Lesbók Morgunblaðsins - 29.03.1942, Side 1

Lesbók Morgunblaðsins - 29.03.1942, Side 1
JSlcrauaMaösjtis tölublaC. Sunnudagur 29. mars 1942. XVII. árgangur. l«afoldkrpi«ntamlðJa fc.t. Pálí Sigurðssoti: Nokkrar staðfræðilegar athuganir í landnámi Hallsteins Atlasonar A fáum stöðum á landinu mun vera jafn-erfitt að átta sig ^ staðháttum, eins og þeir eru nú samanborið við frásagnir hinna f°rnu heimilda um þá á land- námsöld, og í landnámi Hallsteins -A-tlasonar, þegar tekið er tillit til þess, hversu greinilega heimild- irnar lýsa þeim. Til þess liggja ýmsar orsakir: Örnefni hafa týnst °g önnur komið í staðinn. Ár virð- ast hafa breytt um farveg og nöfn. Ijandið hefir brotnað. Heimildum t*er ekki saman í ýmsum minni káttar atriðum o. s. frv. í Landnámu (Sturlubók) segir sv° frá landnámi Hallsteins: „Há- sfeinn stökk þá undan ok brá til íslandsferðar. Hann átti Þóru Ölvisdóttur. Ölvir ok Atli voru sýnir þeira. Hásteinn skaut set- stokkum fyrir borð í hafi at forn- llla sið. Þeir komu á Stálfjöru fyrir Stokkseyri, en Hásteinn kom 1 Hásteinssund fyrir austan ^tokkseyri, ok braut þar. Há- steinn nam land milli Rauðár ok ttlvisár upp til Fyllarlæltjar, ok ®reiðamýri alla upp at Holtum, bjó á Stjörnusteinum, ok „vo ^ivir son hans eftir hann. Þar keita nú Ölvisstaðir. Ölvir hafði iandnám alt fyrir utan Grímsá, ktokkseyri ok Ásgautsstaði, en Atli átti alt milli Grímsár ok Rauðár. Hann bjó í Traðarholti". f Flóamanna sögu, Egils sögn og einni Landnámugerð er Há- steinn nefndur Hallsteinn, sem jeg liygg að sje rjettara. Sennilega stafar nafnið Hásteinn upphaf- lega frá misritun. Jeg hefi veitt því athygli, að nafn tveggja manna, sem með vissu er vitað að hjetu Hallsteinn, hefir í fornum heimildum misritast Hásteinn. Nafnið Hallsteinn virðist að fornu fari stundum hafa verið ritað; Halstein. Þarf þá ekki annað en 1 falli burt, svo að úr því verði Hastein. Hjer er ekki rúm til að rökstyðja nánar, að hið rjetta nafn landnámsmanns þessa hafi verið ITallsteinn, en jeg mun í grein þessari láta hann halda því nafni. RAUÐÁ. Tveir þeirra fræðimanna, sem hafa ritað um landnám þetta, þeir Kálund og Brynjólfur Jónsson, telja, að Rauðá muni hafa verið lækur sá, sem rennur til sjávar fyrir austan Baugsstaði og heitir þar Baugsstaðasíki. Ofar er hann ýmist nefndur Stórilækur eða Hróarslækur (Hróarsholtslækur). Báðir þessir fræðimenn virðast þó vera í nokkrum vafa um þetta, og það, sem veldur þeim heila- brotum hvað þetta snertir, er nafn á tveimur hjáleigum rjett austan við Stokkseyri, er heita Vestri-Rauðarhóll og Evstri-Ranð- arhóll. í jarðabók Á. M. og víðar hefir nafnið, að því er virðist vegna misskilnings, verið ritað Rauðárhóll. Slíkt segir enginn maður þar eystra, heldur Rauðar- hóll. Ýmsar skýringar um afbak- anir hafa komið fram, en eftir því, sem jeg veit best, allar frekar ósennilegar. Mjer finst lang-lík- legast, að nafnið sje dregið af liestnafninu Rauður, og er þá með röngu eignarfalli, fyrir Rauðshóll. Rauðarhóll fer fult svo vel í munni. Sambærilegar rangar beyg- ingar á íslenskum bæjarnöfnum eru alltíðar, t. d. Fjósar, Holtar, Hrísar, Lyngar, Nesjar, Seljar, Skipar, Vetnir o. s. frv. Eitt er víst, að þess sjást engin merki, að nálægt þessum bæjum hafi nokkur á runnið, og ekki sennilegt, að svo hafi verið. Það virðist enginn vafi leika á því, að lækur sá, sem nú heitir Stórilækur, Baugsstaðarsíki og Hró arslækur, sje hin forna Rauðá. Hefir hún vafalaust fengið nafn sitt af því, að í henni er afar mikið af mýrarauða, Af frásögn Landnámu má sjá, að Rauðá skilur landnám Hall- steius frá næsta landnámi þar fyrir austan, landnámi Lofts hins gamla Ormssonar. Ekkert annað vatnsfall er t.il á þessu svæði, sem til greina virðist geta komið. Baugsstaðir, sem kendir eru við

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.