Lesbók Morgunblaðsins - 03.02.1946, Síða 11

Lesbók Morgunblaðsins - 03.02.1946, Síða 11
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 27 kross til að hengja upp í herberg- inu sínu( en þar hafði hún ekkert til að fremja bænahald sitt við. Að lokum hafði hún dregið sam- an 60 sents og hlakkaði nú óskap- lega til þess, að á morgun gæti hún haft krossmark í kofa sínum. Hún var að hugsa um þetta á leiðinni eftir Guadaljarabakka, en þá mætti henni fátækur og fatl- aður maður og sagði henni frá því að hann skuldaði ríkum herra- manni 60 cents, og að hann yrði settur í fangelsi, ef hann gæti ekki greitt skuldina fyrir kvöldið. Fá- tæka þvottakonan aumkvaðist yf- ir hann, dró upp úr einhverjum leynivasa þessi 60 sents, sem hún átti og fjekk þau fatlaða mann- inum, svo að hann gæti greitt skuldina. Daginn eftir, eða þrem- ur dögum seinna — hjer greindi kerlingarnar alvarlega á — var fátæka konan enn að þvo og biðja að sjer tækist einhvern tíma að vinna sjer inn 60 cents, en í sama bili flaut þar upp í hendurnar á henni og festist í þvottinum, ofur- lítil askja og í henni var..... Aðeins lítill kross, sagði sú, sem var að segja frá, en svo varð hún að bregða sjer frá, og þá hvísluðu hinar kerlingarnar að okkur hás- um rómi, að þetta væri algjörlega rangt. Það hefði ekki verið lítill kross í öskjunni, heldur Krists- mynd á krossi, hin sama, sem enn er til sýnis í E1 Milagroso de Buga, aðeins miklu, miklu minni. Kon- an fór með Kristsmyndina heim til sín og hengdi hana upp á vegg. En henni til mikillar undrunar og skelfingar, byrjaði myndin að stækka. „Hvernig lýst þjer á?“ — Og hún óx líka á nóttunni. Og það voru svo miklir vaxtarbrestir í henni, að konan gat ekki sofið. En þegar myndin var orðin helm- ingi stærri heldur en hún var í upphafi, var konan orðin svo hrædd, að hún fór til prestsins og sagði honum upp alla söguna. Prestur ávítaði hana fyrir að fara með þessa vitleysu, annað eins og þetta gæti ekki átt sjer stað nú á dögum, þegar öllum kraftaverkum væri lokið. En svo sýndi hún hon um helgimyndina og hún stækk- aði fyrir augum prestsins. Hann tók myndina því af konunni, eins og presta er siður, og enn helt myndin áfram að vaxa. þangað til hún var orðin eins stór og hún er nú í E1 Milagroso de Buga. Og svo fjekk presturinn vitrun af Maríu mey og hún sagði honum að reisa kirkju á þessum stað, þar sem myndin hafði fundist, og prestur- inn kallaði alla menn til vinnu, að reisa kirkjuna. Þeir settu töfra- myndina á bak við altarið, og þar stóð hún í 200 ár í kirkjunni, sem nú er trjesmíðavinnustofa rjett hjá E1 Milagroso. Árið 1902 var hið mikla musteri reist úr múr- steini. því að það var langt síðan að gamla kirkjan var orðin alt of lítil fyrir þá, sem vildu tilbiðja líkneskið og fá lækningu af því. Og svo var líkneskið borið yfir í nýju kirkjuna og var þá eins ljett, eins og það væri úr trje, en allir vita að ekki er hægt að flytja það úr stað( ef það vill ekki láta flytja sig og dygði þá ekki til þótt öll- um hestum í Buga væri beitt fyrir það. — „Er það satt að E1 Milogroso hafi læknað marga?“ spurði jeg. Þær urðu alveg forviða á slíkri spurningu. Og af öllum þeim sög- um, sem þær sögðu mjer, set jeg hjer aðeins eina. Kona nokkur í Sonson hafð leg- ið í taugagigt í 20 ár. En þegar synir hennar voru orðnir nógu stórir, báru þeir hana til Buga og settu hana í stól fyrir framan lík- neskið. Þar baðst hún fyrir, laut áfram og snerti tána á líkneskinu. En í sama bili brá svo við, að hún reis upp albata og labbaði heim til sín, margar mílur vegar. Þetta veit hvert mannsbarna í Buga, því að þetta skeði í fyrra. „Og líkneskið getur líka gefið mönnum æskuna aftur, breytt gamalli konu í unga og fallega stúlku“, sagði önnur kerlingin þegar sögUnni var lokið. „Hvað?“ sagði Hays og spratt upp. „Hvers vegna.........? Nei, það er of nærgöngul spurning!“ - Rannsókna- leiðangrar Framhald af bls 19. Náttúrufræðideild, er aðeins veit- ir kennslu í fyrra hluta greinum, getur tæplega sem slík unnið sjer álits erlendis, þar sem hún aðal- lega fjallar um grundvallaratriði. Á slík deild því ekki rjett á sjer, nema verið sjer að uppfylla nauð- syn í þjóðfjelagi okkar. Deildin gefur að vísu kennurum sínum aðstöðu til vísindaiðkana og gætu þeir borið hróður landsins út fyr- ir landsteinana. En hæfum mönn- um má skapa aðstöðu til vísinda- iðkana án þess að binda þeim kennsluskyldu á herðar. Og deild sú, sem fyrirhuguð hefir verið, má ekki hindra það, að hjer verði stofnsettur sá þáttur náttúrufræði- kennslunnar, sem mest má verða landinu til gagns og sóma Steinþór Sigurðsson. 1 4 4 Vaflanarför eða vöflunarför var notað yfir betliferðir. Að fara vaflanarförum var að ganga um og betla.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.