Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 29.03.1942, Qupperneq 13

Lesbók Morgunblaðsins - 29.03.1942, Qupperneq 13
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 93 Guð minn góður, hvað mjer þótti leiðinlegt að sjá hana fara, og hafði mikla óbeit á vinnudögun- um, sem jeg átti í vændum. Svo skrifaði jeg löng, ástar- þrungin hrjef á hverri nóttu, og beið eftir að fá fyrsta brjefið frá henni. Þau komu fáein, sem jeg las aftur og aftur, til þess að gæta að, hvort jeg hefði ekkert msit úr, en síðan skrifaði hún aðeins klaustursleg póstkort, mik- ið hataði jeg hana. Hún hafði tekið fríið mitt, fríið, sem jeg var alveg búinn að ráðstafa fyrirfram, sem hafði haldið í mjer fjörinu og dugnaðinum árum saman. Hugsun in um það hafði altaf verið efst í huga mjer, þegar jeg slökti í hálf reyktri sígarettu. Hún hafði svo eignast það. Jeg hafði látið alt af hendi. En nú var jeg ánægður — ánægður yfir að hún hafði þarfnast mín, og alt hafði farið eins og það fór. Erfitt var að skilja að þetta væri sama stúlkan, sem jeg hafði hitt svona skyndilega. Þegar jeg þá sá hana svo lasna, fylgdi jeg henni heim. Hún leigði ódýrt her- bergi. Hafði enga vinnu. Enga vini, þegar hún þarfnaðist þeirra, óþolinmóður húsráðandi, reikning- ar í tonnatali, og svo borðaði hún rjett nægilegt til þess að halda sjer við dálítið lengur. Jeg upp- götvaði þetta strax. Auminginn, orðin þutu fram um varir henn- ar, ósamanhangandi. Hún var svo einmana, og svo þakklát, þegar jeg gaf henni ríflega máltíð. Þá sagði jeg henni frá öllu saman. Hún var indæl. Svo datt mjer í hug að taka hana líka með, til þess að sjá liana glaða. Við hittumst oft eftir það, en mánuði seinna varð hún veik, jeg vissi ekki hvað átti að gera, lækn- irinn sagði að hún yrði að fara á sjúkrahús og svo um tíma þangað sem sólin skini, til þess að henni batnaði. Hvað gat jeg annað gert en sent hana eina, í stað þess að við færum bæði saman. Og nú var hún komin aftur. Jeg kysti hana. „Elskan", sagði hún, „jeg er feginn því, að þú skulir vera svona þögull í kvöld, það er svo margt sem jeg þarf að segja þjer. Guðmundur Friðjónsson: Oef mjer Það: að bera höfuðið halt, hamlar brautargengi. Hjarta mitt og höfuð salt hafa vegið lengi. Ýmsum verður örðug nú ástleitnin við Mildi. Margur hikar að taka trú — trúna á lífsins ffildi. Mjer fyrir döprum sjónum senn sortnar, á fótskör norna. Gef mjer trú á guð og menn, gæska, himinborna. Þú skilur, meðan jeg hef verið í burtu, hef jeg hugsað svo mikið um okkur. Við getum ekki byrjað á nýjan leik fyr en við erum gift. Það mundi ekki vera rjett gagn- vart hvorugu okkar. Og ef jeg er með þjer, þá eyðir þú peningun- um í stað þess að spara. Við gæt- um aldrei skemt okkur saman, værum altaf að hugsa um að nurla saman í banka, til hveitibrauðs- daganna. Mjer var boðin atvinna meðan jjeg var að heiman. Góðó atvinna, sem einkaritari, svo jeg get lagt peninga til hliðar. Þú skilur, Elskan er það ekki? Við getum skrifast á og sjeðst öðru hvoru, en jeg verð að fara norður. Hann vinnur þar. Og svo brátt, mjög bráðlega, hittumst við aft- ur“. Hún leit í augu mjer, og klapp- aði höndinni á hönd mína. Núna þeirri vinstri. Tárin stóðu í aug- unum á mjer. Jeg gat ekki litið framan í hana. Seinna ætlaði jeg að mótmæla, grátbiðja hana. Núna gat jeg ekki hugsað. Jeg leit niður á litlu heitu höndina hennar. Ósjálfrátt strauk jeg hana. Svona sat jeg lengri tíma, það var aðeins hægt sem rann upp fyrir mjer, hvað það var, sem höndin bar með sjer. Á þessum tveim mánuðum hafði sólin gert hana koparbrúna. Á hringfingri var ennþá hvít rák eftir umsamin svik. Þar hafði sólin ekki komist að. (Lauslega þýtt). Bessastaðir Örlítil athugasemd IMorgunblaðinu 21. þ. m. er sagt að íbúðarhúsið sje bygt „kring um árið 1760“. Þetta er nú að vísu rjett, en ekki nægi- lega nákvæmt. Byrjað var að flytja grjót frá Fossvogi til hús- byggingar 1759 og 1760. Graf- ið var fyrir grunni hússins 1761, og byggingunni haldið áfram til 1767. Var það þá að mestu fullsmíðað. Margar heimildir um Bessastaði er til hjer í Þjóð- skjalasafni, á ýmsum stöðum, þ. á. m. kostnaðarreikningur við hús þetta. Innlendi kostnaður- inn öll (9) árin 1759—67 m. m. Þar eru nákvæmar skoðunar- gjörðir allra húsa á Bessastöð- um frá þessum árum (1688?), 1697, 1727, 1745, 1757 og lík- lega yngri. Skýrslunni 1697, fylgir lýsing af varnarvirkinu (,,Skanzinum“), sem Otto Bielke ljet byggja þar með dönskum hermönnum 1667, ásamt leifum þeim af skotfærum og fallbyssum, sem þar voru þá eftir. Virkið var gert til „varnar á móti ófriði útlenskra”, og heimtaði Otto Bielke skatt til þess, af öllum sýslumönnum á landinu, en þeir áttu svo að krefja af bændum, Bessastaðir eru nú (aftur) orðnir svo mikið og merkilegt höfuðból, hið göfugasta á landi voru, að ástæða er til að rifja það upp er hjer finnst um stað- inn sögulegt, þegar þess verður kostur. Ýmislegt er til, um æðstu höfðingja landsins, er þar áttu aðsetur, og dálítið um jörðina. Meðal annars stærðarmæling Rasmusar Lievogs stjörnufræð- ings, á Bessastaðanesi. Upp- dráttur hans af nesinu, mun því miður ekki til hjer (en máske í Kmh.). Lievog bjó lengi í Lamb- húsum hjá Bessastöðum. Var hjer 1779—1805 og fram- kvæmdi ýmislegt merkilegt. Bygði búinu á Lambhúsum og bætti þá jörð mikið. Var þó af- skiptur af Vibe amtm. og átti í erjum við hann. (Mörg brjef til.) V. G.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.