Lesbók Morgunblaðsins - 13.02.1938, Síða 1
6. tölublað.
Sunnudaginn 13. febrúar 1938.
XIII. árgangui.
í*A/ol<UrprM»Uml8ja
Frá útför
Jóns Sigurðssonar
í Reykjavíkur-myndum þeim,
sem ísafoldarprentsmiðja gaf
út í haust, er mynd frá útför
Jóns Sigurðssonar og konu
hans, Ingibjargar Einarsdóttur,
þ. 5. maí 1880, og birtist hún
hjer. Er þetta ein af fáum at-
burðamyndum frá þeim tímum,
og með fyrstu ljósmyndum, sem
tekin var hjer af merkum at-
burði. Myndirnar frá heimsókn
Kristjáns IX. hjer 6 árum áð-
ur voru flestar teiknaðar.
Ljósmynd er þó til frá Þing-
vallahátíðinni 1874, er birtist í
Jóla-Lesbókinni síðustu.
Að því er blaðinu er kunnugt
hefir þessi mynd ekki verið
gefin út fyrri en í Reykjavík-
urmyndunum í vetur.
Aður en vikið er að atburði
þeim, sem myndin sýnir, er
rjett að vekja athygli með fám
orðnm á umhverfinu, eins og það
þá var í Aðalstræti og myndin
sýnir.
Húsið sem sjest lengst til vinstri
á myndinni var í þá daga, þegar.
þetta gerðist, eign Ólafs Ólafs-
sonar söðlasmiðs, en síðar keypti
Sturla Jónsson þetta hús og var
það lengi nefnt „Sturlubúð“, var
rifið fyrir nokkrum árum, og eigi
leyft að byggja á lóðinni, vegna
væntanlegra breytinga á gatna-
skipun þarna. Næsta hús vestan
við götuna er gamla Biskupsstof-
an, sem nú er eign verslunar
„Silla og Valda“. Næsta. hús norð-
an við er svokallað Hákonsenshús,
sem Einar „hattari“ átti á sínum
tíma, þar sem Jónas Hallgríms-
son bjó, er hann átti heima
hjer í Reykjavík, og þar sem
Sigurður Breiðfjörð dó síðar. En
Valgarður Breiðfjörð stækkaði
húsið í núverandi mynd þess og
er það með hans ummerkjum. Háa
húsið nyrst í götunni er núver-
andi Ingólfs Apótek, er Tærgesen