Lesbók Morgunblaðsins - 09.01.1938, Qupperneq 8
8
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
Mikil snjóþyngsli og kuldar eru nú um alla Mið-Evrópu. í Norður-Afríku var t. d. nýlega 4 st.
frost. I Suður-Englandi hefir verið snjóþungt mjög, eins og þessi mynd sýnir, sem tekin er þaðan.
Nýárssiðir
í Búlgaríu (frh)
YFIRSÖNGVUM FINGUR-
BAUGA
af hálfu yngismeyjanna. Þá er
og spáð um, hvernig útsæðið
muni hepnast. Við þau tæki-
færi fara fram merkilegir siðir
kring um stólpa þreskiskálans,
þar sem heitið er á framtíðina
að færa útsæðinu meira korn.
Merkilegar eru líka hinar al-
mennu hótanir við ávaxtalaus
trje, til þess að þau beri ávexti.
Að lokum kemur til þess að
gefa hugmynd um búlgarska
tungu — móður allra slafneskra
tungna, — hvernig menn ávarp
ast eða óska hverir öðrum heilla
um nýárið:
„Cestíta nóva godína!“ Þ. e.:
Gleðilegt nýár!
Þess óska jeg líka öllum Is-
lendingum.
Ivan H. Krestanoff,
Reykjavík.
Dr. phiL í kossum.
Það kann að þykja ótrúlegt að
hægt sje' að fá doktorsnafnbót fyr-
ir bók um kossa. En svo er nú það.
í enskum bókabúðum geta menn
fengið keypta doktorsritgerð eftir
Stanley Peterhead um kossa. Mörg
um, ekki síst ungum stúlkum kann
að leika forvitni á því, hvaða fróð-
leik þetta vísindarit hefir að
geyma, hvort höfundur t. d. hefir
ritað bók sína út frá eigin reynslu,
ellegar hann er grúskari, sem graf-
ið hefir upp efni sitt úr gömlum
skruddum.
Bókin ber það með sér, að hann
er fyrst og fremst sagnfræðingur.
Hann hefir kynt sjer rækilega sögu
kossanna, og alla siði þá, sem þeim
hefir fylgt hjer á fyrri öldum.
Hjer á árunum áður, voru svo
miklir og margbrotnir kurteisissið-
ir í sambandi við kossa, að hinir
siðvöndu Englendingar höfðu blátt
áfram kennara í fæginu. Frægasti
kossakennari í Englandi á sinni
tíð var maður að nafni Whitelock.
Um hann er mikið talað í doktors-
ritgerðinni. Hann kendi ungum
stúlkum hvernig þær ættu að kyssa
á klæðafald drotninga og hefðar-
kvenna.
Kristín Svíadrotning heyrði svo
mikið látið af lærdómi Whitelocks
og kenslu, að hún kallaði hann til
hirðar sinnar. Hún réöi hann sem
kennara í kossahæversku og fjekk
hann mikil laun fjTÍr. Daglega
kendi hann ungum ríkismanna-
dætrum hæve'rskulist kossa, og var
Kristín drotning í mesta máta á-
nægð með framfarir síenskra
kvenna í list þessari.
Ráðningar á verðlauna-
krossgátu Lesbókar verða
birtar í næstu Lesbók.
Frestur til þess að skila
lausnum á verðlaunamynda-
gátu Lesbókar, sem birtist í
Gamlársblaði Lesbókar, er
framlengdur þar til á hádegi
fimtudaginn 13. þ. m.