Lesbók Morgunblaðsins - 29.03.1942, Page 4
«4
-LESBÖK MORGUNBLAÐSINS
Frá því er skýrt í Landnámu,
að setstokkar Hallsteins Atlasonar
hafi komið á Stálfjöru fyrir
Stokkseyri. Ornefnið Stálfjara er
nú týnt, en sterkar líkur eru
fyrir því, að það hafi einmitt
verið þessi fjara. Sumir frœðimenn
telja, að Stálfjara hafi hlotið
nafn á undan Stálinu og virðast
setja það í samband við málminn
stál (vopn). Þegar Stálfjöru var
gefið nafn, hafi Stálið ekki verið
komið fram undan bakkanum, en
þegar það kom fram, hafi nafnið
Stálfjara ekki verið týnt og Stál-
ið Jsá hlotið nafn af henni.
Þetta er vafalaust alröng skýr-
ing. Stálið hefir eflaust hlotið
nafn á undan og fjaran svo verið
nefnd eftir því, enda þótt Stálið
sje ekki nefnt í Landnámu eða
öðrum heimildum. Stál í þessu
sambandi merkir eitthvað, sem
myndar ljóðrjettan vegg. Það er
skylt sögninni að standa, og er
ennþá til í samböndum t. d. tað-
stál og heystál, sbr. gamla reglan
um heylán; „Einn kapall úr stáli
jafngildir tveimur á teig“. Nafnið
hefir það vafalaust fengið af lög-
uninni og lóðrjetta veggnum móti
suðaustri.
Eins og áður er sagt, eru um
50 metrar frá Stálinu og upp að
fjörusandi, og um 200 metrar frá
því upp að sandbakkanum. Hafi
nú Stálið verið komið fram undan
jarðvegi um það bil og land var
numið þarna, eða þegar Landnáma
eða drög að henni voru samiu,
eins og jeg þegar hefi fært sterk-
ar líkur fyrir, þá er það augljóst
mál, að tiltölulega lítið hefir
brotnað þarna framan af landinu
og miklu minna en alm.ent virðist
talið.
STJÖRNUSTEINAE.
Hvar hefir bærinn staðið?
Samkvæmt Landnámu (Sturlu-
bók) bjó Ilallsteinn að Stjörnu-
steinum. Enginn bær er nú til
með því nafni á þessum slóðum,
og menn vita nú ekki, hvar hann
hefir staðið. Örnefnið Stjörnu-
steinar er þó ennþá til. Nokkuð
fyrir austan Stokkseyri gengur
klappa- og grjótrif frá fjörusandi
og alveg fram í skerjagarðinn.
Rif þetta heitir Langarif. Á suð-
austurhorni þess eru nokkrir klett
ar, sem eru svo háir, að sjávar-
gróður festir sig ekki á þeim, en
þó ekki hærri en það, að þeir
fara í kaf um stórstraumsflóð.
Klettar þessir heita Stjörnustein-
ar. Sumir ætla, að þar hafi bærinn
Stjörnusteinar staðið og telja sig
hafa fyrir því gömul munnmæli.
Það virðist ekki geta komið til
mála, að þar hafi nokkurn tíma
staðið bær, þar sem þetta er í
sjálfum skerjagarðinum. Hann er
vafalaust á þessu svæði sá hinn
sami og hann var á landnámstíð.
Landið virðist hafa brotnað til-
tölulega lítið þarna, og mjer vitan-
lega hafa engin óyggjandi rök
verið færð fyrir því, að það hafi
sígið síðan fyrst var bygt þarna.
Austan við Langarif er þröngt
og grunt sund í skerjagarðinum.
Mætti vera, að það væri hið
forna Hallsteinssund, þar sem Hall
steinn braut skip sitt.
