Lesbók Morgunblaðsins - 13.02.1938, Blaðsíða 7
Lesbók morgunblaðsins
satt í því sem Sandler utanríkis-
málaráðherra Svía sagði í gamni
í ræðu sem hann hjelt á loka-
kvöldi eins námskeiðsins, að ef
allir hermála-, fjármála- og utan-
ríkismálaráðherrar allra þjóða
væru saman á skíðum í Storlien
ámóta tíma og setið er á friðar-
ráðstefnum árlega, þá yrði áreið-
enlega aldrei framar stríð.
VI.
Frá jólum til 15. apríl starfar
skíðaskóli í Storlien. Kenn-
arar eru Á. Ditzinger og E- L.
Almkvist, háðir nýkomnir frá
skíðaskóla Hans Schneider í Aust-
urríki, sem er höfundur skíða-
íþróttarinnar eins og hún er nú.
I raun og veru er þessi skóli
enginn skóli í venjulegum skiln-
ingi, heldur aðeins óregluleg nám-
skeið fvrir þá gesti sem þess óska
og hjer dvelja um lengri eða
skemri tíma. Vanalegasti dvalar-
tími fólks hjer er 5—10 dagar.
Margir eru skemur en fáir lengur.
I sambandi við kenslu þessa
skíðaskóla eru engin erindi eða
kvikmyndasýningar, heldur er
aðeins æfðar sveiflur og ganga.
Kenslan fer fram tvo tíma fyrir
hádegi og tvo tíma eftir hádegi
og kostar 2 kr. fyrir hálfan dag,
3 kr. heilan dag, 8 kr. þrjá daga
og 15 kr. sex daga. Um fasta nem-
endur yfir lengri tíma er ekki að
ræða. Til æfinganna vorum við
flokkuð í þrjá flokka eftir getu.
Kenslan var góð, en á engan hátt
miðuð við það að nemendurnir
ættu seinna að kenna öðrum.
Svipuð starfsemi í smærri stíl
er rekin við öll skíðahótel í Sví-
þjóð og við flesta stærri skíða-
skálana er sama fyrirkomulag.
VII.
Lestin er að leggja af stað frá
Storlien. Jeg sit við vagn-
gluggann og horfi út. Glaðlegur
hópur stendur á brautarpöllunum
og veifar til einhverra kunningja
sem eru að fara. Það er annars
fátt fólk í Storlien núna, eins og
ævinlega á tímanum frá 15. jan.
til 15. mars. Frostið er 4 stig á
Celsius og það snjóar jafnt og
þjett. Nýi snjórinn legst hægt og
hátignarlega yfir gömul skíðaför
og skíðaslóðir, sem liggja hjer um
allar brekkur og brúnir. Á morg-
un verður snjóbreiðan hvít og
sljett og engin merki sjáanleg
eftir fólkið sem ærslaðist og Ijek
sjer þar í dag. Það minnir mann
á spor barnanna í fjörusandinum,
sem aldan þvær út.
Lestin brunar af stað og eftir
fáar mínútur er Stolien horfin inn
í myrkrið bak við hæðadrögin.
Þangað kem jeg sennilega ekki
aftur. á næstunni. Jeg er á heim-
leið,
En jeg er að hugsa um að gott
væri ef einhverjum tækist að
flytja með sjer heim eitthvað af
því besta sem jeg sá 'Og heyrði í
sambandi við skíðaíþróttina í
Storlien. Ekki með það fyrir aug-
um að við eignumst atvinnumenn
í skíðaíþróttinni eins og algengt
er í öllum íþróttum í flestum
löndum, heldur til þess að almenn-
ingur læri að nota skíðin og
þekkja veturinn, svo að með
skíðaferðunum aukist starfsþrek
til skyldustarfanna 0 g ánægja
Og lífsgleði, sem svo marg-
ir hafa árangurslaust leitað
að á ltaffihúsunum. Mjer kemur
í hug síðasta ræða læknisins í
Storlien, sem hann helt um klæðn-
að og útbúnað í vetrarferðalög.
