölda laga og leikreglna,
sem ekki verður greint nánar
hjer.
Bókaútffáfa.
uk laga og reglugerða, sem
nú voru nefndar, hefir sain-
bandið gefið út nokkurar bækur
um íþróttamál. Útgáfa íþrótta-
bóka hefir jafnan verið mikið á-
hugamál stjórnar í. S. í., en fjár-
skortur hefir hamlað framkvæmd-
um. Er hjer aðstaða ólík því sem
annarstaðar er, þar sem útgáfa
góðra íþróttabóka er gróðavegur.
Af bókum sambandsins er merk-
Framh. bls. 22.
Halldór Hansen.
Páll Ertingsson.
Sigurjón Pjetursson,
Ben. G. Waage.