í rekaskrá staðarins í Skálholti,
sem Jón Sigurðsson telur vera frá
tíð Árna biskups Þorlákssonar,
eða frá því um 1270, er nefndur
Stjörnusteinn við Stokkseyri'. í
rekaskránni stendur eftirfarandi
klausa: „Kirkjan í Skálholti á 10
hundruð í rekanum er liggur ..
.......... og þann, sem liggur
fyrir Stokkseyri á Eyrarbakka í
millum Dyralóns og Stjörnusteins
og sjónhending fram í öldurif, að
undanteknum svo stórum hval,
sem allir heimamenn af einföldu
búi á Stokkseyri með einum eyk
geta af stað hrært og allan við
tveggja álna langan millum sniða
og þaðan af stærra“. Út af reka
þessum urðu síðar málaferli og
svardagar.
Það virðist lítill vafi geta leikið
á því, að hjer sje átt við bæinn
Stjörnusteinar. Nafnið stendur í
eintölu, og er það út af fyrir sig
athyglisvert. Stjörnusteinn sá,
sem miðað er við, hlýtur að hafa
staðið á sjávarbakkanum eða ná-
lægt honum, þar sem mörkin eru
frá honum og sjónhending fram
í öldurif. Ekki getur hjer verið
átt við Stjörnusteina þá, sem nú
eru þektir, þar sem þeir eru á
öldurifinu.
Rekaskráin er talin vera frá
síðari hluta 13. aldar, eins og sú
gerð Landnámu, sem kend er við
Sturlu lögmann Þórðarson, en
Sturlubók telur bæinn StjörnU-
steina vera til og heiti hann þa
Ölvisstaðir. Má vera, að nöfni'-1
á honum hafi fyrst framan af
verið nokkuð á reiki. Af reka"
skránni má ennfremur sjá, a®
staður þessi hefir verið austan við
Stokkseyri.
Jeg tel vafalítið, að bærinn
Stjörnusteinar hafi staðið einhvers
staðar á sjávarbakkanum á svæð-
inu frá Stokkseyri og austur að
Grímsá. Líklega upp af Langa-
rifi. Á þessu svæði hafa
verið, svo vitað sje, tvö grasbýli,
þ. e. Grjótlækur og Skipar. Grjót-
lækur er í jarðabók Á. M. talinn
hjáleiga frá Traðarholti, sem virð-
ist brátt hafa orðið ættarsetur
afkomenda Hallsteins.
Jeg fæ ekki betur sjeð en bær-
inn Skipar svari til hinna fornu
Stjörnusteina. Sú jörð er hverg*
nefnd með því nafni í fornum rit-
um, svo að jeg viti til. Sæmilega
góðar heimildir eru fyrir því, að
bærinn hafi verið fluttur upp.
Það, sem tvímælalaust styður
þá skoðun, að bærinn Stjörnustein
ar hafi staðið á þessu svæði, eru
haugar þeirra feðga, Hallsteins og
sona hans við Haugavað, sem nú
heitir Barnanesvað. Sigurður Vig'
fússon gróf í hauga þessa sumarið
1880. Kom þá í ljós, að frásögn
Landnámu um þá er svo að segj3
hárrjett. Engin ástæða er til a®
ætla, að líkami Hallsteins haf1
verið fluttur langt burt frá bæ
hans til haugfagningar. Slíkur var
ekki háttur fornmanna, nema sj®r
stakar ástæður væru fyrir hendi,
sem ekki verður sjeð, að hafi
verið þarna. Af heimildunum verð-
ur ekki heldur annað sjeð, eíl
hann hafi andast fyrstur þeirra
feðga.
Jeg tel ekki ólíklegt, að steirt'
arnir á Langarifi hafi fyrst hlotið
nafnið Stjörnusteinar og bærinn
svo verið nefndur eftir þeim.
Frú Filomena Fazatta, sem er
komin fast að 108 aldurs ári, á
von á því að verða amerískur
borgari árið 1944. Hún hefir látið
svo um mælt: „Jeg er við góð3
heilsn. Ekkert liggnr á“.