Lesbók Morgunblaðsins - 09.01.1938, Page 1
1. tölublað.
Sunnudaginn 9. janúar 1938.
XIII. árgangur.
■ ■•foldarprentnnilA)* k.f.
ÝÁRSSIÐIR
I BULGARIU.
Eftir Ivan H. Krestanoff.
Boris konungur Búlgara á ferðalagi un?( sveitir lands síns.
Aramótadagarnir eru í
röð þeirra daga, sem við er
tengdur margskonar átrúnaður
og fjöldi siða og venja í Búlg-
aríu. Síðan 1917, eftir upptöku
hins nýja tímatals, hefir að
nokkru leyti orðið tvískifting í
helgisiðahaldinu, að því er til
tímans kemur. En víða eru þeir
þó enn þá haldnir á degi hins
heilaga Bazils og næsta kvöld
áður. (Bazil er dýrlingur kirkj-
unnar, og dagur hans er 1.
janúar).
Nýársdagurinn er hátíðisdag
ur, sem enn þá varðveitir í
Búlgaríu nafn hinnar heiðnu
gyðju Surava, sem stýrir hátíð-
inni. Þá er það siður fólks að
kasta út um gluggann brauð-
bita, sem fjölskyldufaðirinn
sker af köku. Um leið og hann
;ker sneiðina, hefur hann yfir
svofelda bæn: ,,Guð minn og
þú heilaga Surava, blessið þið
oss og margfaldið kornöxin á
ökrum vorum, gripina í búpen-
ingi vorum, grasið og heyið á
túnum vorum og hunangið í bý-
flugnabúum vorum.“ Síðan út-
býtir hann meðal fjölskyldunn-
ar sneiðum af kökunni, eftir að
hafa drepið þeim niður í hun-
ang. Einni sneiðinni er kastað
út um gluggann og þessi orð
sögð fram um leið: „Surava,
nýtt ár og þú heilagi Bazil,
smakkið ofurlítið á kökunni
okkar.“
1 sumum þorpum er hent út
heilli gæs steiktri, sem ætluð
er, ef svo mætti að orði kveða,
gyðjunni Surava og hinum heil-
aga Bazil. Það er ekki vand-
sjeð, að þessi einkennilegi siður
miðar að því að minna á helgi
gestrisninnar, sem á þessum
heilaga degi ber að þjóna fá-
tæku fólki og alsleysingjum,
því að það er ein af meginhug-
myndum þessara hátíða.
Við gætum lengi haldið á-
fram að ausa úr brunnum gam-
alla erfðavenja og helgisiða.
En jeg vil í þess stað segja að-
eins frá einni af þeim tískum,
sem skringilegastar og sjer-
kennilegastar mega teljast frá
sjónarmiði þjóðsiðanna, því að
hún minnir á fornan átrúnað
vofra indógermönsku forfeðra.
Á meðan fram fara leikirnir og
hátíðaathafnirnar, sem fylgja
þessum skemtunum, velja ungu
stúlkurnar úr sínum hóp eina
stúlku, sem á að vera ljóshærð