Lesbók Morgunblaðsins - 15.09.1940, Qupperneq 1
JWorflttitMnjtoit!*
37. töhiblað. Sunnudag-inn 15. september 1940. • XV. árgangur
U»foM&rprea«ami0J* k.f.
v !
PÁLL ZÓPHÓNÍASSON ráðanautur:
FJALLSKIL
8 þúsund manns fara í göngur
Fjárrekstur í Eyjafirði. í baksýn Akureyrarkaupstaður.
Allir liafa heyrt talað um rjett-
irnar. Til þeirra er fjenu
safnað úr sumarhögunum og af-
rjettarlöndunum, og þar er það
lcsið sundur eftir brenuimörkum
og eyrnamörkum og dregið í dilka
eftir eigendum. Ur rjettunum er
það rekið heim. Sumarfrelsinu er
lokið í bráð, það er aftur komið
undir gæslu mannanna.
Pyrstu rjettir eru sumstaðar
lialdnar ákveðna mánaðardaga.
Svo er t. d. í Eyjafjarðar- og
Þingeyjarsýslum og víðar. í Eyja-
firði og Þingeyjarsýslum ber að
rjetta í fyrstu rjettum 15. sept.
sje það virkur dagur, en ella næsta
virkan dag.
Annarsstaðar eru rjettjr ákveðn
ar • eftir vikudögum, og er það
víðar. Fyrstu rjettir eftir viku
dögum eru í nyrstu hreppum
Norður-ísaf jarðarsýslu og eru þær
mánudaginn í tuttugustu og fyrstu
sumarviku.
í ár falla því saman fyrstu
rjettardagar í Eyjafjarðar- og
Þingeyjarsýslum og í þrem nyrstn
hreppum N.-lsafjarðarsýslu, allar
verða þær á morgun 16. sept.
og verður þá rjet.tað í 11 rjettum.
Annars er það breytilegt hvar
fyrst er rjettað, en verður ýmisi
í Evjafirði og Þingeyjarsýslum
eða í Norður-ísafjarðarsýslu, og
fer það eftir því, Jiver fvr kemur
á árinu, 15. sept., eða mánudag-
urinn í 21. viku sumars.
Næstu 12 dagana verða svo a 11 -
af fyrstu rjettir einhversstaðar á
landinu. Flestar verða þær mánu
daginn í 22. viku sumars, þá er
rjettað í fjórðu hverri rjett, sem
alls er rjettað í 169 aðalrjettum.
en auk þeirra í mörgum sundur-
dráttarrjettum og aukarjettum, en
í þeim fer ekki fram töfludráttur.
Mörgum þykja rjettirnar skemti
legar. Unglingarnir í sveitunum
hlakka t.il þeirra. Rjettardagur-
ijin er einn af þeirra hátíðisdög-
um, og þar í fremstu röð. Og
fullorðna fólkinu þykir rjettirn-
ar líka skemtilegar. Bóndinn er
þá að fá heim verðmæti þau, sem
sauðfjeð hefir sótt í sumarhagana,
og þau eru, ekki lítil. Fjeð er
frjálslegt og óþústað, og færir með
sjer hressandi gust innan af af-
rjettunum. Annir dagsins verða
alt aðrar en venjulega, það kem-
ur tilbreytni í daglega lífið, og
alt. gefur þetta deginum gildi,
fram yfir aðra daga í sveitinni.
Fjármargar rjettir.
Mikill munur er á því hve rjett-
irnar eru fjármargar. Sumstað-