Þar fórust honum orð eitthvað á
þessa leið:
Gegnum miklar inniverur og
kyrsetur, fyrst í skólum, síðan í
skrifstofum og verksmiðjum, og
í gegnum svall frístundanna, hafa
orðið til þessir „nervösu“ vjela-
aldarmenn sem lifa á mixtúrum,
kvarta um meltingarkvilla og
svefnleysi og hafa ógeð á öllum
sköpuðum hlutum, tímunum sam-
an. Það eru menn sem 25—30 ára
gamlir hafa gert skrokkinn á sjer
óhæfan bústað fyrir nokkra al-
mennilega sál, þeim fækkaði að
mun ef þeir kæmu aftur upp í
fjöllin, út í kuldann og snjórinn.
Hyggileg iðkun íþrótta og úti-
vist, ekki bara í hita og sól sum-
arsins, heldur engu, síður í kulda
og snjó vetrarins, er betri trygg-
ing fyrir heilsu og löngu lífi en
allir læknar og sjúkrahús. Skíða-
íþróttin veitir alhliða þjálfun og
er fyrir fólk á öllum aldri. Jafn
fögur og hraustleg íþrótt sem
47
skíðahlaupið er vandfundin; og
það er trú mín að hún geti átt
stóran þátt í að ala upp hraustan
og heilbrigðan æskulýð.
Tryggvi Þorsteinsson.
Skákmót íslendinp.
Reykjavík 4. febrúar 1038.
Drotningarbr agð.
Hvítt: Einar Þorvaldsson.
Svart: Eggert Gilfer.
1. d4, d5; 2. c4, e6; 3. Rc3, c6;
(Betra er Rf6) 4. Rf3, (Best.
Svart getur að vísu drepið á c4
og haldið peðinu, en fær ekki
góða stöðu.) 4....... f5; (Þetta
afbrigði af drotningarbragði,
sem nefpt ' er „Stonewall“,
hefir aldrei verið teflt á stór-
meistaraþingum á tímabilinu 1916
—’29 og bendir það ótvírætt til
þess, að það njóti ekki mikils á-
lits. Hvítt á tvo menn úti á borð
inu en svart engan.) 5. cxd, exd;
(í skákinni Konráð Árnason —
Jón Guðmundsson Haustmót Tafl-
fjelags Reykjavíkur 1934 ljek Jón
þannig og fekk elrki góða stöðu.)
6. Bf4!, Bd6; 7. Be5, (Betra var
e3 og drotningarbiskup svarts er
'mjög illa settur.) 7....... Rf6.;
8. e3, 0—0; 9. Bd3, Re4; 10. 0—0,
De7; 11. BxB, DxB; 12. Re5, Rd7 ;
13. f4, Rdf6; 14. Dc2, Be6; (Bisk-
upinn er lokaður inni af sínum
eigin peðum.) 15. Habl, (Undir-
býr sókn drotningarmegin.) 15.
.... H fc8; (Svart getur ekki
leikið c5 Vegna Rb5 og c-peðið
fellur. Gilfer hefir þverbrotið
regluna. — Þegar þú átt biskup,
komdu þá peðunum á reiti ósam-
lita þessum biskup — og getur
ekki bætt fyrir það. Hac8 var
betra.) 16. b4, Rxc3; (Ekki gott.
Hvítt fær sterkan riddara á móti
ljelegum biskup.) 17. Dxc3, Re4;
18. Bxe4!, dxe; (Ef fxe; þá get-
ur svart ekki hindrað g4 og f5
fyr eða síðar og biskupinn verð-
ur enn ver settur en áður.) 19.
a4, Bd5; (Biskupinn er nú nán-
ast orðinn eins og hlekkur í peða-
keðju.) 20. Dc5, I)d8; ((Drotn-
ingakaupin eru svörtu í óhag.)
21. Hb2, b6; 22. Dc3, h5; (Veik-
ir stöðuna.) 23. g3, g5; (Sóknin
er engan veginn nógu vel undir-